Vísir - 24.08.1966, Blaðsíða 1
TÍÐ 10. SEPT.
Hraun þeytist í loft upp úr nyrzta gígnum. Undir gígnum stendur Þorbjörn Broddason starfsmaður
Surtseyjarfélagsins. Til vinstri er jaðar nýja hraunsins.
I haust eru 25 ár liðin frá stofn
un Félags íslenzkra leikara og
verða af þvi tilci'ni hátíðahöld á
vegum félagsins hinn 10. septem-
| ber næstkomandi. Félagið var
stofnað 22. sept. 1941 og fyrsti
enn
Fiéttamaður V'isis við gossfóbvarnar i gær
Surtur er duttlungafullur og
kemur sífellt á óvart. Hafa vís-
indamenn nú allavega gefizt upp
við að spá neitt fyrir um hegð-
un hans. Áttu vísindamenn sízt
af öllu von á, að hann mundi
skjóta aftur upp kollinum í
Surtsey sjálfri eftir vikuhléið,
sem var á gosinu í sl. viku. Þeg
it gosið liætti í Jólni (eyjan fyr
>r suðvestan Surtsey) áttu vís-
!*’damenn hálft í hvoru von á,
"ð gosið væri nú alveg hætt,
enda var þetta þegar orðið eitt
mvndarlegasta gos hér á landi
—*an land bvggðist.
Samkvæmt lauslegri athugun,
sem hefur verið gerð ár efnasam-
setningu gosefnisins, hefur komið
i Ijós að olivínemagniö er lítið,
sem er einkennandi fyrir byrjun
goss, en ekkj lokin. Hefur reglan
verið sú, að með aldri gossins hef
ur olivínemagnið aukizt og var t.d.
miklu meira í Jólni, þegar hann
BLADID í DAG
BIs. 3 Myndsjá:
Viðeyjarferð.
— 4 Kvennasíða.
— 7 Kvikmyndagrein:
Fyrsta stóra söngva
mynd Disneys.
— 8 SAS stafar alvarleg
hætta af Loftleiðum
— 9 Viðtal við Hákon
Bjamason skógrækt
arstjóra.
—11 Syngjandi nunnan
kvikmynduð.
hætti að gjósa, en í hrauninu, sem
nú rennur í Surtsey. Bendir það til,
að gosið nú sé úr nýrri bergkviku
hleif og gæti þess vegna staðið
lengi enn.
Tíðindamaður Vísis brá sér út í
eyjuna í gær. Flugsýn, sem fór í
útsýnisflug umhverfis eyjuna,
sýndi þá vinsemd að lenda á flug-
vellinum á Heimaey, en vilyrði
hafði fengizt hjá Surtseyjarfélag-
inu um ferð út í Surtsey með varð
skipinu Mariu Júliu.
Kom Árni Johnsen gæzlumaður
i Eyjunni og þúsundþjalasmiöur á
móti varðskipinu á gúmmíbát og
flutti tíðindamann í land. í eyjunni
var mikið pok og sandbylur eins og
Framh. á bls. 6
formaður þess var Þorsteinn Ö.
Stephensen.
Formaður félagsins nú er Brynj
ólfur Jóhannesson. Sagði hann,
þegar Vísir hringdi til hans í morg
un, að hátíðahöldin hefðu verið
færð fram til 10. vegna þess að um
sama leyti og afmælið yrði mikil
leiklistarráðstefna í Finnlandi og
jafnframt yrði þá haldið upp á
100 ára afmæli sænska leikhússins
í Helsingfors. Sagði Brynjólfur að
dagskrá hátíðahaldanna væri ekki
endaniega ákveðin ennþá. Hingað
koma í tilefni hátíðahaldanna full
trúar allra leikarafélaga á Norður
löndum. Búast má við að mikið
verði um dýrðir á vettvangi leiklist
ar okkar þann 10. og daga þar um
kring, í leikhúsum borgarinnar og
víðar.
EKKERTLÁ TÁ SlLDARHROTUNNI
51 skip með afla síðasta sólarhring
Ekki viröist lát á sildarhrotunni
við Austurland. Síðasta sólarhring
fékk 51 skip afla samtals 10.265
Iestir. Margir bátanna eru nú í
landi eða á ferð milli hafnar og
miða svo að fá skip eru á mið-
unum til veiða. Svo virðist sem
sí’din á nyrðra svæðinu færist
heldur til suðurs og syðri gangan
hreyfist heldur til vesturs og norð-
ur, svo að með sömu þróun má bú-
ast við að göngurna mætist ein-
hvern tíma úti fyrir Austfjörðum.
Mikið hefur verið saltað á flest-
um síidarstöðum austanlands og
einnig nokkuð á Siglufirði og öðr-
um Norðurlandshöfnum. — Saltað
var í alla nótt á sumum plönum
á Raufarhöfn og annars staðar
rétt stoppað yfir blánóttina. |
Á Seyðisfirði hefur verið tiltölu- i
lega rólegt til þessa, þar eð syðra
svæðið liggur miklu betur við
syðri Austfjörðunum og af nyrðra
svæðinu er stytzt til Raufarhafnar
og Norðurlandshafna, þó er búizt
við mikilli söltun á Seyðisfirði
næstu dagana og er farið að flytja
síldarstúlkur, sem sendar voru til
Raufarhafnar, aftur til Seyðisfjarð-
ar. — Þrír bátar komu þangað
inn í morgun sökkhlaðnir og von
var á fleiri með kvöldinu.
