Vísir - 01.04.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 01.04.1968, Blaðsíða 3
1VI SIR . Mánudagur .■ qpsr im I I l i i J i i IVú er „Sæluvikunni á Sauð- árkróki" lokið að þessu sinni og trúlegt að einhver Skagfirðingur sé rykaður í kollinum þegar línur þessar koma fyrir sjónir lesendum Vís- is, þó aö þær séu ritaðar á föstudag, eða áöur en „sælan“ náði hámarki sínu. Sá sem eitt sinn hefur notið Sæluvikunnar á Sauðárkróki gleymir henni vart, hafi hann á annað borð tekið þátt i henni af lífi og sál. Leikfélag Sauðár- króks hefur hingað til átt stærstan menningarlegan þátt í mótun Sæluvikunnar og svo mun án efa verða um ókomin ár, eða svo lengi sem Sauökrækl ingar og aðrir Skagfirðingar sjá af einni viku ársins til aö njóta lífsins við leiki, söng og dans. Hinar ljúfu veigar eiga að sjálf- sögðu sinn þátt í sælunni og koma mörgum ryðguðum radd- böndunum til að hljóma á ný í „grænum kjallara Bifrastar". Á föstudaginn hafði Myndsjá- in samband við fréttaritara sinn á Sauðárkróki, Kristján Skarp- héðinsson og spurði bann um framkvæmd „Sæluvikunnar" að þessu sinni. Kristján sagöi m. a.: — Veöur hefur verið mjög gott hingað til og hefur því verið mannmargt hér á Sauðár- króki f tilefni Sæluvikunnar. 1 2 4 Baniadagur í Sæluvikunni. Börnin hópuðust í biðröð við kvikmyndahúsið. Úr leikritinu Leynimelur 13. Leikendur taldir frá vinstri: Stefanía A. Frímannsdóttir, Kristján Skarphéðinsson, Guðrún Vagnsdóttir, Haukur Þorsteinsson, Hafsteinn Hannesson og Heiga Hannesdóttir. Hafsteinn Hannesson í hlutverki sínu í Leynimel 13. — (Myndimar tók Guðni Friðriksson). Leikendur í Revíukabaretti Ungmennafélagsins Tinda- stóls. í dag er aftur á móti snjómugga hér en lygnt. Ennþá er fært innanhéraðs og vestur í Húna- vatnssýslur, en öxnadalsheiðin er ófær, og ennfremur er lokað til Siglufjarðar. Uppselt hefur verið á allar sýningar Leikfé- lagsins hingað til og uppselt er á þær tvær sýningar sem eftir eru. Leikfélagið sýnir að þessu sinni gamanleikinn „Leynimel 13“ eftir „Þrídrang“. Aðsóknin að Revíukabarett- inum hefur einnig verið mjög góð. Hér var dansað á þriðju- dagskvöidið og lék hljómsveit Ingimars Eydals fyrir dansi, en hljómsveitin kom frá Akureyri og hafði þá tekizt aö opna veg- inn þangað þó sú dýrð stæði ekki lengi. í gærkveldi voru gömlu dansarnir ieiknir og þá lék hljómsveitin Flamingo fyr- ir dansinum. Aðalkvöld Sælu- vikunnar verður svo annað kvöld og er þá búizt við flest- um gestum að venju, en einnig má búast við mörgum gestum í kvöld. Að lokum sagði Kristján að allir sem að framkvæmd Sælu- vikunnar stæðu að þessu sinni, væru mjög ánægðir með fram- kvæmd hennar og vonaði hann að þau kvöld sem eftir væru yrðu á sama veg hvað það snert- <

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.