Vísir - 22.04.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 22.04.1968, Blaðsíða 7
7 VÝSTR . WSnudagur 22. aprfl 1968. / morgun útlönd f morgun útlönd í raorgún útlönd í raörgun útlönd ÁR LIÐIÐ I GÆR FRÁ BYLTINGU HERNAÐARSINNA í GRIKKLANDI Papadopoulos flutti ræðu i nær mannlausri Aþenu, en kúgun herstjórnar hans var mótmælt i ýmsum löndum £ í gær var ár Iiðið frá því að grísku hershöfðingjamir steyptu borgaralegu stjórninni. George Papadopoulos forsætis- ráðherra flutti ræðu og meðan hún var flutt fóru skriðdreka- sveitir um götur þær, — sem mestu hlutverki gegndu í bylt- ingunni, En við lá að Aþena tæmdist í gær því að menn fóru þúsundum sam- an út úr borginni til þess að halda hátíölega páskana, en í gær yar páskadagur grískkaþólskra. í aðalfangelsinu £ miðhluta borg- arinnar kom til uppþota. Kröfðust pólitískir fangar, sem þar voru í haldi, freisis síns og geröu uppsteit. Sfðar fréttist. að stjórnin hefði frestað hátíðahöldum út af valda- tökunni. í London söfnuðust um 5000 manns saman á útifundi á Trafalg- ar-torgi og flutti þar ávarp Melina Mercouri, sem kallaði liðið ár ,,ár smánarinnar, — það hefði verið ár smánar og kúgunar. Samþykkt var einróma ályktun til mótmæla gegn hemaðarstjórn- inni og gerðum hennar. í Vestur-Berlín og mö.rgum vest- ur-þýzkum borgum var látin í Ijós andúð á hernaöarstjórninni. Mesta flugslys í Suður-Afríku til þessa, —123 létu lífið af 129 Flugvélin sem fórst var af gerðinni Boeing 707 • 1 fyrrakvöld barst frétt um það frá Suður-Afríku, að farizt hefði við flugtak í Wind- hœk f Suðvestur-Afriku, far- þegaþota af gerðinni Boeing 707, og mcð henni yfir 120 manns. 1 nánari fréttum var svo sagt, að 123 hefðu farizt, en 6 komizt Mfis af. Flugvélin var á leiö til Evrópu með viökomu í portúgölsku ný- lendunni Angola, en þaöan átti að fljúga til Vestur-Þýzkalands og London. Rétt eftir flugtak kviknaði í einum hreyfli flug- vélarinnar og breiddist eldurinn út á svipstundu og varð í henni mikil sprenging, er hún hrapaöi til jarðar, og hentust brot úr flugvélinnj í allar áttir, sum marga kílómetra. Flugvélin hrap aöi til jarðar aðeins 40 km frá Windhoek. Hún var í 200 metra hæð, er kviknaði í henni. Flug- vél sömu tegundar fórst með svipuðum hætti á Heathrow- flugvelli, Englándi, fyrir hálfum mánuöi, og létu 5 menn lífið. Kosygin og Indira Gandhi sam- mála um Varsjá sem viðræðustað Kosygin forsætisráðherra Sovét- rfkjanna kom viö í Nýju Dehli á heimleiö frá Pakistan og ræddi við Indiru Gandhi forsætisráðherra um Víetnam. í tilkynningu um viðræður þeirra segir, að þau hafi verið sammála um að styðja tillögu stjórnar Norð- ur-Vietnams um að undirbúnings viðræður að friði f Vietnam fari fram í Varsjá. Einnig ræddu þau sambúð Ind- lands og Pakistans og fleiri vanda- mál. — í Pakistan hvatti Kosygin bæði löndin til að leysa öll vanda- mál í anda Tasjkent-samkomulags- U THANT RÆDDI EKKI VÍETNAM I PARÍS Mikið var um það rætt fyrir helg- ina, að U Thant muridi ræða viö Mai Van Bo fulltrúa N.