Vísir - 02.05.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 02.05.1968, Blaðsíða 1
Húsvikingar notuðu hafisinn til að komast Fóru á vélsleða til að bjarga farmi úr „Hans Sif" út að hinu strandaða skipi Daglaun nægi viSurværis // var aðalkrafa verkalýðsins I. mai U Hátíðahöld 1. maí, frí- dags verkamanna, fóru fram í gær eins og venja er til. Veður var gott, sólskin og bjart yfir, þótt fremur væri kalt. Klukkan háiftvö tóku menn úr hinum ýmsu verkalýðsfélögum að safnast saman við Iðnó til að undir- búa skipulag kröfugöngu dagsins. Um tvö Ieytið höfðu menn síðan skipað sér undir kröfu- spjöld og fána, íslenzka fán- ann og rauða fánann. Merki verkalýðsfélaganna voru bor- in f göngunni, sem var fjöl- menn. Lúðrasveitir léku göngulög, og í fararbroddi var aö sjálf- til lífs- sögðu Lúðrasveit verkalýðsins. Fjölmargir höfðu komið sér fyrir í góða veðrinu á Arnar- hóli til þess að sjá kröfugöng- una fara framhjá með spjöld og borða. Menn horfðu niður á endann á Hafnarstræti og biðu þess, að göngumenn kæmu í Ijós. Og innan skamms heyrðist trumbusláttur og hinir fremstu í kröfugöngunni birtust. Lúðra- sveit Reykjavíkur hóf að leika ,,Sjá roðann í austri", þegar gengið var upp Hverfisgötuna. Á borðana og spjöldin, sem borin voru í göngunni voru letraðar ýmsar kröfur verka- lýðsfélaganna, svo sem krafa um, að daglaun nægi til lífs- viðurværis, krafa um næga vinnu o.s.frv. Ýmsar áletranir voru einnig bornar, þar sem komið var inn á alþjóðastjórnmál, og virtist Vietnam-stríðið vera efst á baugi. Aftast í göngunni fór hópur ungs fólks, sem æpti í sífellu: „Hó, hó — Ho Chi Minh“ eða þá „Kó kó - Kos- »-»■ 10. síða Húsavík farm hins strandaða skips, en það hafði lestað síldarmjöli. — Skömmu eftir strandið tókst Einari að bjarga talsverðu magni af síld- armjöli, svo að líklegt er, að hann sé búinn að hafa upp í kostnað, það er að segja, ef semst um sölu á mjölinu. Ingvar Þórarinsson, fréttaritari Vísis á Húsavík, tjáði blaðinu, að Einar væri þó ekki að baki dottinn með björgunaraðgerðirnar. Þegar hafísinn lá við land á dögunum og 10. síða ALÞJÓÐLEGUR VARAFLUGVÖLLUR Mikíll mannfjöldi safnaðist saman í Miðbænum í góða veðrinu í gær. Þótt það kunni að virðast mót- sagnakennt, er eins og danska skip- ið Hans Sif hafi komi i örugga höfn, þegar það strandaði í vetur fyrir norðan land, því að hafís og vetrarsjóir hafa ekki náð að hnika þvi um set eða valda á því frek- ari skemmdum. Eins og kunnugt er keypti Einar M. Jóhannesson verksmiðjustjóri á VISIR TEIKNAÐUR í AÐALDAL — Flugvöllurinn myndi órva mjóg umferð um Keflavikurflugvöll og gera Loft- leiðum kleift að taka um 4ra tonna meiri fragt i flugferð ■ Flugmálastjórnin hefur lát- ið gera á því athugun, hvar heppilegast væri að gera alþjóð- legan varaflugvöll hér á landi og hefur komizt að þeirri niö- urstöðu, að Aðaldalur, þar sem flugvöllurinn í Húsavík ei nú, i væri heppilegasti staðurinn. — 5 Ólafur Pálsson flugvallarverk- j fræðingur gerði í fyrrasumar at- i huganir á stækkunarmöguleik- 1 um Húsavíkurflugvallarins og j aðflugi að honum, en til saman- I burðar var gerð athugun á Eg- ilsstaðaflugvelli og Akureyrar- flugvelli. Aðflug er mjög erfitt bæði að Egilstaðaflugvelli og Akureyrar- flugvelli, en einnig væri mjög dýrt að stækka báða þá flugvelli í nauösynlega stærö fyrir alþjóð- legt flug. Flugmálastjórnin lét aö sjálf- sögðu fyrst og fremst gera athug- anir á þeim stöðum, þar sem flug- vallargerð gæti komið að sem mestu gagni fyrir innanlandsflug og beindist því athugunin fyrst og fremst að Egilsstöðum. Þar þyrfti að skipta um jarðveg á stórum svæðum, ef lengja ætti núverandi flugbrautir, en einnig má búast við að hækka þurfi allar flugbrautirnar vegna fyrirhugaðrar virkjunar Lagarfoss. Vísir hafði samband í morgun við Alfreð Elíassen, forstjóra Loft- ieiða og Björn Friðfinnsson, bæjar- 10. síöa. Óvíst að ísinn hverfi fyrr en um mitt sumar'' segir Páll Bergþórsson — eitt mesta maifrost i áratugi — Enginn fiskur á grunnmiðum vegna sjávarkulda □ „Það er óvíst, hve- nær við verðum laus við hafísinn. Hann getur verið hér fram á mitt sumar úr þessu,“ sagði Páll Bergþórsson veður- fræðingur í samtali við biaðið í morgun. ísinn hefur rekið að landinu síðustu daga og er nú landfastur víða við Norð-Austurland. ísinn fjarlægðist landið á tímabili, en Iónaði þá skammt undan strönd- unum, og strax og gerði norðanátt rak hann að aftur. Er nú talsvert ís- hrafl suður með Aust- fjörðum og siglingaleið- ir eríiðar. Mikill kuldi er alls staðar þar sem ísinn liggur að ströndinni og komst frostið í 16 stig á Raufarhöfn í fyrrinótt, og er það eitt mesta maífrost sem vit- að er um rá því mælingar hóf- ust. Sjávarkuldi er einnig mjög mikill og er enginn fiskur á grunnmiðum við Norðurland. Ieitar fiskurinn á meira dýpi, og liggja t.d. hrognkelsaveiðar niðri á Húsavík af þessum sökum. Páll sagði ennfremur að ekki væri óalgengt að ísinn kæmist í hámark um þetta leyti árs, en nú er ijóst að ísinn er orðinn meiri en hann varð árið 1918. Hefur jafnvel komið fyrir að ís- inn hyrfi ekki fyrr en komið er fram í ágúst, og hafa vorin þá verið mjög köld og sumar- koma miklu seinni en ella. Ekkert útlit er fyrir hlýnandi veður eins og stendur og er spáð norðaustanátt og kólnandi veðri. Nýju eldspýturnur komnnr til Inndsins Eldspýturnar nýju eru komn- ar til landsins, oh verða eflaust i margir fegnir því, vegna þess að ekki eru ailir sammála um ágæti þeirra eidspýtna, sem við eigum nú að venjast, enda hafa þær sett margan brunablettinn | á nælonskyrtur. í hinum nýju eldspýtnabréf- um eru 20 eldspýtur, og fara I bréfin ólikt betur í vasa, held-1 ur en heilir stokkar með 50 , spýtum. Utan á bréfin hafa ýmis fyrirtæki látið prenta auglýsingar frá sér. Bréfin koma væntanlega a | markað innan skamms, og er, gert ráð fyrir að þau verði seld jafnhliða stokkunum, svo að1 hver og einn geti valið að vild | sinni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.