Vísir - 08.05.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 08.05.1968, Blaðsíða 2
V1SIR . Miðvikudagur 8. maí 1968. I lok maímánaðar hefst keppni hjá 2. og 3. deildar liðunum í knatt- spymu og má þar búast við spenn- andi og skemmtilegri keppni eins og svo oft áður. I 2. deild eru 8 lið, og hefur verið dregið í riðla í þeirrl deild, en þar mætast í A-riðli: FH, Haukar, Víkingur og Þróttur. í B-riðli leika Breiðablik, Selfoss, Akranes og það lið, sem sigrar í aukaleiknum milli ísafjarð- ar og Siglufjarðar, sem leikinn verður á Melavellinum 22. maf n.k. En á sfðasta keppnistímabili vannst ekki tfmi til að leika þenn- an úrslitaleik á milli þessara liða, sem þá uröu neðst f sínum riölum. Liðið, sem tapar þessum leik, fell- ur niður í 3. deild og lelkur þar í ár. Glímumót Sunnlendingu- fjórðungs Glímumót Sunnlent’ingafjórð- ungs er ákveðið að fari fram í íþróttahúsinu í Kópavogi, sunnu- daginn 19. maf n.k. og hefst kl. 3 e.h. Ungmennasamband Kjalamess- þings sér um framkvæmd móts- ins, og ber að tilkynna þátttöku til Pálma Gíslasonar, Hraunbæ 36, Rvík, sími 82790, fyrir 14. þ. m. Hafnfirzkir ÍSLEN2KUR DÓMARI GERIST Siglufjörður og ísufjörður keppu urn full í 3. deild ATVINNUMAÐUR Í NEW YORK Tvísýn keppni / badminton Óskar sigraði Jón Árnason i úrslitaleik 1 kvöld leika Fram og Þróttur í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu á Melavellinum. Leikurinn hefst kl. 20, en á morgun heldur mótið áfram með leik milli Vals og Vík- ings og veröur fróðlegt að sjá, hvemig Víkingar spjara sig gegn Islandsmeisturunum. iðnnemar sigursælir Laugardaginn 27. og sunnudag- inn 28. apríl var haldin formanna- ráðstefna iðnnemafélaga víðs vegar að af landinu, á Siglufirði, og voru mættir þar fulltrúar 14 félaga, sem ræddu ýmis mál varðandi kjör og aðbúnaö iðnnema í hinum ýmsu námsgreinum iðnaðarins á landinu. Jafnframt fór fram landsmót iðn- nema f handknattleik í íþróttasaln- um mikla í sundhallarbyggingunni á Siglufiröi. Um 80 utanbæjariðnnemar sóttu þetta mót auk Siglfirðinga eða full- trúar frá 7 iðnnemafélögum. Leikinn var 21 leikur og urðu úrslit sem hér segir: stig 12 10 8 1. Iðnnemafélag Hafnarfjarðar 2. Iönnemafélag Akureyrar 3. Rafvirkjanemar Reykjavík 4. Húsasmíðanemar Reykjavík 7 5. Húsgagnasm.nemar Rvík 3 6. Járniönaðarnemar Rvík 2 7. Iönnemafélag Siglufjarðar 0 Mót þetta fór hið bezta fram og sá Iðnnemafélag Siglufjarðar um undirbúning og framkvæmd þess. í félaginu eru 26 félagsmenn. For- maður þess er Viktor Þorkelsson. þ. r. j. •irrrir-ifitfT- rt^-rrninitt'T’^iTP^r*1—^* Grétar Norðfjörð, sem starfar hjá S.Þ. i New York hefur nú byrjað aftur að dæma, — og nú gegn greiðslu GRÉTAR NORÐFJÖRÐ knattspymudómari, hef- ur um nokkurra mánaða skeið starfað sem örygg- isvörður hjá Sameinuðu þjóðunum í aðalstöðv- unum í New York. Sam- kvæmt fréttum, sem blaðinu hafa borizt af Grétari hefur hann nú að nýju tekið að blása flautuna, — og í þetta sinn fær hann greitt fyr- ir leikina, enda varla ger andi þar vestra nema fyrir peninga svo mikill er blóðhitinn í mönnum þar og eiga dómarar allt- af von á limlestingu eða einhverju þaðan af verra. Grétar starfar fyrlr N. Y. Sóccer Association og byrjaöi að dæma í marz s.l., en lands- dómararéttindin fékk hann í síðasta mánuði. Veitir þetta þau réttindi