-Víetnam, er hann hafði viökomu i Parfs á leið sinni til Teheran, en það varö ekki. — U Thant gisti í París í nótt Francostjórnin hefir fallizt á lausnarbeiðni rektora I Madrid-háskóla Spánska stjórnin hefur fallizt á lausnarbeiðni rektors Madrid-há- skóla og tveggja aðstoðar-rektora háskólans. Óeirðasamt hefur verið f háskól- anum undangengna sex mánuði. — Martin rektor bauðst til að biöjast lausnar eftir aö mikið lögregluliö ruddist inn á háskólalóðina til þess að dreifa stúdentum. Þaö er og sagt, að hann og öll háskólastjóm in hafi hótað að fara frá ef stjórnin breytti ekki stefnu sinni gagnvart stúdentum. Farfuglar Áðalfundur Farfugladeildar Reykjavíkur og B.I.F. verður haldinn mánudaginn 22. apríl kl. 8.30 að Laufásvegi 41. DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Stjórnin í gistihúsi skammt frá fiugvellin- um og hélt áfram flugleiðis ferð sinni f gær. 1 Stokkhólmi söfnuðust menn saman fyrir utan skrifstofur grísku ferðaskrifstofunnar og var brotin þar rúða. Þarna munu aðallegá hafa verið Grikkir saman komnir. Fjöldnbrottrekstur úr pólsko kommún- istaflokknum Mikill brottrekstur hefur átt sér stað úr pólska kommúnistaflokkn- um. Hvorki fleiri né færri en 8000 menn voru gerðir rsékir úr flokkn- um á fyrsta fjórðungi ársins. Samkvæmt frétt frá Varsjá voru 6951 strikaðir út af félagaskránni •vegna athafna- og áhugaleysis flokksmál varðandi, en 1404 fyrir að hafa brotið af sér „siðferðilega" Lagði sveig á styttu Byrons í Abenu og var handtekinn • Fulltrúi brezka Verkamanna- flokksins, John Frazer, lagði á föstudag sveig á styttu Byr- ons í miöhluta Aþenu, en á sveignum var borði með tilvitn- un úr verkum skáldsins: „Mig dreymdi, að enn gæti Grikkland öðlazt frelsi“. — Frazer var þeg- ar handtekinn og var í gæzlu lögreglunnar í klukkustund, en var leyft að fara, þegar er sann- aðist, hver hann var. Hann fór þegar til baka til London flug- leiðis. Bókmenntakynning Leikfélags "ópavogs helguð MAGNÚSI ÁSGEIRSSYNI, skáldi, verður haldin í félagsheimili Kópavogs í kvöld kl. 21. Flutt verður úr frumsömdum og þýddum ljóðum eftir Magnús Ásgeirsson. Flytjendur: Kristinn Hallsson óperusöngvari. Undirleik annast Ól- afur Vignir Albertsson. Ljóðalestur annast Baldvin Halldórsson leikari, Helga Harðardóttir, Sigurður Grétar Guðmundsson, Gunn- vör Braga Sigurðardóttir og Björn Einarsson. Ræðu flytur Jóhann Hjálmarsson skáld. Kynnir: Ragnar Jónsson forstjóri. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. CANIA Scania L 80 er l^ttbyggð vörubifreið frá Scania Vabis verksmiðjunum í Svíþjóð. Scania L 80 er vörubifreið, sem hentar vel miðað við núgildandi vegareglur. Scania L 80 fæst fyrir nær sama verð nú og samsvar- andi bifreið kostaði fyrir síðustu gengis- breytingu. Scania L 80 er ein ódýrasta vörubifreiðin á markaðn- um f dag miðað við burðarmagn og út- búnaö. Scania sparar allt nema aflið ISARN H.F. REYKJANESBRAUT 12 • SÍMI 20720 /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.