Vísir - 30.06.1967, Blaðsíða 3
\PÍSÉl . Föstudagnr 30. fðnf T987.
Grjótey fékk á sig slagsíðu
er leirinn rann til í lestinni
r-.
mm i.: » - i I
■■ ' ■ -
- ;
-'., % m
■
í-
Laust fyrir hádegi í gær skeöi
það óhapp, aö Grjótey fékk á
sig slagsíðu undan Kjalames-
strönd og var óttazt um tíma aö
skipið legðist alveg á hliðina.
Skipstjórinn kallaði á aðstoö og
fór björgunarbáturinn Gisli J.
Johnsen m. a. á vettvang, en
Sandey var fyrr á staöinn og'
voru skipsmenn fluttir um borð
í hana.
Vegna þessa óhapps hringd-
um við i Kristin Guöbrandsson,
framkvæmdastjóra Björgunar
h.f., en það fyrirtæki á bæði
skipin, Sandey og Grjótey, en
hiö síðamefnda hét áður Sú-
sanna Reith og kom mjög viö
sögu fyrir nokkrum ámm er
hún strandaöi við Raufarhöfn.
Björgun h.f. keypti þá skipið
þar sem það lá á strandstað og
bjargaði því á þann hátt að
hluta það sundur í tvo hiuta og
sjóða þaö síðan saman aftur,
eftir að hafa tekið bút úr mið-
hluta þess.
Viðtalið við Kristin var á
þessa leið:
— Hvað kom fyrir Grjótey?
— Farmurinn rann til. Grjót-
ey var að losa leir upp viö
Kjalarnes, en þennan leir hafði
hún tekið af hafsbotni skammt
austan við Engey.
— Var skipið 1 mikilli hættu?
— Það er ekki gott að segja
til um það. Það var nokkur
vestanalda þarna upp frá i
morgun og það virðist vera á-
stæðan fyrir óhappinu. Eins og
kunnugt er, er það ekki óal-
gengt að farmur kastist til í
skipum.
— Hvað var skipið með mikiö
magn þegar óhappið skeði?
— Hún var með fulllfermi,
eða u.þ.b. eitt þúsund rúmmetra.
— Hefur Grjótey verið að
vinna fyrir Sundahöfn lengi?
Nokkurn tíma. Áður var hún
i byggingarefnisflutningum fyr-
ir Vestmannaeyinga og flutti
þangað tiu þúsund rúmlestir
ofan úr Hvalfirði.
— Hvað eru margir um borö?
— Áhöfnin er 11 manns og
vinnur á vöktum, fimm í senn
auk skipstjórans Ævars Þor-
geirssonar.
— Og nú er skipið úr allri
hættu?
— Þeir eru að rétta það af
inni á sundum. Þangað fór það
fyrir eigin vélarafli og er nú
úr allri hættu.
Myndirnar á síðunni tók Jó-
hannes Borgfjörð. Stóra mynd-
in er tekin þegar Grjótey hafði
varpað akkerum inni á sundum
og sést bera í Sandey. Gúmmi-
björgunarbátar sjást aftan við
skipið, en þeim var skotiö út
er óhappið skeði. Minni myndin
er tekin af skipinu er þaö var
statt norðaustan viö Engey og
er að snúa, áður en það siglir
inn á sund.
(