Vísir - 30.05.1967, Blaðsíða 12
V í SIR . Þriðjudagur 30. maí 1967.
72
Kvikmyndasaga
samin af Ednu O'Brien
eftir skáldsögu hennar
„The Lonely GirT'
Ég fór fram úr og þvoði mér,
og skömmu síðar héldum við af
stað inn í skóginn.
„Þú hleypir ekki neinum inn,
þótt barið verði að dyrum“, kall-
aði hann upp til Önnu.
„Er von á fógetanum?“ kallaði
hún illkvittnislega á móti.
Hann hleypti brúnum og haföi
orð á að hún væri farin að leyfa
sér sitt af hverju.
Úti var milt í veöri, komiö logn
en hlýr rigningarsuddi. Allt var
hljótt, og í fjarska heyrðist sagar-
hljóð, þar sem menn unnu að því
að fella tré. Ég tók af mér höfuð-
klútinn og lét regniö úða hár mitt
og andlit. Ef ég varö fyrir mis-
svefni, sagði þaö alltaf til sín með
hita og ónotum-í andlitinu og roða
á hvörmunum. Hann fór að segja
mér frá kvikmynd, sem hann
hafði séö í Lundúnum, i-akti gang
sögunnar í myndinni og lýsti hinni
lióshærðu ástríðuheitu stúlku, sem
leikið hafði aðalhlutverkið. Mér
fannst ég vera svo heimsk og óað-
laðandi í samanburði viö hana,
þegar hann dásamaði vöxt hennar
og limaburð.
Við héldum um þröngan stíg nið
ur aö vatninu. Grenitrén stóðu
stofnbein í réttri röð á aðra hönd,
eins og hermenn í fylkingu á hina
var lágur grjótgarður meðfram
vatninu.
„Þú kemur mátulega til Lund-
úna tii að sjá þessa mynd“, sagði
hann og beygði sig til að taka upp
tvo hvíta smásteina af stígnum.
„Ég segi Ginger aö bjóöa þér með
sér“. Þessi Ginger var kona, .sem
hann ætlaði að láta taka á móti mér
og sjá um mig í Lundúnum, Hann
sagði að hún væri rauðhaérö. Ég
þóttist viss um að hún ynni honum,
gat ekki gert mér það í hugarlund,
að nokkur kona kynntist honum
án þess að verða ástfangin af hon-
um.
„Er hún aðlaðandi?" spurði ég.
„Já, hún er það“, svaraði hann,
rétt eins og það snerti hann ekki
hið minnsta. Það var eins og ekk-
ert snerti hann — hvorki regnið,
hvítu smásteinarnir, trén í fjalla-
móðunni — allt sýndist viðlíka
merkilegt eða ómerkilegt og ekki
koma honum við. Þaö var ekki
laust vió að—mén-þætti nóg um
þennan kaldrana hans.
„Ég vona að það liggi ekki illa
á þér, vina mín“, sagði hann og
Iagði höndina á öxl mér. Sagði
mér að heröa upp hugann. Regnúð-
inn hríslaðist um kápuna mína eins
og perlumóður. Djúp þögnin lagð-
ist að mér sem farg. Allt virtist svo
draumkennt og óraunverulegt...
þokan, sem læddist neðst með
stofnum trjánna, svo þau virtust
svífa í lausu lofti, blámóðan sem
vafði fjallshlíðarnar.
„Ég má ekki til þess hugsa að
fara frá þér“, sagði ég.
„Aðskilnaöur okkar varir ekki
nema í hálfan mánuð — alls ekki
lengur“, sagði hann hugsunarlaust.
Við settumst niður og horfðum yfir
Vátnið, þar sem þokumóðan náði
enn ekki til, svo að akrarnir sáust
skýrt og greinilega.
„Gaztu ímyndaö þér að það væri
svona fallegt hérna“, sagði hann og
horfði út yfir vatnsflötinn.
„Það er yndislegt hérna", varð
mér að orði, án þess hugur fylgdi
þó máli.
