Vísir - 29.10.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 29.10.1965, Blaðsíða 2
V í SIR . Föstudagur 29. október 1965. Danmörk vann Island 16:9 Gekk vel meðon úthald entist — 7:6 í hálfleik fyrir Dani Frá Frey Bjartmarz, fréttaritara Vísis í Lyngbyhallen f gærkvöldi. ísland tapaði fyrri landsleiknum gegn Danmörku í gærkvöldi með 16:9 eftir að Danir leiddu í hálfleik með aðeins eins marks mun, eða 7:6. í síðari hálfleik kom í ljós mun minna úthald íslenzku stúlknanna og sá hálfleikur var eins ójafn og hinn fyrri hafði verið jafn og skemmtilegur. Þetta þýðir jafnframt, að ísland á sáralitla mögu- leika á að komast áfram í aðalkeppni heimsmeistara- keppninnar í Þýzkalandi eftir viku, því til þess þarf ísland að vinna með 8 marka mun í síðari leiknum á laugardaginn. Það verður erfitt verkefni og vart við því að búast að það gerist. Danir skoruðu fyrsta mark leiks- ins á 2. mínútu. Það var Anna Marie Nielsen sem skoraði, en Sig- ríður Sigurðardóttir jafnaði fyrir ísland 1:1 á 5. mín og var það failegt langskot. ísland komst yfir með marki frá Sigríði á 7. mínútu. Þá bættu dönsku stúlkumar við 3 mörkum í röð og komust yfir í 4:2. Danir komust í 5:2 áður erl Island skoraði aftur. Það var Sigrún Guð mundsdóttir sem skoraði nú með góðu skoti úr uppstökki. Þá kom mark Sigríðar Kjartansdóttur af línu 5:4. Danir skora 6:4 en Sigríður Sigurðardóttir skorar 6:5. Danir né 7:5 og rétt fyrir leikhlé skorar Syl vía af línu 7:6. Á fyrstu mfnútu seinni hálfleiks skora Danir 3 mörk í röð. Þetta var mjög þýðingarmikið fyrir dönsku stúlkurnar, sem höfðu nú 10:6 yfir. j Vigdís skorar 10:7, en Danir svara með 11:7. Sigríður Kjartansdóttir skoraði 11:8, en eftir það komu j 3 mörk í viðbót frá Dönum, 12:8, j 13:8 og 14:8, — staðan orðin von laus og lokatölurnar voru 16:9 fyrir Dani. Sigurinn var verðskuldaður fyrir Dani. Liðið býr yfir miklum hraða og úthaldi. Það fór eins og Pétur Bjamason sagði { viðtali við Vísi | fyrir skömmu; danska liðið er í góðri æfingu, en það íslenzka hefur ekki nægilegt úthald. Fullur viiji var á að æfa meira síðustu vik- urnar, — en salur fékkst því mið- ur enginn. í Ieiknum i gær var Sigríður Sig urðardóttir bezt okkar stúlkna, en Rut í markinu varði vel. Síðari leikur liðanna fer fram á laugardag I Rödovrehallen og verð ur þeim leik sjónvarpað. Gríska landsliðið kom til að hrópa með íslendingum Áhorfendur f LyngbyhaBen, skammt fyrir utan Kaupmanna höfn í gærkvöldi voru eltthvað um 1000 talsins. Það var nrikil stemning" í fyrri hálfleik með an leikurinn var jafn og ís- lendingar virtust eiga góða bandamenn f röðum áhorfenda. enda höfðu komið fjölmargir námsmenn til að hvetja fslenzku stúlkumar og heill knattspymu flokkur frá Grikklandi að auki. Grikkimir búa á sama hóteli og við, Grand Hotel og má segja að hrópin frá þeim hafi verið sndurgjald hrópa stúlknanna á Idrætsparken f fyrrakvöid en 'þá léku Danir og Grikkir f heims- meistarakeppninni og iardc ltíkn um 1:1. En því miður, hróp Gríkkj- anna og íslendinganna voru ekki nóg eins og fyrr greinir, f seinni hálfleik opnaðist fslenzka vömin mjög illa og