Vísir - 13.05.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 13.05.1967, Blaðsíða 1
Mölbrutu þrjár hurðir og notuðu logsuðutæki á peningaskápinn 57. árg. — Laugardagur 13. maí 1967. — 107. tbl. Brotizt var inn á skrifstofur Stálumbúða hf. við Kleppsveg í fyrrinótt og þar brotnar 3 hurð ir og skorið gat á peninga- skáp fyrirtækisins með logsuðu tækjum. Ekkert höfðu þjófarnir upp úr krafsinu annað en einn sjónauka. Þegar starfsfólkið mætti til vinnu sinnar í gærmorgun, blöstu við verksummerki eft- ir innbrotið. Þriár hurðir höfðu verið mölbrotnar um nóttina og peningaskápurinn hafði verið eyðilagður. Þjófunum eða þjófn um hafði með einhverjum FÁGÆTAR BÆKUR FUNDUST Á DÓMKIRKJUL OFTINU við flutninga Hins islenzka bibliufélags — Elzta prentaða Biblia Bibliufélagsins — Viðeyjarprent frá 1825 Þessa dagana er Hið íslenzka biblíufélag að flytja inn í nýtt húsnæði á neðstu hæö í norðurálmu turns Hallgrímskirkju og fær þar allrúmgott húsnæði fyrir skrifstofu. í flutningunum komu í leitimar meðal ýmissa hluta Biblíufélagsins, sem geymdir voru á Dómkirkjuloftinu, leifar af fyrstu bókinni, sem Biblíufélagið lét prenta. Er það endurskoðuð útgáfa Nýja testamentisins, sem prentuð var í Viðey 1825 og er nú mjög fágæt. Ólafur Ölafsson á skrifstofu Biblíúfélagsins í Hallgrimskirkju. ■ ) Urskurður yfirkjörstjórnar Ólafur Ólafsson kristniboði skýrði blaðinu frá því, að þessi útgáfa Nýja testamentisins væri mjög vönduð endurskoðuö út- gáfa gerð af Geir biskup Vída- lín og Sveinbirni Egilssyni á- samt fleiri ágætum mönnum. Bókin væri í tveim bindum. Hefði bókin legiö í örkum á Dómkirkjuloftinu í svo langan tíma, aö nú væru þessar arkir ákaflega illa farnar og væri ver- ið að vinna úr þeim það sem hægt væri aö hreinsa og láta binda inn. Mundu fást með því nokkur eintök bókarinnar, sem myndu koma sér ákaflega vel fyrir Biblíufélagið. Bókin væri fróðleg fyrir sakir þeirra manna, sem hefðu lagt hönd á gerö hennar og ákaflega fágæt. Skýrði Ólafur einnig frá1 starfsemi Biblíufélagsins, sem nú er 150 ára og hefur haft bækistöð á biskupsskrifstofu til þessa. Eins og kunnugt er mið- ast starfsemi Biblíufélagsins að méstu við útgáfu Bibliunnar, en aö sögn Ólafs er sú útgáfustarf- semi mjög dýr, þar sem ávallt er leitazt við að hafa Biblíuna eins ódýra í útsölu og mögulegt væri. Meðal annars þess vegna heföi veriö gripið til þess ráðs að hafa letrið smátt til að minnka kostnaðinn við útgáfu. Núna hefur Biblíufélagið sölu Biblíunnar á eigin vegum í stað Framhald á bls. 10 rt r -í '" Sitelíiní 'ttti v ' : $ý$1 i f r i. ■ ' - . a iúfsiiiss mt&tiu^ 8?)tisu-ftsUe». hætti tekizt að komast inn í verksmiðju fyrirtækisins og það an brotizt inn á skrifstofumar. Auk hurðanna þriggja, sem þjófarnir brutu áður en þeir fundu peningaskápinn, höfðu þeir gert tilraun til þess að rjúfa gat á vegg, sem skildi að tvö skrifstofuherbergin. Logsuðutækin, sem þjófarnir notuðú til þess að opna skápinn með, voru tekin hjá fyrirtækinu sjálfu, en ekki virðast þjófamir hafa verið mjög kunnugir með- ferð slíkra áhalda, þar eð þeir notuðu logsuðuspíss, en ekki skurðarspíss, við að skera gat á skápinn. Engir peningar voru i skápn- um og var einskis saknað af skrifstofunum, nema sjónauka eins, sem þar var geymdur. Þetta er í þriðja skipti á stuttum tíma, sem innbrots- þjófar nota logsuðutæki til þess að opna peningaskápa. Hið fvrsta innbrotið var fram- ið á Seyðisfirði, sem flestir minnast, og hið annað nú ekki alls fyrir löngu hjá Tryggingu hf. í Borgartúni. 