Vísir - 21.03.1967, Blaðsíða 2
VI S I R . Þriðjudagur 21. marz 1967.
x ..............•••••••••' ■ "
Vöm snúið I sókn á mfingu ÍR-inganna.
FLEIRIFÉLÖG ÞURFA AÐ KFPPA
í KÖRFUKNA TTLEIK
eru
hjá
Rætt viö iR-ingana í körfuknattleik, sem
unnu KR á sunnudaginn í 1. deild
Liðið sem viö heimsækjum að
þessu sinni er Í.R., hið gamla og
rótgróna félag, sem alið hefur upp
marga af okkar fræknustu íþrótta-
mönnum og nægir aö nefna nöfn
i z Vilhjálm Einarsson,
Clausenbræður, Guðmund Gísla-
son og Jón Þ. Ólafsson.
Körfuknattleiksdeild var stofnuð
fyrir því, hversu lengi menn úr
hinum félögunum nenntu að arka
inn að Hálogalandi, horfa á eða
taka þátt i því, með sínu liöi að
skora 20—30 stig í leik og rölta
sér í baö eftir leikinn með níð-
þunga byrði 80—90 stiga á herð-
unum.
En allt tekur einhvem tímann
innan félagsins árið 1951 og stóðu enda og svo var einnig hér.
að því nokkrir ungir menn, sem
. höfðu íbróttinnhi hjá Ed-
ward Mixon, sem fvrir löngú er
oröinn þekktur hér á landi fyrir
nuddstofu sína. Hann var einnig
fyrsti þjálfari deiidarinnar.
Þegar á bernskuskeiði sínu
deildin til sín taka í körfuknatt-
leiksmótum hér á landi,; og. urðu
ÍR-ingar íslandsmeistarar , árið
1954, ’55 og 56, en ’57 og ’58 sigr-
aði Í.K.F. og ’59 Í.S. Eftir það
hófst óslitin 5 ára sigurganga liðs-
ins, bæði i Reykjavíkur- og íslands-; gengni
mótum, og 1964 tóku þeir, fyrstir.
islenzkra liða, þátt í Evrópubikar-!
keppni í körfuknattleik og komust'
þeir í II. umferð í þeirri keppni. j
Hér var aðeins talin upp sigur- j
ganga meistaraflokks, en hlutur1
yngri flokkanna svo og kvenna-
flokks var ekki minni, og ófá eru
þau mótin á undanfömum áratug
þar sem Í.R.-ingar hafa' hreppt
bróöurpartinn ^f öllum verölaun-
um sem keppt hefur veriö um.
Slík sigurganga á sér áreiðanlega
fá dæmi í íþróttum á islandi og
þótt víðar væri leitað. Þaö var
jafnvel rætt um það manna á
milli að ef þessu héldi áfram,
myndi íþróttin leggjast niður hér,
þar sem takmörk hlytu aö vera
Birgi Jakobssyni, Tómasi Zoega, og
efnilegum ungum piltum eins og
Skúla Jóhannssyni og Pétrj Böðv- j
arssyni. Þessir allir mynda svo j
kjamann í sterku og heilsteyptu
liði, sem gefur sig hvergi fyrr en
í fulla hnefana.
Ekki má gleyma kvennaflokki
félagsins, en stúlkumar þar eru
Islandsmeistarar frá þvf i fyrra, og
mjög líklegar til að sigra aftur nú.
Einnig hafa Í.R.-ingar teflt fram í
þessu móti einum efnilegasta 4.
fl. sem sézt hefur hér á landi, og
eru þeir vissulega ekki á flæðiskeri
staddir í framtíðinni ef þeir piltar
halda áfram á sömu braut.
Margir bráðefnilegir piltar komu
fram í hinum félögunum og einok-
un meistaraflokks á Reykjavíkur-
og íslandsbikurum leið undir lok.
Síðastliðin 2 ár hafa verið erfið
ár hjá Í.R. eða síðan Þorsteinn
j Hfillgrímsson 'fór utan til náms.
Þá hafði einriig skömmu áður hætt
'teppni einn bezti körfuknattleiks-
maöur landsins frá upphafi, Guð-
múndur Þorsteinvistpn, en hann
og Þorsteinn voru þeir menn, sem
f.R. getur einna helzt þakkað vel-
sína á þessum árum, og i
varö vissulega mikið skarð fyrir!
skildi við brottför þeirra, enda I
V«rí það fljótt í Ijós f leikjum Í.R.- j
liðsins árin á eftir. Allir vissu þó
að hérna var aðeins um að ræða
millibilsástand hjá liðinu, sem
eðlilega hlaut að skapast viö þá
gífurlegu breytingu, sem gera þurfti;
á leik Iiðsins, enda kom þaö í ljós
s.l. haust að liðið er að finna sitt i
gamla form aftur, og í yfirstand-j
mdi fsl.móti hefur það ekki tap- j
að leik, og er ekki laust viö það,
að bikarinn sé farinn ókyrrast í
seti sínu í K.R.-heimilinu.
