Vísir - 05.05.1967, Blaðsíða 1
VISIR
57. árg. — Föstudagur 5. mal 1967. — 100. tbl.
FURÐUSKEPNA VEIÐIST
VIÐ VESTMANNAEYJAR
Ekki óliklegt að um sé að ræða svo-
kallaðan Blámann
Óvenjumikil fannkoma var í nágrenni borgarinnar í gær og lentu bifreiðaeigendur í vandræðum af þeim sökum. En eins og myndin gefur
tíl kynna voru það fleiri sem f vandræðum lentu og hér sjáum við veghefil draga nafna sinn upp á veg, eftir að sá síðamefndi hafði
lent útfyrir, vegna þess hve erfitt var að greina vegarkantinn.
Stórvirkjun í Laxá í ASaldal
48 þúsund kilóv'ótt, eða fjórum sinnum stærri en st'óðvarnar sem nú
veita Norðurlandi eystra rafmagn — Fá Austfirðingar rafmagn
úr þessari nýju stóð ?
Á fundi stjómar Laxárvirkjunar
í gær var birt bréf frá raforkumála-
ráðherra, þar sem heimiluð er við-
bótarvirkjun við Laxá I S-Þingeyj-
arsýslu, sem veröur 48 þús. kw.
fullgerð, en það er nærri fjórum
sinnum stærri virkjun en þær tvær
virkjanir sem fyrir eru í Laxá, 17
hundruð kw. stöðin frá 1939 og 12
þúsund og fimmhundruð kw. stöö,
sem lokið var við 1944, en frá þess
um stöðvum hefur Norðurland
eystra, Eyjafjarðar- og S-Þing-
eyjarsýsla fengið allt sitt rafmagn
til þessa.
Laxárnefnd sem skipuð var f
fyrra til þess að athuga hvort hent-
ugt sé að Austurland fái rafmagn
frá Laxárvirkjun og Norðurlands-
svæðið verði sameinað Austfjarða-
svæðinu, iýkur störfum næstu daga,
en niðurstöður nefndarinnar munu
trúlega sk:pta miklu máli, varðandi
allan gang virkjunarinnar og hversu
framkvæmdum verður hraðað. Svo
sem kunnugt er skortir Austurland
mjög rafmagn, einkum yfir sumar-
tímann, þegar síldarvinnsla er í full
um gangi og hefur þetta skapað
vandræðaástand á Austfjörðum und
anfarin sumur.
Undanfarin tvö ár .hafa farið
fram mjög ýtarlegar athuganir á
fyrirhuguðum virkjunarstað, en
hann verður í Laxárgljúfrum milli
Framhald á bls. 10.
Sannkölluð furðuskepna
veiddist við Vestmannaeyjar í
gær. Dró áhöfn vélbátsins Heim
is skepnuna á fimmtíu faðma
dýpi vestan Eyja.
Talaði blaðið í morgun við
Friðrik Jesson forstöðumann
sjófiskasafnsins í Eyjum, sem
sagði m. a. „Fiskur er þetta
varla, ábyggilega risamarglytta,
og er nú búið að koma henni
í geymslu í frystihúsi“. Lýsti
hann skepnunni á þann veg, að
hún væri hringlaga, flöt eða eins
og diskur í laginu. Niður úr
henni gengju fjórir langir arm-
ar, sem Friðrik taldi að myndu
mælast 5 — 6 metrar að lepgd.
Neðan á skepnunni voru fjögur
hringlaga göt, sem voru reglu-
lega á kvið skepnunnar. Fyrst
Framhald á bls 10
Forsefi íslands
komfnn heim ;
„Hciisan er góð. Þetta gekk /
| allt samkvæmt beztu vonum og >1
i óskum. Þó segja læknarnir, að J
þetta taki alltaf sinn tíma og því 4
mun nokkur tími líða enn áður J
en ég hef náð mér aö fullu. En ,|
ég er á góðum batavegi“, sagði ’
forseti fslands, hr. Ásgeir Ás-
geirsson, þegar fréttamaður Vis-
is innti hann eftir heilsu hans
við komu hans hingað heim í
fyrrakvöld.
Fjöldi manns var viðstaddur (
til bess að taka á móti forset- J
anum, begar hann kom með 4
flugvél F.f. frá Kaupmannahöfn, J
að lokinni dvöl simii á sjúkra-
húsi þar. Flugvélin lenti rétt
fyrir miðnætti. Auk nánustu
vina og ættingja, sem þarna
voru mættir, voru þarna staddir
handhafar forsetavaldsins í fjar- .
veru forseta, Bjami Benedikts- j
son, forsætisráðherra, Birgir'
Finnsson, forseti sameinaðs f
þings ,0" Gizur Bergsteinsson, 5
forseti Hæstaréttar.
Aftur byrjaður á Islend-
ingasogunum
segir ambassador Bandaríkjanna, Kari Fritjof Rolvaag
»Með norskum framburöi, — Rolvaag“
— Ég kynntist íslend-
ingasögunum og Eddun-
um þegar á barnsaldri á
heimili föður míns, Ole
Rolvaag, sem var pró-
fessor í norsku og norsk-
um bókmenntum í North
field í Minnesota. Það er
orðið nokkuð langt síð-
an, en nú er ég að byrja
að rifja þær upp aftur.
Ég er búinn að fá mér
þýðingar af tveimur bók
um og hef gluggað í þær
undanfarið.
Blaðamaður Vísis átti í morg-
un tal við Karl Fritjof Rolvaag,
hinn nýja ambassador Banda-
ríkjanna á fslandi. Talið sner-
ist í upphafi að kynnum hans
af íslandi. Framhald á bls. 10.