„Þó er enn fegurra hérna á
sumrin, Já — ég verð að kenna
þér að synda í sumar“, sagði hann
„Já, í surnar", endurtók ég, eins
og ég mundi aldrei lifa það. Og
mér varð hugsað til liðinna sumra,
þegar hann hafði synt í vatninu
með Lauru, og á eftir hefðu þau
svo legið í sólbaði í sandinum í
skugga hesliviðarins. Mér varö allt
af hugsað til Lauru, þegar ég var
í nálægö hans öldungis eins og
mér varð alltaf hugsað til móður
minnar sálugu, þegar ég var ein-
hvers staðar nálægt föður mínum.
„Hve lengi áttuð þið Laura
heima hérna?“ spurði ég óafvit-
andi.
„Ég man þaö ekki fyrir víst
Ætli það hafi verið öllu lengur en
árið“.
„Var hún synd?“
Baba var flugsynd og leikin í
dýfingum. Ég gat hvorugt.
„Já, víst var hún synd“, svaraði
hann. Ég bjóst við að hann segði
eitthvað fleira en það gerði hann
ekki.
Þaö rökkvaði snemma vegna
þess hversu dimmt var í krfti. Hann
leiddi mig upp brekkuna, og varaði
mig við héraholunum.
„Má ég sofa hjá þér í nótt?“
spurði ég, þegar við klöngruðumst
upp brattann.
„Ætli það ekki“, svaraði hann
ástúðlega.
Ég bað til guðs, að hann léti eitt-
hvað það gerast, sem yrði til þess
að ég þyrfti ekki að fara.
Og mér varð að bæn minni.
ÞRETTÁNDI KAPLI.
Það tók að hvessa með kvöldinu.
Stormurinn hvein í gluggahlerun-
um og Anna hljóp út til aö ná í
þurrkur og handklæði, sem hún
hafði breitt út til þerris á þyrni-
gerðið. Pjáturskjóla valt eftir stétt
inni og glamraði hátt viö.
Ég hafði verið hrædd og kvíöandi
allan daginn. Gerði ráð fvrir að
þeir kæmu þá og þegar, þrátt fyr-
ir símskeytið. Ég varð því storm-
inum fegin. Ólíklegt að þeir
hygðu á aðför í slíku veðri. Og á
morgun héldi ég til Lundúna ...
Eftir að við höfðum drukkið
kvöldteið, breiddi hann út upp-
drátt yfir Lundúnir og benti mér á
ýmis stræti og staöi. Þaö var á-
kveðið að ég legði af stað snemma
að morgni.
„Við ættum að læsa útidyrun-
um“, sagði ég.
„Allt í lagi. Við læsum öllu, sem
læst verður“, sagði hann. Viö
stóðum á fætur, hann fékk mér
stórt vasaljós, sem ég lýsti hon-
um með og hann læsti bæöi aðal-
dyrunum og bakdyrunum með
erfiðismunum, því að lyklarnir voru
ryðfastir í skránum og Slagbrand-
amir gengu ekki í grópin nema
hann berði á þá með brennikubb.
Anna og Denis voru setzt að uppi
í herbergjum sínum og við heyrð-
um þaðan danstónlist úr viðtæki.
„Segðu þeim að opna ekki þótt
barið verði að dyrum", mælti ég.
„Það er óþarfi“, sagði hann, þau
-koma aldrei niður, eftir að þau eru
setzt að uppi á kvöldin. Fara í
rúmið, þegar þau hafa hlustað á
fréttirnar“. Og ég vissi að hann
var of stoltur til þess, að hann vildi
láta þau taka nokkurn þátt í erf-
iöleikum sínum.
„Við skulum halda okkur frá
gluggunum“, sagöi hann, þegar við
vorum setzt að við arininn í vinnu-
stofu hans. Eikarlaupurinn var full
ur af brenni, og hann sagði að
okkur væri óhætt, hvaö sem á
dyndi.
Það stóö haglabyssa í homi niðri
i anddyrinu. Ég hafði orð á að
vissara væri aö sækja hana og
hafa hana við höndina.
„Vitleysa, góða mín“, sagði hann.
„Það er eins og þú sért staðráöin
í að setja einhvern æsileik á svið“.
Stormurinn gnauðaði við glugga-
hlera og upsir, mér fannst ég allt-
af heyra í bfl, en það var einungis
ímyndun mín. Ég burstaði hár hans
og neri vöðvana á baki hans og öxl-
um, og hann sagði að það væri
einstaklega róandi og notalegt.
