Vísir - 23.05.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 23.05.1967, Blaðsíða 1
VISIR 57. árg. - Þriðjudagur 23. maí 1967. - 114. tbl. Strætisvagiwstjórar flykkt ust í Hæstarétt Standa i málaferlum v/ð Reykjav'ikurborg Óvenjumargt var um mann- inn í Hæstarétti í gær þegar hátt í hundraö strætisvagnastjórar fylktu liði í dómsalinn til að fylgjast með málaferlum, sem þeir eiga í við Reykjavíkur- borg. — Málaferlin snúast um kjarasamninga bifreiðarstjór- anna við borgina, en málið var dómtekiö í gær og er úrskurðar að vænta innan tíöar. Forsaga þessa máls er sú, að 1954, begar strætisvagnabíl- stjórar gerðust fastir starfs- menn borgarinnar afsöluðu þeir sér verkfallsrétti, en fengu í þess stað vilyrði fyrir því, að þeir skyldu fá sömu laun og þeir vaktavinnuhópar, sem höfðu laun samkvæmt 10. launaflokki, eða lögregluþjónar og slökkvi- liðsmenn. — Þegar lögreglu- menn og siökkviliðsmenn fengu á sínum tíma 6% áhættuþókn- un, stóð í nokkru stappi, hvort strætisvagnabílstjórum bæri einnig að fá hana. — Hæsti- réttur felldi úrskurð 1960. að þeim bæri að fá hana vegna ákvæða samninganna frá 1954. þó að Hæstiréttur hafi ekki litið svo á, að sama áhætta fylgdi störfum bifreiðarstjóranna eins og hinna starfsgreinanna tveggja. Þegar nýir kjarasamningar gengu í gildi viö opinbera starfs menn árið 1963, sagði borgin ekki upp samningnum við bif- reiðarstjórana, en úrskurðaði aftur á móti að slökkviliðsmenn og lögregluþjónar gætu vegið sig upp i launaflokkum með þvr að sækja sérstök námskeið. án þess að strætisvagnabílstjórum væri gert þetta kleift jafnframt — Stendur þar hnífurinn Framh. á bls. 10 Þórunn er milli Ásgeirsdóttir 21 árs með þríburana sí'na, sem hún ól í gær, tvo drengi og eina telpu, sem bræðra sinna. LÍKARIHVOR ÖÐRUM // — Litið inn á Fæðingardeild Landspitalans i heimsókn til þriburamóður Þrem litlum barnavöggum er hjólað inn á eina sjúkrastofuna á Fæðingardeild Landspftalans og rétt á eftir hittum við að máli Þórunni Ásgeirsdóttur 21 árs gamla bar sem hún er með þriburana sína í fanginu, tvo drengi og eina stúlku. Móðir og böm eru hraustleg útlits, þrí- burarnir rauðir og ofurlítið grettnir enda ekki nema rúm- lega dagsgamlir. Það kom þeim hjónunum Þór- unni og Gylfa Jónss. 23 ára loft skeytamanni hjá Landssímanum heldur á óvart þegar þeim fædd ust þannig þrjú börn í einu — „Ég átti ekki von á þessu“, sagöi Þórunn, læknarnir voru samt búnir aö segja, að um tvíbura gæti verið að ræða“. Þau eiga eitt barn fyrir tveggja ára telpu Og nú streyma að þeim ham- ingjuóskir ættingja og vina. Við spyrjum móðurina hvort hún þekki þríburana hvern frá öðrum. „Drengirnir eru miklp líkari hvor öðrum“, segir hún og lítur niður á hópinn, þar sem litla . Frarah. á bls 10 Kveikt í húsi við Grenimel Slökk^iliðið var kvatt vestur á Grenimel 48 í gærkvöldi kl. 8, en þar hafði komið upp eldur { húsi, sem var í byggingu. Bygging þessi er tveggja hæða hús með dálitlu risi. Ofayi á efsta loftið var ein- angraö með plasti og þar hafði verið kveikt í. Var talið alveg ör- uggt, að ekkert annað hefði getað orsakað þennan eld, en íkveikja kveikja. Fljótlega