Þessi skip tilkvnntu um afla:
Raufarhöfn:
Þórður Jónsson EA 240 lestir,
Gísli Árni RE 430, Ásbjörn RE
210, Stígandi 220, Guðbjartur
Kristján IS 210, Sigurey EA 300,
Loftur Baldvinsson EA 240. Helgi
Flóventsson ÞH 220, Helga .Guð-
mundsd. BA 225, Héðinn ÞH 320,
Gjafar E 300, Guðrún Guðieifsd.
IS 280, Elliði GK 190, Helga RE
260, Lómur KE (2 1.) 385, Anna
SI 160, Keflvíkingur KE 270, Björg-
úlfur EA 180, Örn RE 260, Dagfari
ÞF 240, Sigurbjörg OF 100. Höfr-
ungur III. AK 170 lestir.
Dalatan!”:
Bjartur NK 280 lestir Æskan SI
120, Þorbjörn II. GK 140, Amkell
SH 140, Sæfaxi II. NK 55, Hafrún
IS 170, Sveinbj. Jakobsson SH
135, Grótta RE 180, Kristbjörg VE
120, Áfni Magnússon GK 235
Hafþór RE 130, ísleifur IV VE 190
Viðey RE 170, Gullver NS 140, Jór
Garðar GK 350, Jón Finnsson GK
260, Sólfari AK 110, Ól. Frið
bertsson IS 200, Glófaxi NK 95
Ársæll Sigurðsson GK 250, Jór
Kjartansson SU 180, Guðrún Jóns-
dóttir IS 150, Engey RE 170, Þrá-
inn NK 125, Helga Björg HU 160
Kópur VE 120, Gunnar SU 180,
Hólmanes SU 170, Sigurfari AK
140 lestir.
SUMARSLA TRUN FELLUR NIÐUR
Meiri haustslútrun en s.l. úr
Kjötbirgðir eru nægilegar í
landinu og því verður engin
sumarslátrun í ár. Hefur sumar
slátrunin' venjul. hafizt á tíma
bilinu 15.-20. ágúst. Haustslátr
unin hefst í byrjun september
og er búizt við meiri slátrun en
sl. ár vegna þess hve heyskapur
hefur gengið treglega víðast
livar. Er búizt viö sæmilegum
vænleika fjárins.
Talaöi blaðið í morgun við
Jónmund Olafsson ytirkjöt-
matsmann hjá Framleiðsluráði
landbúnaðarins, sem skýrði frá
þessu. — Það er nægilegt kjöt
á markaðnum af öllum tegund
um, sagðj Jónmundpr og um
10. september hefst haustslátr
unin á stærstn stöðunum, en
eKki er reiknað með sumarsláti
un. Fólk sækist ekki lengur svo
eftir nýju kjöti á þessum tíma
árs. Frysta kjötið er það gott
og miklu betra en þegar íshús-
in voru Iélegri og aðrir geymslu
staðir kjötsins.
VISIR
56. árg. — MSðvikudagur 24. ágúst 1966. — 191. tbl.
Framkvæmdir við Búrfell:
Hliðargöngin í Sámsstaða-
múia nær háifnuS
350 maana mötuneyti tilhúið
■ ", . '<i - ■ - . * '* ' ■
.. '
'f< --.V '•*. ;
.té : jt
m*
— Framkvæmdirnar við Búr
fellsvirkjunina ganga í heild all
vel og eru um 150 manns að
störfum á staðnum nú, sagði
Ámi Snævarr, verkfræðingur,
er Vísir spurði hann frétta áf
framkvæmdunum.
— ÞaÖ er unnið sleitulaust aö
því að koma upp húsnæði fyrir
starfsliðið og er þaö óðum að
flytja í nýjar vistarverur. Ný-
lega var tekið i notkun aðal-
mötuneytið, sem getur annað
allt að 350 manns.
— Langt er komiö með að fjar
lægja lausa jarðveginn í stöðv-
arhúsgrunninum í Sámsstaða-
múla og verður byrjaö aö
sprengja fyrir grunninum áöur
en langt um liöur. Þá er byrjað
á hliöargöngunum sem liggja
þvert á aðalgöngin í Sámsstaða-
múla og eru göngin komin um
45 m. inn í fjallið, en verða rúm
lega 100 m. á lengd þegar þau
eru fullgerö.
— Uppi viö Þjórsá veröur
bráðlega farið aö vinna viö aö
koma upp bækistöð fyrir starfs
menn í námunda við stíflustæð
ið.
— Það hefur verið mikið um
feröamenn í Þjórsárdalnum í
sumar og hafa margir komið til
að sjá framkvæmdirnar viö
Búrfell, en ég vil taka þaö fram
að óheimilt er aö aka inn á at
hafnasvæðið þar sem slysa-
hætta er þar miki!, bæði af hin
um störvirku vinnuvélum og
sprengingum. En enn sem kom-
ið er er leyfilegt aö aka upp ð
Sámsstaðamúla, en þaðan er
mjög gott útsýni yfir nágrennið
og bækist.öövarnar
LEIKLISTARHÁ-