Vísir - 17.09.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 17.09.1966, Blaðsíða 1
 • • / Fossvogi verksmiðjuframleidd ? COÐAR HORFUR A SAMKOMU- LAGI UM LANDBÚNAÐARVERD Fundnr Sexmannanefndar og sáttasemjara / nótt í gær voru góðar horfur, að samkomulag mundi nást í Sexmannanefnd um verðlag landbúnaðarafurða á næsta verðlagsári. Næturfundur nefndarinnar stóð til kl. 6 um morguninn og síðan var hald inn aftur fundur kl. 2 síð- degis og aftur kl. 8.30 um kvöldið. Stóð sá fundur enn yfir er blaðið fór í prentun. Vísir náði í kvöld snöggvast tali af Gunnari Guðbjartssyni, bónda að Hjarðarfelli og for- manni Stéttarsambands bænda.' Sagði hann, að samkomulags- horfur mættu teljast frekar væn legar. Langt væri komiö að ræða um veröið til bænda og um ýmis sérákvæði í því sambandi. Hins vegar væru mörg atriði enn ó- rædd í sambandi viö vinnslu- og dreifingarkostnað og álagn- ingu í smásölu og kvaöst Gunn ar telja.að það. mundi taka lang an tíma í Sexmannanefnd að ganga frá þeim atriöum. I Sexmannanefnd eiga sæti af hálfu bænda Gunnar Guð- bjartsson, Einar Ólafsson í Lækjarhvammi og Vilhjálmur Hjálmarsson að Brekku og af hálfu neytenda Ottó Schopka ,frá Landssambandi iðnaöar- 'manna, Sæmundur Ólafsson frá Sjómannafélagi Reykjavík- ur og Torfi Ásgeirsson skrif- stofustjóri Efnahagsstofnunar- innar, skipaður af ráöherra i sæti, sem Alþýöusamband ís- lands vildi ekki taka. Ef Sex- mannanefnd kemst ekki að sam- komulagi, fer verðlagningin til yfirnefndar. Hana skipa einn fulltrdi frá hvorum aöila og oddamaður frá Hæstarétti I þetta sinn eru ekki horfur á að til slíks þurfi að koma. 56. árg. — Laugardagur 17, september 1966. — 212. tbl. Verktaki býbst til oð byggja ibúb á dag Allir þeir, sem hafa fengið út- hlutað lóðum undir fjölbýlishús í nýja Fossvogshverfinu hafa fengið send bréf frá Byggingariðjunni h.f. sem býðst til að reisa húsin þannig að sparnaður á hverja íbúð verði 50-100.000 kr. miðað við u.þ.b. 100 ferm. ibúð, sem reist er með venju legum byggingaraðferðum Hefur fyrirtækið i huga að framleiða í fjöidaframieiðslu húshlutana þann- ig að hvorki þurfi að múrhúða húsið að utan né innan. Verða veggimir tilbúnir undir málningu að utan, en fínpússun eða sandspartl að inn an. „Við treystum okkur til að fram- leiða eina slíka íbúð á dag,“ sagöi Helgi Árnason framkvæmdastjóri Byggingariöjunnar í viðtali við Vísi í gær. — Eru framkvæmdirn ar aðallega miðaðar viö 3 hæöa fjölbýlishús með 18 íbúöum i 3 stigagöngum. Talsverður áhugi virð ist vera um þetta tilboð okkar, sagði Helgi, en ekki eru allir bún ir að átta sig alveg á hvernig þetta Framhald á bls. 2. Strákag'óng: ingm spreng- í nótt? Helgi Ámason, framkvæmdastjóri Byggingariðjunnar h.f. í verksmiðjunni, í nótt átti að sprengja síðustu sprengingarnar i Strákagöngunum miklu við Siglufjörð. Þá mun 13 mánaða sprengingum ljúka, en enn- þá er talsvert verkefni eftir og göngin sjálf vart tilbúin til um- ferðar fyrr en með vorinu, að því talið er. Það hefur því verið stór stund fvrir vinnuflokkinn í göngunum, alls um 25 menn, sem hafa unnið í meira en ár á þrískiptum vöktum svo til nótt sem nýtan dag við þetta mikla verkefni, sem mun opna Siglfirðingum greiða leið til nágrannabyggðanna, en til þessa hefur Siglufjörður verið mjög af- skekktur og erfitt nieð allar sam- göngur að og frá bænum, einkum á veturna. Það v'ar 1'6. ágúst í fýrra, sem sprengingar höfust, en áöur höfðu menn sprengt þarna 30 metra lang- an „helli“ til reynslu og til að kanna jarðlagið. Göngin í heild verða 783,4 metrar. Göngin eru við- ast hvar 5 metra há, en undir lok- in urðu þau allt upp í 10 metrar á hæð, en þar var jarðlagið mýkra í sér og hrundi mikið úr því. Nú á eftir að steypa innan í göngin, þar sem þess þarf