Vísir - 27.05.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 27.05.1966, Blaðsíða 2
SíÐAN Hér koma þær Hér koma kvikmyndastjömumar sex, sem lesendur gátu séð hér á síöunni í gær — og hafi einhver verlð í vafa um hver var hver þá þarf hann ekki að vera í vafa lengur. Stuttum pilsum Heillandi dómsforseti vísað frá prófi Meðdómendur hennar eru allir karlmenn, og sannarlega engin ástæða til ab vorkenna Jb eim í Sommcrviile-heimavistar- skólanum i Englandi hefur stúlk unum 72, sem ganga undir próf við Oxford-háskólann 1 næsta mánuöi verið harðbannað að mæta til prófs í pilsum fyrir ofan hné. Segir forstöðukonan, hin 55 ára gamla Mary Proud foot að það sé allt í lagi þótt stúlkumar gangi í stuttum pils- um, bar ef þær mæti ekki þann ig klæddar í próf. Hver er ástæðan? Jú, hún ligg ur ljóst fyrir. Við skriflegu próf in verður stúlkunum dreift nið ur í sali skólans, ásamt 1900 stú dentum af sterkara kyninu og það er óttazt að ef þær verði í of stuttum pilsum eigi herramir erfitt með að festa hugann við prófverkefnin en festi augun í þess stað á hnjákollum stúlkn- anna. Ein af námsmeyjunum í Sommerville, Mary Kaldor, sem er dóttir efnahagsráðgjafa Wil- sons, segir þá sögu að ein vin- kvenna hennar hafi eitt sinn ver ið í prófi, stuttklædd og fyrir aftan hana sat ungur piltur. Þegar prófi var lokið kom ungi pilturinn til hennar og trúði henni fyrir því að hann hefði ekki getað haft augun af fót- leggjum hennar. Hún fékk fyrstu einkunn á prófinu en hann þriðju — nú eru þau gift. gg^CTCTr^rarrii3r=ir=ir=vrrir=irnr=innigg]E]g STAHLWILLE verkfæri 0 NÝKOMIN I MIKLU ÚRVALI. TOPPLYKLASETT margar gerðir, átaks- sköft, skröll, framlengingar, hjöruliðir, topp- ar 1/4”, 3/8”, 1/2” og 3/4” bæði sexkant og tólfkant, kveikjulyklar, bognir og beinir stjörnulyklar, lyklar opnir + stjarna frá 6 — 60 mm, stjörnustubbar og haldarar, meitlar, öfuguggar o. fl. Þeir sem beðið hafa eftir þessum eftirsóttu verkfærum eru beðnir um að tala við okkur sem fyrst. Þaö leikur enginn vafi á því, að fegurstl dómsforseti, sem um getur, var forseti dómnefndar- innar, sem dæmdi myndimar á kvikmyndahátíðinni í Cannes, sem nú er að ljúka. Dómsforset- inn var nefnilega hún Soffía Loren. Þegar myndirnar voru teknar í dómnefndinni sat Soffía í for- sæti við stóra græna borðið og Soffía Loren forseti dóm- nefndarinnar i Cannes allt umhverfis hana sátu stór- menni úr kvikmyndaheiminum. Vinnutfmi dómnefndar var tveir tímar á dag, fyrir utan þá vinnu, sem fólst f því að horfa á kvik- myndimar. Þegar eftir var að taka fyrir tvær myndir, kvikmynd Orsons Wells, sem hann kallar „Fal- staff“ og byggð er á nokkrum verkum Shakespeares, og mynd- ina „Maður og kona“, þurfti dómsforsetinn að bregða sér frá — til London. Þar er Sofffa nefnilega að leika í mvnd updir ' stjóm Chaplins en mótleikari hennar er Marlon Brando. Nefn- ist myndin „Hefðarfrúin frá Hong Kong“ og hefur 2-síðan þegar sagt frá þeirri mynd. Soffía varð sem sagt að bregða sér frá og var fjarverandi þrjá daga. Hvað átti til bragðs að taka? Rætt var um að láta leikkon- una René Clair koma í stað Sofffu í dómsforsæti, en hætt var við það og beðið eftir komu Soffíu og dómi. Þegar hún kom aftur þurfti hún að horfa á fyrr- nefndar tvær myndir, auk þess sem hún þurfti að sjá fjöldann allan af myndum, sem sýndar höfðu verið, þótt ekki væru verð launamyndir. Komst Soffía upp í að horfa á fjórar myndir einn daginn — ekki svo slæm frammi staða. Sofffa Loren sat i forsæti við græna dómsborðið í Cannes -$■ við hlið hennar er hinn frægi franski rithöfundur André Maurois. Auglýsingudeild Vísis er flutt í ÞINGHOLTSSTRÆTI 1 SÍMA R: 15610 15099 11663 Kári skrifar: Skurðgröfur grafa tímanna tákn í troðnar slóðir, bylta jarö veginum meðfram vegum og grafa hluta menningarinoar far veg, hitaveitu, vatnslögnum, raf magni og síma. Nú rignir í mold ina og leðjunni skolar fyrir fætur manna, sem traðka hana niður í for, undarlegt að ekki skuli vera til hentugir skór fyr ir fólk að ganga á við slíkar kringumstæður. Stígvél! uss, heldurðu að maöur sé einhver sveitadurgur eöa kúalalli, segir Reykjavíkurtáningurinn, sem þekkir hvorki né skiiur sjarm- ann í sveitinni og sízt það að fjóshaugur geti nokkurn tíma vakið fagrar hræringar í brjósti. Nei, nei fólk sullum-bullast þetta áfram yfir for og leðju á blankskóm eða þá einhverju ennþá fínna. Það hefurekki enn þá verið fundið upp skótau sem mönnum finnst sér samboðið í svona menningarborg, til þess að ganga á alfaraleiðir. Þær eru þó fjanda kornið ekki all- ar malbikaðar, þeir eru margir til dæmis, sem farið hafa illa með fínu skóna sína á því aö ganga yfir svæðið milli Soga- vegar og Suöurlandsbrautar. Einu sinni voru til hentugar uppháar skóhlífar utan yfir fínu skóna, sem frystihússtjórar, grútarverksmiðjustjórar og alls- konar stjórar létu sig hafa að ganga í hér áður fyrr. Má vera að þessi tegund fótabúnaðar hafi ekki reynzt neitt vel að minnsta kosti er ómögulegt að fá bomsumar núna. Sennilega er kvenfólkið miklu hispurslaus ara í þessum efnum en sterka kynið. Maður sér oft fallegustu stúlkur í stígvélum svona hvers dags og ekki er svo að sjá, að þeim þyki það neitt „púkó“. Annars er hann nú víst að stytta upp.auk þess rennir menn ingin sér undir fætur okkar í malbiki og steinhellum — það passar kannski varla annaö leng ur en að ganga í blankrússkinn skóm. — En á hverju fara menn í sumarfríið?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.