Vísir - 22.04.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 22.04.1968, Blaðsíða 2
V1SIR . Mánudagur 22. apríl 1968. Svona eiga Islandsmeistarar aí veraí i Fram vann Islandsmeistaratitil / 5 flokkum sjótta — FH reyndist auðveldur biti i FRAMARAR eru sannkallaðir íslandsmeistar- ar, og talsvert langt er síðan félag hefur jafnræki- lega áunnið sér titilinn „bezta handknattleiksfélag íslands“ og Fram nú, eða frá því FH vann alla flokka íslandsmótsins, — Framarar urðu nú ís- landsmeistarar í 5 flokkum, — og töpuðu þeim 6. í úrslitum með einu einasta marki. Glæsileg frammi- staða. Til hamingju, Framarar! l»ið hafið unnið vel að handknattleiksmálum innan félagsins, og upp- skerið nú í samræmi við þá sáningu. — / úrslitum i þeim „úrslitunum" — í gærkvöldi lauk handknatt- lciksmótum vetrarins, — sem betur fer verð ég að segja, því að áhugaleysið viröist hafa hel- tekið alla, jafnt áhorfendur, sem leikmenn. Fram kvaddi þó með skemmtllegum tilþrifum og það allra skemmtilegasta fannst mér leikur hins unga landsliðsmanns Björgvins Björgvinssonar, sem var maöur kvöldsins. Fram komst fljótlega í yfir- burðastöðu 5:1 og skoraði Björgvin 4 af þeim mörkum. Undir lok hálfleiksins var stað- an oröin 11:7 fyrir Fram, og 4 síðustu mörkin komu frá Frömurum staðan f hálfleik var því 15:7. Með þetta vegar- nesti gátu Framarar ekki tapað fyrir hinu daufa FH-Iiöi, sem virtist hafa skilið FH-hraöann sinn eftir suður í Firði. Að vísu tókst FH lengi vel að halda 6—8 marka mun, en minnstur munurinn var í 17:12. í 10 marka mun komust Fram- arar í 23:13 og leikinn unnu þeir verðskuldað með 26:15. Þessi leikur var óvenjulegur að því I^yti að hér var eins og köttur ög mús í ójöfnum leik, FH vár ekki boðlegur mót- herji fyrir Fram, jafnvel þó að Sigurbergur og Þorsteinn, þess ir stólpar í Framliðinu, væru ekki með. Meðal þess sem FH brást var markvarzlan, sem var í molum. Liðið virtist heldur ekki hafa mikinn áhuga. Geir einn stóö upp úr meöalmennsk- unni. Framliðið lék hins vegar vel og leikmenn jafnir. Dómari var Reynir Ólafsson og dæmdi hann mun lakar en hann ætti að geta gert bezt, er sennilega ekki í ákjósanlegri æf ingu eins og raunin er um fleiri ágæta menn í þeirri stétt. Á- horfendur komu fáir þetta kvöld, það var ’ ví heldur lágur kúfurinn á þessum mótslokum 29. íslandsmótsins i handknatt- leik — jbp — 10KS KOM VÍKINGS- SIGURINN, EN 0F SEINT — Valsmenn fengu ekkert stig i seinni umferð 7. deildar VlKINGAR voru dauðadæmda liðið í 1. deild í handknattleik áð ur en þeir mættu Valsmönnum í gærkvöldi, þeir eiga fyrir hönd- um setu í 2. deild og sennilega missa þeir risana sína báða, þá Jón Hjaltalín og Einar Magnús- son, þótt það sé ekki fullvíst enn, en báðir eru í stúdentspróf- um, nýbúnir að „dimittera“, og hyggja á nám erlendis næstu árin. Víkingar unnu þó þarna sín fyrstu 2 stig, — og fá því 3 stig í keppninni, — fyrsta stig- ið fengu þeir í fyrsta leik keppn- innar gegn FH. Leikurinn var heldur slakur, en einstaklingsframtak Jóns Hjaltalín var furðulegt, og sem dæmi má taka að hann skoraði 7 af 9 mörk- um Víkings í fyrri hálfleik, en Vals menn leiddu þá með 12:9. Tvö fyrstu mörkin í seinnimálfleik skor aði Rósmundur fyrir Vfking, staðan var þá 12:11 fyrir Val, en eftir 8 mín leik jafnar Vikingur í 14:14 og Einar skorar 15:14 fyrir Víking. Valur komst yfir 16:15 en Víking- ar jafna og komast yfir 17:16 og 18:16 og í 3 marka forskoti voru Víkingar f 20: 17 og 22:19. Þegar 2 mín. voru eftir var staðan mjög jöfn og leikurinn spennandi, 22:21 fyrir Víking, en þá skorar Jón Hjaltalfn skemmtilega 23:21 en Her mann átti lokaorðið 23:Í!2, — en stigin voru bæði Víkings. Jón Hjaltalín skoraði 11 mörk í Ieiknum og bar af öðrum, jafnvel þó að hans væri vel gætt. Bergur Guðnason vakti athygli með vfta- köst sin, en hann tók 32 vitaköst alls í mótinu, — aðeins 2 mis- heppnuðust. Kópavogur gerði sjö breytingar! Litla bikarkeppnin í knattspyrnu hófst um helgina í Keflavík og á Akranesi, — Keflvíkingar unnu Kópavog 4:2, mest vegna fram- taks Magnúsar Torfasonar, sem skoraði 2 síðustu mörkin 7 síðustu mínútur leiksins fyrir Keflavík. — I Kópavogsliðið var mjög breytt frá fyrri árum, — 7 breytingar hafa verið gerðar, og virðast til bóta. Keflavíkurliðið var og mjög breytt. en 2—3 leikmenn vantaði í liðið. Akranes og Hafnarfjöröur gerðu jafntefli á Akranesi á laugard. 3:3. Nánar verður sagt frá keppninni í blaðinu á morgun. Jón Hjaltalín Magnússon Staðan í 1. deild L U J T Mörk St. Fram 10 8 1 1 215-172 17 Haukar 10 7 0 3 222-205 14 FH 10 5 2 3 210-200 12 Valur 10 4 0 6 197-198 8 KR 10 3 0 7 185-213 6 Víkingur 10 1 1 8 174-215 3 Markahæstu menn Islandsmóts- ins í 1. deild. Jón Hjaltalín Víking 75 Bergur Guðnason Val 64 Gísli Blöndal KR 55 Geir Hallsteinsson FH 53 Gunnl. Hjálmarsson Fram 50 Þórður Sigurðss. Haukum 48 Hilmar Björnsson KR 45 Páll Eiríksson FH 45 Hermann Gunnarsson Val 42 Viðar Sfmonarson Haukum 42 Stefán Jónsson Haukum 40 Öm Hallsteinsson FH 38. Ingólfur Óskarsson Fram 37 Einar Magnússon Víking 35 Þórarinn Ragnarss. Haukum 26. Guðjón Jónsson Fram 26 Gylfi Jóhannsson Fram 24 Sigurður Jóakimss. Haukum 23 Geir Friðsteinsson KR 22 Ólafur Ólafsson Haukum 22 Sigurður Einarsson Fram 22 Karl Jóhannsson KR 21 Ágúst Ögmundsson Val 20 SUPER SILIC0NE með þessu vörumerki VATNVERJA Verndur þettu hús En ekkki þettu ■ ' //'///■ 'r/:f// 7 4 Bera skal á skeljaða og hraunaða veggi til að verja húðina og til vamar leka á húsinu. Kl 51 LLMk LÆKJARGÖTU 6b • SÍMI 15960 sssri

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.