tókst að ráða niöur- lögum eldsins og urðu skemmdir ekki aðrar, en á loftinu. Þar eyði- lagðist mest öll einangrunin. Tal- ið var líklegt, að þama hefðu krakk ar verið að verki. Siglfirðingar fá nýjan flugvöil I gær lenti flugvél Flugmála- stjórnar rikisins á litla flugvell- inum á Siglufirði. Innanborðs voru þeir Haukur Claessen, flugvallar- stjóri og Júlíus Þórarinsson, yfir- verkstjóri. Voru þeir komnir til að athuga flugbrautina og að lokinni athug- un var ákveðið að flugbrautin væri hæf til notkunar. Opnast hér mikil samgöngubót fyrir Siglufjörð, þó brautin sé enn aöeins 700 metrar. Flugvöllurinn er á svokölluðum Leirum innst í firðinum. Efni í völlinn var dælt úr sjónum og verkið hófst vorið 1963. i Nasser setur hafnbann ó Eilath viB Aka&aflóa Israel hefir áður lýst slikt hafnbann næga styrjaldarorsök Nasser forseti boðaði í gær lokun Akabaflóa fyrir israelskum skipum og öll- jm skipum, sem flytja liernaðarlega mikilvægar ttörur og afurðir til Eilath, sinu hafnarborgar ísraels inð flóann, en þaðan er siglingaleiðin til Rauða- hafs og Indlandshafs, — fsraelska stjórnin hefir áð ur tilkynnt, að hún myndi líta á það sem styrjaldar- orsök, ef hafnbann yrði sett á Eilath. Vegna þessarar ákvörðunar Nass ers er litið svo á, að horfur hafi stórum versnað í einni svipan, og það á sama tíma og U Thant fram- i kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðánna I er á lefe til Kairo til viðræðna | við Nasser, I von um aö afstýrt | verði friðslitum. Þetta gerist og rétt á eftir, að! talsmaður bandaríska utanríkis- j ráðuneytisins var búinn að lýsa yfir, aö Bandaríkjastjórn mundi líta það mjög alvarlegum augum, ef nokkur tilraun yrði gerð til þess að loka Akabaflóa fy-rir skipum ísraels, þar eö hún liti á siglinga- leiðina um flóann sem alþjóðasigl- ingaleið. Enn hefir eitt gerzt, sem ,bent gæti til að sá ótti manna hafi verið á rökum reistur, að Sovét- ríkin standi á bak við Egyptaland, eða að minnsta kosti sovétstjórnin hafi haft vitneskju um áform Nass- ers og styðji þau aö einhverju leyti. Egypzka fréttastofan tilkynnir sem sé, aö sovétstjórnin og Kommúnistaflokkurinn i Sovét- rikjunum hafi sent Nasser heilla óskir á yfirstandahdi hættu- tíma“ og látiö skína i stuðning við þau áform, sem hann hefir á prjónunum. Nasser heimsótti í gær stöövar egypzka liðsins á Sinai-skaga og var með honum Amer varaforseti og marskálkur. Egyptar hafa um þrefalt til fjórfalt meira lið en áð- ur á skaganum. f Kairo hafa verið birt fyrir- mæli um loftvarnaræfingar. Tug- þúsundir ungra manna eru teknir í varaliöiö — og áhrifanna farið aö gæta á hverju heimili. U Thant neitaöi að ræða við fréttamenn. Þegar U Thant kom til Orly-flug- vallar við París ræddi hann horf- Framhald á bls. 10. Norðurflug, Flugsýn og Þytur hafa öll flogið nokkuð til Siglufjarðar og lent á litla sjúkraflugvellinum, sem var lagður niður í gær um leið og hinn nýi opnaði. í ráði er að lengja flugbraut- ina nýju upp í 1300 metra, og gætu vélar F.í. þá lent þar, Ekki er þó vitað hvenær haldið verður áfram stækkuninni. Nasser.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.