Vísir - 16.12.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 16.12.1966, Blaðsíða 2
V1 SIR . Föstudagur 16. desember 1966. Sundknattleiks- * menn Armanns Sund';nattleiksmenn Ármanns eru sem fyrr illsigranlegir og und- anfarin 26 ,ár eöa svo hefur Hö Ármanns í þessari grein vart veriö 1 sigrað. Ármannsliölö, allmikiö breytt, sigraði KR í úrslitalelk haust- 1 mótsins, eins og lýst var í blaðinu í gær. Myndin er af liðinu. Sá, sem heldur á bikarnum heitir Pétur Kristjánsson og er helzta skytta llðsins. Jólavaka í Hveradölum Á annan dag jóla mun hefjast jóiavaka í skíðaskálanum í Hveradölum. Gestgjafinn í Hveradölum, Óli J. Ólason og kona hans sögöu blaðamönnum fíá væntanlegri skíðavöku, sem hefur veriö fastur liður undan- farin ár í starfseminni. Vakan stendur í 6 sólarhringa frá 2. í jólum fram á nýársdag og verð- ur skíðabrekkan góða fyrir ofan skálann vitanlega óspart notuð, en á kvöldin verða kvöldvökur, horft á sjónvarp eða skíðabrekk an notuð því hún er upplýst og mjög skemmtilegt að renna sér þar eftir að dimma tekur. Verð fyrir slíka gistingu er 2400 krónur á manninn ef her- bergi er tekið og eru máltíðir innifaldar og skiöakennsla, sem verður á staðnum, en 1800 krónur ef menn velja svefnpoka pláss. Einstakar nætur kosta 350 og 450 krónur, en 50 krón- um meira á gamlárskvöld og nýársnótt, en þá verður sér- lega vandað til matar og skemmtiatriöa. I janúarbyrjun hefst 3ja daga námskeið fyrir unglinga á skíð- um og kostar pokaplássiö á- samt mat 600 krónur fyrir 8— 11 ára, 750 krónur fyrir 12— 15 ára og 900 krónur fyrir 16 ára og eldri. Haraldur Pálsson mun veröa kennari, en hann hefur náð frábærum árangri meö unga skíðamenn, og nær- tækasta dæmið eru synir hans. Á pálmasunnudag verður hjónakeppni haldin í Hveradöl- um en mjög skemmtileg reynsla fékkst af þeirri keppni í fyrra þrátt fyrir óhagstætt veöur. Verður nánar sagt frá þeirri keppni síðar. Þá kvað Óli það hugmynd þeirra í skálanum að efna til skiðagöngu með almennri þátt- töku frá Kambabrún að Skíða- skálanum í Hveradölum ein- hvem tíma í vetur og vonaðist íil að sem flestir mættu, enda er hér ekki um beina keppni aö ræða heldur svipað form af „keppni“ og Sviar not t.d. og kalla Vasagönguna, en þátttak- endur skipta oft þúsundum. Þau hjónin í Hveradölum hafa nú starfað i 7 ár við veitinga- reksturinn í Hveradölum, enda þótt hér sé um skíðahótel að ræða hafa sumrin reynzt\vbera uppi reksturinn, af vetrunum hefur orðið halli, sem sumar- gestir borga uþp, svo segja má aö hlutunum sé snúið viö. Kvaðst Óli vonast til að geta eflt skiðastarfið í Hveradölum enn meir, og gera þama skíða- miðstöð fyrir Reykjavík. Þama ætti líka eldri skíöamenn, sem hættir eru félagsmálum, aö koma með fjölskyldur sinar og renna sér á skíðum. Þarna gæti lika starfsfólk fyrirtækja komiö og rennt sér og „slappaö af“ eftir önn dags- ins og það tíðkaðist raunar og færi vaxandi. Skólar koma og mjög mikið i Hveradali, en vilja helzt koma of mikið sömu dag- ana, stundum væru 20—30 bílar á hlaöinu þegar skólamir kæmu allir í einum hnapp. Kennarar, sem fæm með bömunum væru og nokkuð áhugalitlir sumir hverjir, kæmu prúðbúnir upp í skíðaskála, settust inn í skála og færu að Ieiðrétta stíla! Yngri menn í starfinu væru mun á- hugameiri og hefðu betri aga á börnunum. Að lokum sagði Óli frá því aö mjög bæri á auknum sleða- ferðum í brekkunum. Hér mundi eitthvaö verða gert til að koma til móts við sleðafólk- Ið, sem augsýnilega á ekki sam- leið með skíðafólki vegna slysa- hættu. Ungu mennirnir keppa i badminton: ± Stuðlað að því að fá ungt fólk í badminton hjá TBR Það sem ekki hvað sízt hefur háð badmintoníþrótt inni hér á landi til þessa sem keppnisgrein, er það, hve fáir unglingar hafa lað azt að íþróttinni Þetta hef- ur ekki stafað af því að bad minton sé óvinsæl íþrótta grein hjá æskunni, síður en svo, aðeins það, að það kostar talsverða peninga að snara út fyrir leigu á tíma fyrir veturinn og auk þess eru badmintonkúlur fáheyrilega dýrar vegna j einkennilegrar afstöðu toll j yfirvalda gagnvart íþrótt- unum, — telja íþróttir ein- hvers konar lúxus eða tíma eyðslu, sem frekar ber að spoma á móti en hitt. Tennis og badmintonfélag Reykjavíkur, TBR, hefur komið auga á þetta fyrir löngu og nú er félagiö í óðaönn að „ala upp“ keppnismenn framtíðarinnar, og í þessu skyni hefur félagið gefiö yngstu leikmönnum kost á ókeypis tímum og boltavandamálið er leyst þannig, að þeir yngri fá bolta, sem reyndir keppnismenn hafa gefið á bátinn, en venjulega eru þessar kúlur í ágætu standi og duga strákunum vel. í yngsta flokki TBR hafa 18 piltar æft í vetur, en sá flokkur er fyrir 14 ára og yngri, næsti flokkur er flokkur yngri en 16 ára og elzti flokkur er flokkur 18 ára og yngri, en miðað er við 1. októ- ber í hverjum flokki. • Á morgun verður haldið mót fyrir ungu badmintonleikarana okkar í Valshúsinu og munu auk TBR-manna leika þama piltar úr KR og frá Akranesi og er ekki vafi á aö hér verður um skemmtilega keppni að ræða. Keppnin hefst kl. 14. — Standard. Liége áfram í 3. umferð Vann a-þýzkt lið á einu „útimarki" @ Það er ekki aðeins Valur, sem má þola tap gegn belgísku meisturunum Standard frá Liege í Evrópubikarkeppni bikarmeistara. Hið sterka lið Chemie Leipzig taþaði í fyrrakvöld fyrir liðinu með 0:1 í Liege, en fyrri leiknum Iauk með 2:1 fyrir Leipzigliðið. Reglurnar eru þannig, að mörk pem lið skorar úti teljast tvöföld, þ.e. að belgíska liðið heldur áfram á markinu, sem það skoraði í Leip- zig. En sem sagt, Standard Liege heldur áfram í 3. umferð keppninnar. @ Annað lið, sem við þekkjum úr bikarkeppnum hér heima er Liverpool, og í fyrradag gerða það jafntefli á heimavelli gegn hollenzka liðinu Ajax með 2:2. Ajax heldur því áfram í keppninni, því fyrri leik liðanna lauk með sigri Ajax 5:1. - .Æim IEÁlil ,*n>.. XS7.SSÍI2ÍÍZ-. . I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.