ÍR-Iiðið í dag eF byggt upp á
skemmtilegan hátt, af reyndum
leikmönnum eins og Agnari Frið-
rikssvni, Hólmsteini Sigurðssyni,
Æfingin, sem við komum á er
síðasta æfing fyrir leikinn viö K.R.
semi fór fram á sunnudaginn og
urðum viö þvi að bíða, þar til
æfingu var lokið, því hver mínúta
er dýrmæt. Eftir æfinguna náði ég
tali af þeim 2 mönnum, sem verið
hafa mennirnir að baki sigrum
Í.R.-inga undanfarin ár, þeim Einari
Ólafssyni, sem byggt hefur upp j
alla unglingaþjálfun félagsins og •
þjálfar nú mfl., og Helga Jóhanns-;
syni landsliðsþjálfara og þjálfara |
Í.R.-liðsins um árabil, en er nú,!
að eigin sögn, Einari aðeins til aö-
stoðar. Ekki dónaleg aðstoð það!
Við biðjum þá að segja okkur:
lítið eitt frá starfsemi deildarinnar ’
og framtíðarhorfum, og verður1
Einar fyrir svörum:
„Við æfum 3 sinnum í viku, hér
í höllinni, Hálogalandi og Réttar-:
holtsskólanum og eru æfingar vel
sóttar. Einnig eru fjölmargar
æfingar i Í.R.-húsinu fyrir yngri j
flokkana, eins og veriö hefur
undanfarin ár, og láta yngstu pilt-
arnir sig sjaldan vanta þótt langt
sé aö fara og ýmislegt sé aö veðri.
Nú, framtíöin virðist mér vera
björt og höfum við fullan hug á ;
því að endurheimta sem fyrst ís- j
landsmeistaratitilinn. Hvað ein-
staka flokkum viðkemur þá
rrijög efnilegir. piltar I 4. fl.
okkur og reyndar 3. fl. líka, 2. fl.
aftur á móti er ekki eins sterkur,
of margir piltar í þeim aldursflokki
hafa hætt æfingum. En aö sjálf-
sögðu er þetta aðeins millibils-
ástand, sem alltaf skýtur upp koll-
inum ööru hverju hjá öllum íþrótta
félögum".
— Hverju þakkig þiö helzt hina
miklu velgengni Í.R. undanfarin ár?
„Við höfum veriö mjög heppnir
með piltana. Þeir hafa stundað æf-
ingar sínar af kostgæfni og alúö
og ávallt ríkt mjög góöur andi inn-
an deildarinnar. Einnig skildist
okkur fljótt að þjálfun og upp-
bygging yngri flokka er grundvall-
arskilyrði fyrir vexti og viðgangi
sérhvers félags. Þetta hvort
tveggja ásamt góðri stjórn deildar-
innar svo og fórnfýsi ýmissa eldri
leikmanna við þjálfun yngrj flokka
hefur að okkar áliti átt mestan
þáttinn f þessari velgengni deild-
arinnar“.
Reykjavík
vann
Reykjavík vann úrvalsliö
Keflavíkurflugvallar í gærkvöldi
með 56—49 í körfuknattleik, en
í hálfleik var staðan 29—24
fyrir Reykjavík. Leikurinn er
liður í keppni liöanna um veg-
legan grip, sem James Penfield
hefur gefið.
Fyrsta leiknum, sem fram fór
í Reykjavík lauk meö sigri
Reykjavíkur 54:49, ep síðan
hafa þrír leikir farið fram á
Vellinum, 66:65 fyrir Vallarlið-
ið, 47:45 fyrir Vallarliöið og
loks núna 56:49 fyrir Reykjavík.
Einn leikur er eftir, það verður
úrslitaleikurinn í keppninni og
fer fram í Laugardalshöllinni.
Eru liðin hnífjöfn eins og sjá
má, stigatalan samtals 220:211
fyrir Reykjavík.
Hérna skýtur Helgi því inn í aö
uppbygging og þjálfun yngri pilt-
anna sé allt verk eins manns,
Einars Ólafssonar, og verði það
aldrei nógsamlega þakkaö.
Við erum alveg sammála Helga,
því allir þeit, sem með körfuknatt-
leik fylgjast vita um hiö geysimikla
og óeigingjarna starf sem Einar
Ólafsson hefur innt af hendi fýrir
f.R. og reyndar körfuknattleikinn
f heild.
— Eru ekki einhver heilræði sem
þið gætuö gefið þjálfurum hinna fé-
laganna, án þess þó að opinbera
nokkur félagsleg hernaðarleyndar-
mál?
„Ja, miklu máli skiptir að taka
unglingana eins unga og hægt er
og kenna þeim undirstöðuatriöin.
Því yngri sem þeir eru þeim mun
móttækilegir eru þeir. Eins verður
að gæta þess vel við þjálfun ung-
linga, að þreyta þá ekki um of á
hverju atriði fyrir sig, heldur hafa
fjölbreytni í æfingunni. í þessu
sambandi viljum við ráöleggja
hverjum þjálfara að undirbúa sig
sem bezt undir sérhverja æfingu,
alveg eins og væri um að ræða
kennslu í bóklegum fræðum. Tækni
merki K.K.Í. eru mjög gagnleg og
gott aö flétta þau inn í kennslu,
en þó eru þau helzt til tímafrek,
þar sem mikla leikni þarf til t.d. að
ná gullmerkinu“.
,,AÖ lokum“, bætir svo Einar við.
„álít ég að körfuknattleikurinn nái
Framh. á bls. 7
Einar Ólafsson ræöir við Birgi Jakobsson og Jón Jónasson á æfing-
unni.