þá var sig ur Dana orðinn að staðrejmd. — Reyr. Aðgangsharður Ijósmyndari Þama em þær Sigrún Guðmunds- dóttir og Sigrún Ingólfsdóttir á hótelinu að „slappa af“ fyrir leik- inn f gær, en fremst er Vigdís Pálsdóttir. — Kvenljósmyndari frá Extrabladet hringdi kl. 2 í Pétur Bjarnason og bað hann um viðtal og myndlr af stúlkunum og var það veitt kl. 5 um daginn. En Ijósmyndarinn Iét sér ekki segjast, I fór upp á hótelið og vakti stúlkum- ar á tvelm herbergjum og stilltl þeim upp til myndatöku f rúmlnu. Pétur Bjamas. fékk veður af þessu og kom kvenmannl þessum út, því stúlkumar áttu á þessum tíma að vera í næði og vera ótruflaðar. Þannig eru blaðamennimlr vfða í stórborgunum aðgangsharðlr og frekir og hefur fslenzka kvenna- landsliðið fengið að finna fyrir því í þessari ferð sinni. — Freyr. DANSKILANDSÞJÁLFARINN 06 FYRIRLIDINNI „NJÓSNAFERÐ" Fóru út í Lyngbyhallen til að fylgjast með æfingu íslenzku stúlknanna Kaupmannahöfn 28. okt.: Islenzka kvennalandsliðið í handknattleik hafði ekki staðið lengi við á Grand Hotel í Kaup- mannahöfn, þegar allt fylltist af blaðamönnum og ljósmyndurum. Stúlkurnar, Pétur Bjarnason og Sigurður Bjarnason urðu að svara óteljandi spumingum og myndir voru teknar af þeim frá öllum hliðum. Morguninn eftir var farið snemma á æfingu í Rödovrehall en og tekið á fyrsta hálftímann, eða þar til „njósnarar“ Dana birt ust í salnum. Var þar sjálf Elsa Birkemose Gunnarsson (gift Grími Gunnarssynl, fslenzk ættuðum íþróttarltstjóra hjá Aktuelt), en hún er landsliðs þjálfari kvennallðsins og að auki mætti þama ein af stjörnum Hðs ins, fyrirllðinn Anna Hansen. Þá var tekið upp rólegt spll og létt ur leikur til að koma ekki upp um leikaðferðir eða annað. „Þetta var þó ekki melri lefk- ur en svo að við sáum út þrjár þær hættulegustu", sagðl Anna Hansen vlð blaðamenn á eftlr. Viðurværi og aðbúnaður stúlkn- anna er mjög góður á hótelinu. Á þriðjudag var þeim leyft að skoða sig svolítið um og farið f búðir ,en tíminn mjög takmark aður. Aðalatriðið er að hvílast sem bezt. Þá þá var farið í bfó og horft á myndina „My fair lady“. í gær var svo farið út í Lyng- byhallen þar sem fyrri leikurinn fór fram. Sá salur er af sömu stærð og Rödovrehallen, en höll in stærri og glæsilegri og tekur 1800 áhorfendur. Um kvöldið var horft á Grikkina og Dani keppa f knattspyrnu. Lauk þeim leik með flösku- og skítkasti í gríska markvörðinn. Danir máttu þakka fyrir jafnteflið. — Freyr. Selfoss — Framh. af bls. 7. ÁÐUR TOGARASJÓMAÐUR „Hvað er iangt sfðan þú komst f Tryggvaskála?" „Það eru líklega ein 23 ár, jú, ég kom 20. ágúst 1942. Fram að því var ég sjómaður á tog- ara, en sfðan hef ég ekki á sjó komið“. „Nú er Tryggvaskáli kominn á áttræðisaldur. Verður hann látinn standa eins lengi og hann getur staðið?" „Nei, ætli það. Það eru áætl- anir um að endurbyggja hann á lóð, sem er hér fyrir norðan, nær ánni. Þegar að því kemur verður gamli skálinn rifinn. Lóð in hér liggur í þjóðbraut og er því dýr. Það er ekki hægt að halda upp á skálann til eilífðar. eins og einhvem forngrip". I. A IX

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.