Vísir - 14.01.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 14.01.1967, Blaðsíða 2
2 V í S I R . Laugardagur 14. janúar 1967. Kolbeinn „íþróttamaður ársins" „Ég vonast til að standa undir þessu,“ sagði hinn ungi körfuknattleiksmaður Kolbeinn Pálsson úr KR í gærdag, þegar hann var kjörinn „íþróttamaður árs- ins 1966.“ Kolbeinn stend- ur eflaust undir nafnbót- inni, því hann er mikið til fyrirmyndar öðru íþrótta- fólki, og sem fyrirliði lands liðsins í körfuknattleik hef ur hann sýnt og sannað á- gæti sitt. Kolbeinn varö langhæstur að stig- 63 stig, og var nær einróma kjör- um í keppninni um titilinn, fékkj inn af íþróttafréttamönnum blaða,' útvarps og sjónvarps. Sigurður Sigurösson, form. Sam- taka íþróttafréttamanna, afhenti verðlaunin í gærdag á Hótel Sögu. Herbergi 513 hafði verið undirlagt, sjónvarpsmenn beindu ljósum að borðinu þar sem íþróttafólk ársins sat við kaffiborð ásamt blaðamönn um. Siguröur minntist fyrst Benedikts G. Waage, sem lézt fyrir skömmu og minntist aðallega á Benedikt og samskipti hans við íþróttablaða- menn, sem voru bæði löng og góð, því Benedikt lagði sig mjög fram um að vanda íþróttamál hér og hafði mikii áhrif í þá átt. Minntust menn Benedikts heitins með því að rísa úr sætum. Sigurður Sigurðsson kvaðst hafa búizt við heldur sundurleitum at- kvæðaseðlum að þessu sinni, enda hefði íþróttaárið verið heldur dauf- legt. Nöfnin sem bárust urðu þó ekki nema 20 talsins, og var meiri- hluti þeirra 10, sem eftir urðu, á öllum atkvæðaseðlunum. Mjög at- hyglisvert kvað Sigurður, að meiri- hluti þeirra 10 sem skipa efstu sæt- in, hefur ekki áður komizt á listann, og má því segja að hann sé að mestu skipaður íþróttafólki framtíð arinnar. Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, á- varpaði íþróttafólkið og kvaðst fagna því að nú skvldu fleiri valdir en áður úr hópi flokkaíþróttanna. Að vísu væri val úr þeirra hópi vandasamara, en mjög mikilvæg viö urkenning. „Við væntum mikils af þessum hópi“, sagði Gísli Halldórs- son, „því framundan eru stór verk- efni að vinna aö“. Það var myndarlegur hópur í- þróttafólks, sem stillti sér upp fyr- ir ljósmyndaraskarann eftir verð- launaafhendinguna, hópur sem sann arlega er íþróttum sínum trúr. Það vakti athygli mína, að þegar þjón- ar báru fram tóbak á bakka, gekk aðeins einn einasti vindill út hjá íþróttafólkinu, — aðeins einn reykti og verður þaö að teljast at- hyglisvert, ekki sízt vegna þess að íþróttamenn eru stöðugt undir mæli keri varðandi reglusemi og oft vændir um það að vera óreglu- samir. Úrslitin í atkvæðagreiðslunni urðu sem hér segir: 1. Kolbeinn Pálsson, KR, körfukn., 63 stig. 2. Sigurður Dagsson, Val, knattsp., 45 stig. 3. Guðmundur Gíslason, ÍR, sund, 32 stig. 4. Ólafur Guðmundsson, KR, frj. íþr., 30 stig. 5. Geir Hallsteinsson, FH, handkn., 26 stig. 6. Gunnl. Hjálmarsson, Fram, handkn., 20 stig. 7.—8. Hermann Gunnarsson, Val, knattsp. og handkn., 19 stig. 7.—8. Jón Þ. Ólafsson, ÍR, frj. íþr., 19 stig. 9. Árdís Þórðardóttir, Sigluf., skíði, 18 stig. 10. Lilja Sigurðardóttir, HSÞ, frj. fþr., 12 stig. 11. Kjartan Guðjónsson, ÍR, frj. íþr. 9 stig, 12. Hrafnhildur Guðmundsd. ÍR, sund, 8 stig, 13. Kristinn Bene- diktsson, Hnífsdal, skíöi, 7 stig, 14. —15. Ármann J. Lárusson, Breiðabl. glíma, 6 stig, Ingólfur Óskarsson, Fram, 6 stig, 16,—17. Davíð Val- garðsson, Keflavík, sund, 5 stig, Jón Ámason, TBR, badminton, 5 stig, 18. Valbjörn Þorláksson, KR, frj. íþr., 3 stig, 19.—20. Ámi Njálsson, Val, knattsp., 1 stig og Magnús Guð mundsson, Akureyri, 1 stig. Frá afhendingunni: Ólafur, Guðmundur, Gunnlaugur, Geir, Kolbeinn, Hermann, Sigurður og Árdís. „Ekki einstaklingurinn — befdur liðið í heiU... segir iþróttamadur ársins, Kol- beinn Pálsson úr KR anda í krlngum sig. Þaö er liðií í heild, en ekki einstaklingur inn, sem gildir í flokkaíþróttun um“. — jbp. i \ I i j 1 * 1 i íþróttamaður ársins 1966, fyrirl. körfuknatt- leikslandsliðsins, heitir Kolbeinn Pálsson og er í KR, eins og flestir vita. Kolbeinn var sá maður- inn, sem stóð með bolt- ann í höndunum þegar aðeins voru eftir örfáar sekúndur til leiksloka í landsleiknum við Dani í Norðurl.keppninni og átti tvö vítaköst. Til að • sigra Dani varð fyrirlið inn að hitta í báðum köstum. „Ég varð að hitta,“ sagði Kol belnn í gærdag, þegar við rædd um við hann um ■ mlnnisstæöa leiki á 8 ára ferli hans í körfu- knatlleik. Og hann hitti, tug- þúsund dönskum sjónvarps- áhorfendum til hinnar mestu hrellingar, og Danir urðu því af sigrinum í það skiptið. Koibeinn er 21 árs gamail, kvæntur Bryndísi Stefánsdóttur og eiga þau tvö börn, dreng og stúlku. Kona hans var reyndar einnig f körfuknattlelk hjá ÍR, en kynni þeirra urðu ekki til fyrir tilstuðlan íþróttanna. Þau búa sem stcndur á Framnesvegi 7, en innan skamms flytja þau í nýja íbúð, sem þau hafa byggt í Árbæjarhverfi. Þar mun hin mikla stytta, sem fylgir nafnbót- Inni „íþróttamaður ársins“ fá stærri og veglegri húsakynni og veröur eflaust á heiðursstaö á heimiii ungu hjónanna. Kolbeinn kveöst hafa byrjaö f körfuknattleik 14 ára gamall, en um sama leyti byrjaði hann í handknattleik. Minnast margir hans úr handknattlcik mjög ungs að árum með KR-liðinu. Hann var þá yngsti og minnsti maður vallarins, en gerði oft stórkostlegustu hluti. Síðan lagði hann handknattleik á hilluna og er nú óskiptur í körfuknatt- leik. Kolbeinn sagðl að lokum: „í flokkaíþróttum er annars ekki . hægt með sanni að tala úm ein stakiinginn, — það nær enginn langt nema hafa sannan liðs- f Sigurður Sigurðsson afhendir Kolbeini hina veglegu styttu. Fremst á myndlnni, Alfreð Þorsteinsson (Tíminn) og Öm Eiðsson (Alþýðublaðið).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.