að dæma leiki i meist- araflokki eingöngu, en síðar er reiknað með að hann dæmi i atvinnúdeildinni, líklega í júni- máittiði. Laun fyrir að dæma eru ágæt, eða umreiknað í ísl. kr. um 1140 krónur til 1425 fyrir leik, en hjá atvinnuliðunum er greiðslan frá 2280 til 3420 kr. fyrir leik. Fyrir nokkru dæmdi Grétar leik milli leikmanna frá Argent- inu og Equador og var bæðl lelkmönnum og áhorfendum heitt i hamsi eins og oft vill verða í leikjum þessum, — tók það 45 mín. bara að geta hafið leikinn, en utan vallar tvístigu menn með kylfur og barefli, en alls tók lelkurinn liðlega 2 klukkutíma eftir að hann loks hófst. Leikur þessl var þama leikinn í annaö sinn, fyrri dóm- arinn hafði verið barinn í höf- uðið með spýtu, og varð því að aflýsa honum i fyrra sinnið, en Grétari tókst að ljúka keppni þessari. Fékk hann ágæta dóma fyrir leikinn og aðra leiki, sefn hann hefur dæmt. Grétar er fyrsti ísl. dómarinn sem gerist atvinnu dómari svo að vitað sé. Launa- listi fyrir leiki þessa mun sam- þykktur af FIFA. íslandsmeistaramóti í badmin- ton lauk í Reykjavík á sunnu- daginn var, og tóku alls um 80 manns þátt í því, frá Reykja- vík, ísafirði, Akranesi, Kefla- vík, Stykkishólmi og Grundar- firði. ÓSKAR GUÐMUNDSSON, sigurvegari í einliðaleik karla. Kristján Benjamínsson for- maður Badmintonsambands ís- lands sleit mótinu og afhenti verðlaun að Hótel Sögu á sunnudagskvöld. Keppt var í tveimur flokkum, þ. e. meistaraflokki og fyrsta flokki, og fóru leikar sem hér segir: Sigurvegarar í meistaraflokki: Einliðaleikur karla: Óskar Guðmundsson, K.R. Tvíliðaleikur karla: Jón Árnason og Viðar Guðjónsson, T.B.R. Tvíliðaleikur kvenna: Hulda Guðmundsdóttir og Rannveig Magnúsdóttir, T.B.R. Tvenndarleikur: . Jónína Nil- johníusdóttir og Lárus Guð- mundsson, T.B.R. Sigurvegarar í fyrsta flokki. Einliðaleikur karla: Páll Ammendrup, T.B.R. Tvíliðaleikur karla: Haraldur Kornelíusson og Kolbeinn I. Kristinsson, T.B.R. Tvíliðaleikur kvenna: Hanne- lore Þorsteinsson og Selma Hannesdóttir, T.B.R. Tvenndarieikur: Hildur Sig- urðardóttir og Jóhannes Guð iónsson, íþr.b. Akranes. Allir sigurvegararnir úr fyrsta fiokki flytjast upp í meistáraflokk. Keflavík efst í Litlu bikarkeppninni Á laugardag fóru fram tvelr leikir í Litlu bikarkeppninni og komu úrslit i þeim leikjum mjög á óvart. í Kópavogi lék Breiðablik við Keflavík, og fór svo að liðin skildu jöfn, 3—3, eftir spennandi og skemmtilegan leik. ÍBK, sem engu stigi hafði tapað i sínum fyrri leikjum í keppninni, mátti vel við una aö þessu sinni. Hinir ungu leikmenn Breiða- bliks, höfðu enga minnimáttar- kennd fyrir 1. deildarleikmönnunum úr Keflavík að þessu sinni, léku vel og yfirvegað og með smá- heppni hefðu þeir eins getað náð j í bæði stigin. 1 hinum leiknum, sem var á milli Akraness og Hafnarijarðar, urðu úrslitin enn furðulegri, en í leik Breiðabliks og ÍBK. Þar sigr- aði Hafnarfjörður Akranes öllum á óvart, 3—0, og verðskulduðu þeir þann sigur. Þeir léku betur og höfðu betra kepprtisskap en hinir, og það sem mest hafði að segja, að nú var ,,mórallinn“ í lagi hjá öllu liðinu. Staðan í Litlu bikarkeppninni að hp'-cum leikjum loknum: ÍBK 4 3 10 15-6 '7 Breiðablik 4 112 12—9 3 ÍA 4 1 " 1 6—10 3 ÍBH 4 12 1 6—14 3 ^AíS’Jstsapc, ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.