„Okkur kemur vel ásamt, þér og
mér“, sagði hann.
„Já“, svaraði ég, og hugsaði sem
svo, að gaman hefði það verið, ef
hann hefði heldur sagt, ég elska
þig, ég er orðinn ástfanginn af
þér. En það gerði hann ekki. Sagði
einungis aö okkur kæmi vel á-
samt.
„Við höfum ekki þekkzt nema í
nokkra mánuöi," sagöi hann og
horfði inn í eldinn, eins og hann
hefði getið sér til um óánægju
mína. Ég gerði mér þaö ljóst, aö
hann hafði mesta trú á allri hæg-
fara þróun, aö ræturnar leituðu
festu djúpt í myrkri, þögulli mold-
inni. Hann hafði yndi af að planta
trjám og fylgjast með vexti þeirra
og hann vildi að ást okkar þrosk-
aðist á sama hátt.
„Trúirðu á guð?“ spurði ég allt
í einu. Ég veit ekki hvers vegna.
„Þaö held ég varla. Ekki þegar
ég sit öruggur við minn eigin ar-
in. En ég er ekki frá þvi, að ég
geri það, þegar ég ek bílnum átta-
tíu mílur á klukkustund og veit
beygjur framundan“. Mér fannst
svariö undarlegt. Skildi það ekki
fyllilega.
„Við hvað-ertu hráeddur?“ spuröi
ég enn, eins og mig langaði til að
hlusta á einhverja dularfulla játn-
ingu, eöa ég vildi leitast við aö
taka þátt í ótta hans, til aö gleyma
mínum eigin ótta.
„Sprengjur", svaraði hann. Og
mér fannst þaö svar ekki síður
undarlegt en hið fyrra.
„En ekki Helvíti?" spurði ég, og
nefndi það, sem ég óttaðist næst
mest.
„Þeir gera mig áð kyndara í
Helviti", svaraði hann. „Ég kann
að skara í glæðurnar“. Ég varð
undrandi á því hve rödd hans gat
veriö róleg og hlutlaus og svipur
hans mildur þegar hann lét sér
annað eins um munn fara. Ég neri
vöövana aftanvert á hálsi hans og
herðum, hvíldi svo hendurnar og
sat hjá honum. Spurði sjálfa mig
hvernig ég ætti að geta lifað án
hans í Lundúnum — þangað til
storminn lægði, eins og hann komst
að orði.
„Já, þetta er Helvíti...“ hóf
hann máls, en ég heyröi aldrei
seinni hluta þeirrar setningar, því
að þá rak hundurinn upp gelt mik-
iö og spangól úti i garðinum. Það
stóð í nokkrar sekúndur, en breytt
ist svo í lágt, aðvarandi urr. Ég
spratt skelfd á fætur.
Tarzan syndir út, blökkumanninum til hjálp- sært höfuð hans eða aðra viðkvæma líkams- „Hann er morðóður þessi. Ætlar sér greini-
ar. „Enn er ekki öll von úti. Skepnan bft- hluta.“ lega að drekkja mannræfllnum í botnleöj-
ur aðeins um handlegg hans, en hefur ekki unni.“
Maðurinn sem annars
aldrei ies auglýsingar
auglýsingar
IVVÖRUSÝNING
KAUPSTEFNAN
REYKJAVÍK1967
POLLAND TfcKKÓSLÓVAKIA
SOVETRÍKIN-UNGVERJALAND
ÞÝZKA ALÞÝÐULÝÐVELDID
Opiö í dag og á morgun
kl. 14-22. Stórt vöruúrval
frá 5 löndum.
Vinnuvélar sýndar 1
gangi. Bílasýning. 5 kvik-
myndasýningar kl. 15, 16,
17, 18 19, 20. 3 fatasýn-
ingar kl. 15, 17 og 18.30
meö oólskum sýningar-
dömum og herrúm. Veit-
ineasalur ot>inn.
OPIÐ FRÁ KL. 14-22 ALLA DAGA
20. MAÍ-4.JÚNÍ ÍÞRÖTTA-OG
SÝNINGARHÖLLIN LAUGARDAL
Knútur Bruun hdl.
Lögmanhsskrifstofa
Grettisgötu 8 II. h.
Sími 24940.