vegna hruns og vatnsleka, ekki sízt við inngangana. Unnið er að vegagerð báðum megin ganganna, en sem fyrr segir má búast við að umferð verð hleypt á einhvem tíma næsta vor. Verður Framhald á bls. 2. VÍSIR 401 hvalur kuminn á lund í Hvulfirði Nú er 401 hvalur kominn á land í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Er Vísir St\í tai viö Þórl Þorsteinsson verk stjðra við Hvalstööina í gær sagði hann, að allir hvalbátarnir, fjórir að tölu, væru á leiðinni eða þá ný- komnir með hval, samtals 7 stykki Vélin, sem prentar Vísi, er enn biluð, og því kem ur Vísir út I dag í tvennu lagi, 8 síður hvor hluti. Eru lesendur blaösins beðnir að taka síðara blað ið (sem byrjar á myndsjá frá Iðnþingi) og leggja það inn í opnuna á aðal blaðinu, þannig að úr verði heilt 16 síðna blað eins og venjulega. FRJÁLST VAL NÁMSGREINA VID VOGASKÓLA / VETUR ? Talað v/'ð Helga Þorláksson skólastjóra Aldrei hefur verið eins margt um manninn við innritun í Voga- skólann og í gær, en þá var al- mennur innritunardagur nemenda í gagnfræðadeiidir skóla borgar- innar. Stafar þessi mikla aðsókn vafalítið af því að um það hefur verið rætt að taka upp, í tilrauna- skyni, nýja kennsluhætti við skól- ann í vetur í framhaldsdeildum gagnfræðastigsins. Hefur skóla- stjóri Helgi Þorláksson unnið að til lögu um frjálst val nemenda á námsgreinum tii gagnfræðaprófs, sem Fræðsluráð hefur að sínu leyti samþykkt og sömuleiðis borgarráð. Er aðeins beðið samþykkis mennta- málaráðherra til þess að af tilraun inni verði. I viðtali við blaðið í gær sagði skólastjóri, að ef tilraunin kæm- ist til framkvæmda þá kostaöi hún mikla vinnu. — í vor, sagði Helgi, voru nem- endur látnir svara því hvort þeir hygðust leggja stund á fram- haldsnám að skyldunámi loknu og urðu 100% heimtur þar á, að riem endur aétluðu sér í framhaldsnám. pr nú allt yfirfullt í skólanum, 120 sóttu um landsprófsdeild, se'm veröur skipt i fjórar bekkjardeild- ir og verður það dálítið glæfra- legt að hafa 30 nemendur í bekk. í gagnfræðastiginu verða fimm deildir valfrjálsar og hafa borist á milli 140 og 150 umsóknir um þær. Til gagnfræöaprófs eru 120 um- sóknir. Ef tilraunin um valgrein- amar kemst í framkvæmd veröur um valfrelsi að ræða til gagn- fræöaprófsins þar sem nemendur, sem eiga aö gangast undir það að vöri hafa eindregiö óskað þess eft- ir könnun, sem var framkvæmd s.l. vor og verður því nýja kerfið látið gilda um alla. Eftir nýja kerfiríu veröur um yf- ir 20 námsgreinar að velja, til prófs. en ekki er búið að vinna úr umsóknunum ennþá þannig aö ekki er vitað hvaða námsgreinar verða kenndar. Við þessa breyt- ingu verður námsgreinum fjölgað. Verða þau skilyrði sett nemendum aö samtals tímafiöldi þeirra á viku verði 30—36. Að einhverju leyti munum viö hverfa frá þeirri til- högun prófa, sem hingað til hef- ur tíðkazt. Mínar tillögur byggjast á því sem ég hef kynnt mér erlendis en ég hef lagaö þær að aðstæð- unum héma. Við höfum ekki að- stööu t. d. til þess að hafa 6—8 nemendur í flokki, sem yröi of fjárfrekt og er því ekki víst að kennt verði í öllum námsgreinun- um, sem óskað er eftir. Að öðru leyti er nýja kerfið líkt því sem hefur nú verið lögboðið í Svíþjóð í tólf ár og hefur ríkt i Banda- rfkjunum um margra ára skeið og t.d. í Danmörku í nokkur ár. Þetta er allt saman ævintýri eins og er — óskadraumur, en eitthvað þessu líkt kemur fyrr eða síðar. Tilraunaskólar sjá um þessa hluti erlendis en hér verða skól- amir, sem fyrir hendi eru að nægja og verður þá þröngur húsa- kostur til baga. Að lokum sagöi Helgi að fundir hefðu veriö fialdnir með kennurum foreldrum og nemendum um mál- ið og það rætt fram og aftur og hefðu allir verið nýju skipuninni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.