Vísir - 06.08.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 06.08.1966, Blaðsíða 8
8 7 Utgefandi: BlaöaQtgáfan VISIR Ritstjöri: Gunnar G. Sctaram Aöstoðarrltstjörl: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jónas Kristjánsson Augiýsingastj.: Halldór Jónsson Auglýsingar Þingholtsstræti 1 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. an Nýskipan markaðsleitar JTregnirnar um versnandi markaöi erlendis fyrir ís- lenzkar sjávarafuröir hafa vakið eðlilegan ugg um afkomu sjávarútvegsins og fyrirtækja hans á næstu misserum. Þau tíðindi minna hins vegar á mikilvægi skipulagðrar markaðsöflunar fyrir íslenzkar afurðir erlendis. Samtök framleiðenda hafa unnið gott starf í því efni á liðnum árum og verksmiðjur hraðfrysti- samtakanna erlendis eru hið merkasta spor í vaxandi sölustarfi. Hins vegar er Ijóst að enn þarf að auka markaðsleit, vegna þess að gengi stærsta atvinnu- vegar þjóðarinnar veltur á að sem hæst verð fáist fyrir afurðirnar og sem víðast sé hægt að selja þær. t Hjá nágrannaþjóðum okkar á Norðurlöndum starfa sérstök útflutningsráð, skipuð fulltrúum framleið- enda og ríkisins, sem hafa það að meginverkefni að skipuleggja markaðsleit og kynna margs konar iðn- aðar og framleiðsluvörur erlendis. Öll Norðurlöndin hafa sérstaka markaðs og viðskiptafulltrúa við sendi- ráð sín í stærstu ríkjunum og hefur það úrræði gefizt hið bezta. Greiða framleiðslusamtökin ýmist kostn- aðinn við þessa þjónustu að nokkru leyti eða öllu leyti. Fyllilega er tímabært að slíkir íslenzkir við- skiptafulltrúar verði skipaðir í stærstu markaðslönd- um okkar íslendinga, sem hafi það hlutverk eitt að annast markaðsleit og gefa íslenzkum framleiðend- um nauðsynlegar upplýsingar um hvar markaðsvon- ar er helzt að vænta. Væri ekki óeðlilegt að kostn- aðurinn við starf þeirra fulltrúa væri að nokkru leyti greiddur af samtökum atvinnuveganna sjálfra. Þar er ekki um neinar verulegar upphæðir að ræða en hins vegar getur ómældur ávinningur fylgt í kjölfar slíkra skipulagðra markaðsrannsókna. Það sýnir bezt reynsla grannþjóða okkar á Norðurlöndum, sem auka þessa starfsemi ár frá ári. Enn flytjum við Islending- ar óunnar út margar sjávarafurðir, sem miklu skyn- samlegra væri að vinna hér heima, ef markaður væri fyrir hendi. Ofangreinda nýskipun markaðsleitar má byrja í smáum stfl, en mikilvægast er að ekki drag- ist úr hömlu að stofna til fyrirtækisins og afla reynslu á þessu sviði. Framtak einstaklingsins ]>fýtt og glæsilegt síldarflutningaskip, Haförninn hef- ur nú bætzt í flotann. Frumkvæði og framsýni Bol- ungarvíkurfeðga hefur borið góðan ávöxt og er full- reynt að síldarflutningarnir eru ágætlega vel fram- kvæmanlegir og veita atvinnu á mörgum þeim stöð- um, sem áður voru afskiptir í keppninni um silfur hafsins. Saga síldarflutninganna sýnir hve mikils virði áræði og dugnaður einstaklingsins er, og minnir á nauðsyn þess að skapa honum frjálsræði og svig- rúm til átaka við verkefnin, sem hvarvetna má finna. !» VISIR . Laugardagur/6. ágúst 1966. wmmmmtmammsammn n Bonnstjómin i hætíu vegna hneykslisnsála erlendum blöðum er sagt frá heiftarlegum árásum á landvamaráöherrann von Hass- el, sem tengdar eru meintu mis- ferli í stjómarskrifstofum og Starfighter-siysunum.' Veikir þetta allt stöðu stjómar Erhards — þessu er jafnvel líkt viö tíma sprengju, sem haldi áfram að „tísta“ þar til hún springur einn góðan veðurdag. Fyrir skemmstu var fyrrver- andi ráðuneytisstjóri í land- vamaráðuneytinu handtekinn. Karl Evers 62 ára aö aldri Hann var handtekinn á heimili sínu. í yfirlitsgrein i erlendu blaöi í fyrradag segir, að búizt sé við fleiri handtökum þá og þegar, og þess sé krafizt að landvama- ráðherrann Uwe von Hassel án þess að fleiri slys hafi orð- ið hlutfallslega á þeim en öðrum flugvélategundum. Múturnar. Þá eru það múturnar — eöa hvorki fleiri eða færri en þrjú mútumál, sem varpað hefur ver- ið leynd yfir, meiri eða minni, og hafa þessi mál verið tii rann- sóknar í 3 mánuði, en meö hand töku Evers, viröist svo komið, aö svipta verði af hulunni. Mörg fyrirtæki sem sögð era viö mál ið riðin eru sögð hafa svarað fyrirspumum hvasslega eða Karl Evers — handtekinn. jafnvel neitað að svara öllum fyrirspumum. I yfirlitsgreininni er bent á hættuna, sen. landvarnaráðherr- ann og jafnvel Bonnstjórnin öll er f vegna þessara mála — hægt er að færa sönnur á „samhengi milli mútumála og Starfighter- slysa“. Stjómarandstaðan (kratar), segir ennfremur í greininni beizk yfir því að hafa verið rænd kosningasigrinum í Nord- hein-Westpfalen, viröist staðráð in í að fá allt á hreint og nota sér til hin ýtrasta það, sem í ljós kemur. „Ágætt tliboö — nú skulum við s}á hvort vlð getum fengið dæmið til að ganga upp“. — Suddeutsche Zeitung. biðjist lausnar. Kröfur í þá átt hafa verið bomar fram fyrr út af Starfighter-slysunum, og nú endumýjaðar af meiri krafti en áður. Inn I þetta allt er flækt- ur grunur um mútur og jafnvel bomar fram ásakanir um mút- ur. * Starfighter-slysin. S. i. mánudag talaði í sjón- varp í Bonn Karl Wienand, sér- fræðingur jafnaöarmannaflokks- ins í landvamamálum, og sak- aði von Hassel um, að hafa reynt að hindra rannsóknarstarf hins hemaðarlega umboðsmanns, Matthiasar Hoogens. Og daginn eftir réðist annar þingmaður úr flokki krata á landvamaráöherr- ann, en þessi þingmaður — Hans Iven — hefur látið all- mikiö að sér kveða út af Star- fighterslysunum. Enn eiga V- Þjóðverjar 650 Starfighter-flug- vélar. Til þessa hafa 62 flug- vélar farizt og 34 flugmenn beð- íð bana, og virðist orsökin, að Vestur-Þýzkaland hefur gert breytingar á þessum vélum, sem notaðar eru af flugherjum ann- arra landa, m. a. hinum danska. Uwe von Hassel landvamaráðherra Vestur-Þýzkalands.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.