Vísir - 03.11.1967, Blaðsíða 11

Vísir - 03.11.1967, Blaðsíða 11
V/l SIR. Föstudagur 3, nóvember 1967. n BORGIN * 4 9 & LÆKNAÞJQNUSTA SLYS: Sími 21230 Slysavarðstofan ) Heilsuvemdarstööinni. Opin all- an sölarhringinn. Aöeins móttaka siar«nra. SJÚKRABIFREIÐ: Sími 11100 í Reykjaviii. 1 Hafn- arfiröi ' sfma 51336. NEYÐARTILFELLI: Ef ekki næst f heimilislækni er tekiö á móti vitjanabeiðnum i síma 11510 á skrifstofutíma. — Eftir kl. 5 síðdegis f síma 21230 i Reykjavfk t Hafnarfirði • sfma 50235 hjá Eiríki Bjömssyni, Aust- urgötu 41. KV' >- OG HELGiuAGS- VARZLA LYFJABClÐA: Reykjavíkur Apótek og Holts Apótek. — Opið alla daga til kl. 21.00. I Kópavogi, Kópavogs Apótek. Opið virka daga kl. 9—19 laug- ardaga kl. 9—14. helgidaga kl. 13-15. NÆTURVARZLA LYFJABÚÐA: Næturvarzla apótekanna I R- vfk. Kópavogi og Hafnarfirði er 1 Stórholti I Slmi 23245. Keflavfkur-apótek er opið virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9-14. helga daga kl. 13-15. ÚTVARP Föstudagur 3. nóvember. 15.00 Miðdegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. Síðdegistónleikar. 17.00 Fréttir. Dagbók úr umferðinni. Endurtekið efni. Nokkur atriöi úr Færeyja- dagskrá, sem Ámi Waag tók saman á Ólafsvökunni 29. júlí í sumar. 17.40 Útvarpssaga bamanna: „Alltaf gerist eitthvað nýtt“. Höfundurinn, séra Jón Kr. fsfeld, les nýja sögu sína. (2). 18.00 Tónleikar — Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.20 Tilkynningar. 19.30 Efst á baugi. Bjöm Jóhannsson og Tóm- as Karlsson fjalla um er- lend málefni. 20.00 Þjóðlagaþáttur. Helga Jóhannsdóttir kynn- ir íslenzk þjóðlög 20.30 Kvöldvaka. a. Lestur fornrita: Laxdæla saga. Jóhannes úr Kötlum les (1). b. Úr þjóðsögum. Þorsteinn frá Hamri les og ræöir um efniö. c. „Sveinar, kátir syngið“ Tryggvi Tryggvason og fé- lagar hans syngja alþýðu- lög. d. „Myrkra styrkur andi“ Jóhann Hjaltason kennarx flvtur frásöguþátt. e. I hendingum. Siguröur Jónsson frá Haukagildi flyt ur vísnaþátt. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.15 Kvöldsagan: „Dóttir Rapp- azzinis" Sigrún Guðjóns- dóttir les. 22.35 Kvöldtónleikar. 23.15 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. SJQNVARP Föstudagur 3. nóvember. 20.00 Fréttir. 20.30 Á öndverðum meiði. Umsjónarmaður Gunnar G. Schram. 21.00 Skemmtiþáttur Lucy Ball. ísl. texti: Óskar Ingimars- son. 21.25 „Er írsku augun brosa ...“ Irsku þjóölagasöngvararnir The Dragoons flytja þjóð- lög frá heimalandi sínu. 21.40 Dýrlingurinn. Roger Moore í hlutverki Simon Templar. ísl. texti: Bergur Guðnason. 22.30 Dagskrárlok. TILKYNNINGAR Kristniboðsfélag kvenna Reykja vík hefur sitt árlega fjáröflunar- kvöld laugardagskvöldið 4. nóv kl. 8.30 i kristniboöshúsinu Betan íu, Laufásvegi 13. Til styrktar kristniboöinu í Konsó. Ingunn Gísladóttir kristniboði flytur frá- söguþátt, ungar stúlkur syngja og leika á gftar o. fl. Hugleiðing Filipia Kristjánsdóttir Stjórnin. — Þú ætlar þó ekki að segja mér, að þú sért hræddur viö Virginíu Woolf? „JEPP!" sýndur aftur N. k. föstudag þaim 3. þ. m. hefjast aftur sýningar f Þjóðleik- húsinu á leikritinu Jeppi á Fjalli. Leikritiö var sýnt 16 sinnum á ' s:l. leikári viö mjög góöa að- sókn, en sýningar hófust mjög seint á leikárinu á Jeppa, svo ekki varmst tími til að sýna leik- ritið oftar þá. Leikurinn hlaut ágæta dóma allra gagnrýnenda, og þá sérstak- lega Lárus Pálsson fyrir frábær- an leik í titilhlutverkinu. Fyrir túlkun sína á „Jeppa“ hlaut Lárus Menningarsjóðs verölaun Þjóðleikhússins, en þau verölaun eru veitt einu sinni á ári fyrir beztu leiktúlkun á því leikári. Einnig hlaut Lárus „Silfurlamp ann“ s.l. vor fyrir leik sinn í Jeppa á Fjalli. Silfurlampinn, er verölaunagripur Félags íslenzkra leikgagnrýnenda og eru þau veitt í lok leikárs fyrir bezta leik ársins. Það mun fremur sjaldgæft að sami leikari hljóti tvenn verð- laun fyrir túlkun á einu hlut- verki, og sýnir þetta bezt hve Lárusi tókst vel að túlka þennan drykkfellda og spaugilega bónda, Jeppa á Fjalli. Fullyrða má að ekkert leikrit Holbergs, hafi náð jafn miklum vinsældum hér á landi, ,eins og „Jeppi“ hefur gert, og enn