11 i ................. Titilblað biblíunnar Hannibalistar sér á báti Yfirkjörstjórnin í Reykjavík Úrskurðaði í dag, að listi Hanni- ballsta í Reykjavik gæti ekki talizt til Alþýðubandalagsins, heldur bæri að líta á hann sem óháðan lista. Var honum úthlut að listabókstafnum I. — Áður hafði orðið samkomulag um, að fiomlu flokkamir héldu sínum listabókstöfum og Óháði lýðræð isflokkurinn fengi listabókstaf- inn H. í úrskurðinum er vísað til þess, að einungis geti 24 menn verið í framboði fyrir einn flokk í Reykjavík. Þau ákvæði væru marklaus, ef tveir listar, sam- tals 48 menn, gætu verið í fram- boði fyrir einn flokk. Fljótlega eftir þennan úr- skurð var haldinn fundur í Land kjörstjórn samkvæmt kæru Hannibalista. Voru þar mættir fulltrúar flokkanna. Eftir stutt- an fund var Hannibalistum gef- inn frestur til kl. 8.30 f. h. í dag til aö skila greinargerð um sjónarmið sín. Hannibal Valdimarsson sagði í gærkvöldi við blaðamann Vfs- „Ég tel þetta pólitískan úr- skurð, sem brýtur í bága við kosningalög. Við höfum áfrýjaö til Landkjörstjórnar, sem mun taka málið fyrir í fyrramálið. Úrskurður yfirkjörstjómar mun ekki hafa minnstu áhrif á kosn- ingabaráttu okkar". Lyfjafræðingar mótmæla Stjórn Lyfjafræðingafélags ís- lands hefur mótmælt bréflega bráðabirgðalögunum . sem sett voru fyrr í vikunni til þess að binda enda á verkfall félagsmanna þess. í mótmælunum segir, aö iyfjafræðingar séu knúnir „til að hefja vinnu við algerlega óviðun- andi kjör, eftir fjögurra vikna verk fall". Þá er sagt, að með lögunum hafi algerlega verið tekinn málstað- ur apótekarafélagsins, þótt könnun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hafi sýnt réttmæti launakrafna lyfjafræðinga. Nýr yfirlæknir á Vífilsstöðum Hrafnkell Heigason hefur verið skipaður yfirlæknir við Vífilsstaða hæiið frá 15 maí nk. Hann er sonur hjónanna Helga Jónassonar héraðslæknis á Hvolsvelli og Odd- nýjar Guðmundsdóttur. Hann lauk læknapröfi frá Háskóla íslands 1956 og var viðurkenndur sérfræð- ingur í lyflækningum 1962. Hann hefur verið deildarlæknir við fjórð ungssjúkrahúsið á Akureyri, en hefur undanfarið starfað í Svíþjóð. Hann er 39 ára að aldri. Landburöur af þorski á Húsavik Landkjorstjóm a lundi í gær meö umbjóðendum listanna. Línubátar frá Húsavík hafa und- I anfama daga aflað óvenju vel og ; má kalla að þar hafi verið land- ! burður af fiski i hálfan mánuð, ! svo aö frystihúsið hefur varla haft ! undan að vinna aflann. — Síðustu árin hefur varla fengizt bein úr sjó við Norðurland, nema þá helzt ufsi yfir sumartimann og þykir mönnum nú undarlega við bregða. Sjö litlir þilfarsbátar róa frá Húsavík, tólf til tuttugu og tveggja lesta og eru þrír á hverjum bát, en fjórir, sem beita í landi. Aflinn hef- ur komizt upp i 18 tonn i róðri og var mestur í síðustu viku, en þessa viku hafa þeir fengiö þetta 6 til 9 tonn. Verðmæti 18 tosma af þorski er milli 60 og 70 þúsund krónur og má reikna með að hásetahlutur úr slíkum róðri sé á þessum bátum eitthvað um 5 þúsund krónur. Tíðarfar hefur verið óvenju gott þennan hálfa mánuð, enda hafa bátar sótt langt norður fyrir Sléttu og á Rauðunúpagrunn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.