Vísir - 11.08.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 11.08.1966, Blaðsíða 1
 ; ABBA EBAN á Þingvöllum í dag Abba Eban utanríkisráðherra ísraels, frú hans og fylgdarlið fóru í' morgun til Þingvalla í fylgd með Emil Jónssyni utan- ríkisráðherra, Agnari Kl. Jóns- syni ráðuneytisstjóra og Páii Agnari Tryggvasyni deildar- stjóra. Var lagt af stað kl. 10.30 og er til Þingvalla var komið var gengið á Lögberg og ráðherranum sögð saga Þing- valla. Síðan var haldið til Val- hallar og hádegisverður snædd- ur. Frá Þingvöllum var farið austur að Sogi og virkjanimar við Sogið skoðaðar og ætlunin var að koma við í Hveragerði í heimleiðinni og skoða hveri og gróðurhús. Síðdegis í dag heldur Abba Eban fund með blaðamönnum og í kvöld býður hann gestum til kvöldverðarveizlu. Héðan heldur Abba Eban í fyrramálið. Emil Jónsson, Abba Eban, frú hans og fylgdarliö á tröppum Ráö herrabústaðarins i morgun áður en Iagt var af stað tll Þingvalla. Flest síldveiðiskipanna eru nú komin á syöri slóðir og fengu mörg þeirra ágæt köst um 230 mílur SA af Gerpi í nótt og í gær. Aðeins fáein skip halda sig enn á Jan Mayen mið um. Þar er nú kaldi og ekki veiðiveður, en veður hefur hald- izt sæmilegt á suðurslóðum enn þá þó að aðeins sé tekið að kula þar. Má því búast viö að síldin skemmist eitthvað á leið til lands og verði ekki eins hæf | til söltunar og skyldi. Vitað var um 38 skip sem fengið höföu afla síðasta sólar hring, fram til klukkan 8 í morgun samtals 4798 lestir. Engin flutningaskip voru ná- lægt flotanum, og voru þvx flest skipanna á leið til lands með afl ann. Eitthvað hefur veriö saltaö Framh. á bls. 6. „SAS virðist keita blekkingum flugfélaginu óbætanlegt tjón. Vísir hafði í morgun tal af Kristjáni Guðlaugssyni, stjórn- arformanni Loftleiða út af þessu máli. Kristján sagði m. a.: „SAS hefur sig mjög í frammi þessa stundina, og virðist beita blekk ingum í málinu. Forráðamenn þess taka t.d. töluna um allan farþegafjölda Loftleiða á öllum flugleiðum félagsins og segja að allir þessir farþegar séu fluttir frá Norðurlöndum með vélum Loftleiða, þessi staðhæf- ing er nánast sagt móðgun við yfirvöldin og hrein blekking. SAS-menn gleyma þvf, alveg að Island er eyja í miðju Atlants- hafi og einu samgöngutæki okk ar eru skip og flugvélar og við notum þau eins og okkur er framast xmnt. Landfræðilegri legu landsins geta þeir SAS- menn ekki breytt. Við tökum minna gjald fyrir að fljúga með farþega í skrúfu- vélum, heldur en félög sem flytja farþega með þotum, og þetta finnst mönnum eðlilegt. Þess má geta, að í framtíðinni verða teknar í notkun farþega- þotur/sem fara hraðar en hljóð- ið og allir forstjórar stærstu Framh. á bls. 6. — segir Kristján Guðlaugsson, stjórnarformað- ur Loftleiða. Stabhæfingar jbess eru móðgun við opinbera aðila Umræður út af flugi yfir Norður Atlantshafið eru nú komnar af stað á nýjan leik. Nýlokið er í Kaupmannahöfn fundi flugmálastjórna og full- trúa utanríkisráðuneyta SAS- Iandanna, sem haldinn var til að móta sameiginlega afstöðu opinberra aðila í þessum lönd um á væntanlegum fundi með íslenzkum aðilum. Þar verður rætt um Iendinearíevfi Loft- leiða í SAS-Iöndunum. Sá fundur verður haldinn í Kaup mannahöfn síðar í þessum mánuði. Ýmis dönsk blöð hafa tekið mjög illa í þá umsókn Loftleiða að fá að lenda RR-400 vélum félagsins í SAS-löndunum og segja aö með því muni farþega- fjöldi félagsins til þessara landa stóraukast og sé hann nógur fvrir og félaeið hafi bakað SAS Fimmtudagur 11. ágúst 1966. — 180. Sumar í Reykjadal Þessi glaðlcgu böm. sem hér brosa til lesenda Vísis eru í sumardvöl í Reykjadal í Mos- fellssveit og er myndin var tekin voru þau að syngja há- stöfum „Það er leikur að læra“. — í Myndsjánni á bls. 3 eru fleiri myndir og frásögn frá heimsókn í Reykjadal. (Ljósm.: Bj. Bj.), Lögbanns beiðst gegn sjónvarpsmóttöku ■ Eyjum Þau tíðindi hafa gerzt í sjón- varpsmálinu í Vestmannaeyjum að Ríkisútvarpiö fór þess á leit vlð bæjarfógetann í Vestmanna eyjum í fyrradag að lögbann yrði sett gegn starfrækslu end urvarpsstöövarinnar í Vest- mannaeyjum, þar sem hún sé ólögleg. Útvarpsráð hafði fyrr samþykkt með öllum atkvæðum aö láta banna þessar sendingar þar sem þær væru ólöglegar. 1 framhaldi af þessari beiðni GÓÐ VEIÐi Ríkisútvarpsins hefur Póst og símmálastjórnin sent bæjarfó- getanum í Eyjum beiöni um að meint ólögleg tæki, þ.e. mastur og magnari, verði fjarlægð af leigulóð Póst og símamálastjórn arinnar á Stóraklifi með útburð argjörð svo fljótt sem unnt er. Lögbannsbeiöni útvarpsins ins mun byggjast á þeirri lög- fræðilegu niðurstööu að útvarp ið hafi einkarétt á sjónvarps og útvarpssendingum hér á landi. Hafa nú línumar mjög skýrzt í málinu og má búast viö aö fó geti Eyjamanna bregði skjótt við og framkvæmi lögbanniö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.