virð- ast vinsældir þesiá gamalkunna leiks vera jafn miklar og áöur. Leikstjóri er Gunnar Eyjólfs- son, en meö stór hlutverk í leikn- um fara þessir leikarar: Anna Guðmundsdóttir, Ámi Tryggva- son, Bessi Bjamason og Rúrik Haraldsson auk Lárusar Pálsson- ar f hlutverki Jeppa, eins og áður er getið. Myndin er af Lárusi og Árna f hlutverkum sínum. FUNDARHÖLD Kvenfélag Ásprestakalls, býður eldra fólki f sókninni, körlum og konum 65 ára og eldra til sam- komu í Safnaðarheimilinu Sól- heimum 13, n. k. sunnudag 5. nóv. Samkoman hefst með guðs- þjónustu kl. 2, en síöan verður kaffidrykkja og ýmis skemmti- atriði; Stjörnuspá - Spáin gildir fyrir laugardaginn a 4. nóv. • Hrúturinn 21. marz - 20. apr. • Atburðarásin getur orðið þann- • ig, að örðugt sé að fylgja nokk- • urri fastri, fyrirfram tekinni á- a ætlun. Reyndu að sjá svo um 2 að allt gangi friðsamlega og á- • rekstralaust. • Nautið, 21. apríl - 21. mai. J Dagurinn er vel til þess fallinn, , að þú skýrir frá óskum þfnum, J og geWr öörum skiljanlegt, að e þeir geti ekki ætlazt til alls af • þér, án þess að veita einhverja J aðstoð sjálfir. Tvífcurarnir 22. maí - 21. J júní Það er ekki ólíklegt að • þú bomist í kast við heldur • þvetgiröingslegar og viðskota- ★ * * illar persónur í dag og kvöld. Reyndu að komast hjá árekstr- um, láttu heldur undan síga í bili. Krabbinn, 22. júní - 23. júlí. Varastu deilur og árekstra, og reyndu að hafa stjóm á skapi þínu, þótt ekki gangi allt eins og þú vildir. Athugaðu og, að aðrir geta líka haft mikið til síns máls — endrum og eins. Ljónið,- 24. júlí - 23. ágúst. Vertu því feginn, að þér býðst tækifæri til að slaka nokkuð á og hvíla þig frá hversdagsstriti stundarkorn. Þú verður þess á- takameiri við störfin eftir helg- ina. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Það getur farið svo, að rás at- burðanna falli ekki sem bezt við persónuleg áhugamál þín eöa óskir. Leggðu sem mesta á- herzlu á allt það, sem snertir fjölskylduna og þína nánustu. Vogin, 24. sep.t. - 23. okt. Þú getur orðið fyrir töfum og erfiöleikum, ef þú ert á ein- hverju feröalagi seinni hluta dagsins, Reyndu að komast hjá öllum mikilvægari ákvörðunum og samningageröum. Drekinn, 24. okt, - 22. nóv. Leggðu sem mesta áherzlu á að fara sparlega með peninga og sérstaklega þegar kunningjar eru arinars vegar, sem höfða til örlætis þíns eða greiðvikni. Láttu ekki hafa af þér varðandi greiðslur. Bogmaðurinn, 23. nóv. - 21. des.: Varastu að láta tilfinn- ingasemi ná um of tökum á þér, eða marka um of afstöðu þína til annarra í dag og kvöld. Það gæti hæglega orðið til þess aö draga úr áliti þínu. Steingeitin, 22. des. - 20. jan. Reyndu að láta þér veröa sem mest úr deginum og kvöldinu. Varastu fólk, sem hefur allt á homum sér og allt veit öðrum betur. Farðu gætilega f umferð inni, einkum er‘á daginn líður. Vatnsberinn, 21. jan.- - 19 febr.: Gerðu þér ekki miklar vonir um aðstoð eða skilning af hálfu vina þinna, eða þinna nán ustu. Vertu varkár gagnvart nýjum kunningjum og segðu þeim ekki hug þinn allan. Fiskamir, 20. febr. - 20. marz. Svo getur farið, að það verði annríkt hjá þér í dag í sambandi við skyldustörf þín, ?ða við- fangsefni, sém krefjast iskjótrar úrlausnar. Varastu allt, sem vak , ið getur raisskilning. Kvenfélag Grensássóknar held- ur fund í Bréiöagerðisskóla mánu daginn 6. nóv kl. 8.30. Guðjón Hanssen, tryggingafræðingur, flytur erindi um almennar trygg- ingar Þátttaka í Akranesför 14. nóv. tilkynnist fyrir 7 nóvember til Rögnu Jónsdóttur. síma 38222 eða Kristinar Þorgeirsdóttur, sfma 38435. Kvenfélag Laugamessóknar held- ur fund mánudaginn 6. nóvember kl. 8.30 stundvíslega. Frú María Dalberg sýnir andlitssnyrtingu og frú Friðný Pétursdóttir segir ferðasögu og sýnir skuggamyndi- Stjórnin. Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur fund mánudaginn 6. ntrv. kl. 8.30 að Hótel Sögu. — Til skemmtunar gamanvisur. Ómar Ragnarsson, upplestur Jökul! Jokobsson rithöfundur Félags- konúr vinsaml beðnar að fj'öl- menna og gera skil I happdrætt- inu, — Stjómin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.