Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 1
t VISIR 58. árg. — Föstudagur 31. maí 1968. —,118. tbl. 274 ntilljön krónn lón tekið í Hombros-bnnka í gær var undirritaður lána samningur milli ríkisstjómar Is- lands og Hambros Bank i Lond on um 2 milli. sterlingspunda lán (274 miíli. kr.) vegna fram- kvæmdaáætlunar ársins 1968. Verðbréf verða seld fyrir iáninu f London, en þau bera sy2% vexti og er söluverð þeirra 98% Lánstíminn er 25 ár og er lánið afþorgunarlaust fyrstu fimm ár- in. Gripið var til þess ráðs að afla lánsfjár á erlendum pen- ingamarkaði vegna erfiðleika á Öflun lánsfjár á innlendum vett vangi. Lánið er tekið vegna þeirrar nauðsynjar af atvinnu- ástæðum að draga ekki að ráði úr opinberum framkvæmdum éða aöstoð við stofnsjóöi at- vinnuveganna. Borgarstjóri Edinborg- ar skoðar Reykjavík Borgarstjóri Edinborgar, Sir Herbert Breshen, kom til Reykja- víkur en hér mun hann dvelja I fjóra daga í boði Reykjavikurborg- ar. Hann mun skoða borgina. stofn anir hennar og fyrirtæki ásamt konu sinni. Myndin er tekin í morgun, þar sem borgarstjórinn var staddur á Öskjuhlíðinni ásamt Jóni E. Ragn- arssyni, fulltrúa borgarstjóra, sem fylgdi borgarstjórahjónunum um borgina. Taimanoff, Szabo, Ingi og Vasjúkoff. „Háskólanám Fríðriks mun ekki há honum á mótinu" segja rússnesku skákmeistararnir • Fiske-skákmótið svo- nefnda mun hefjast á hvíta- sunnu, og eru flestir hinna erlendu meistara komnir til landsins. Blaðið hafði í gær tal af þremur þeirra, sovézku stórmeisturunum Taimanoff og Vasjúkoff og austur-þýzka stórmeistaranum Uhlmann. Þetta er í annað sinn, að Rúss arnir koma hingað til iands. Taimanoff tefldi hér árið 1956 á móti meö tveimur Rússum og tíu tslendingum. Vasjúkoff kom hingað fyrir Lveimur árum og tefldi á móti. Þeir hafa ekki teflt oft við Friðrik Ólafsson, Taimanoff 2-3 sinnum, en Vasjú koff tefldi skák við hann, sem réði úrslitum í sterku skákmóti í Moskvu 1961. Friðrik varð þar í þriðja sæti, sem var einn hans glæsilegasti árangur. Allir færustu skákmenn Sovét ríkjanna kannast við Friðrik, og á Moskvumótinu kom fólk í hópum til að sjá hann. Rúss- arnir telja, að Bent Larsen hefði ekki náð svo langt, sem raun ber vitni, ef Friðrik hefði látið meira að sér kveða að undan- fömu. Þeir áifta, að það muni ekki há Friðriki verulega, að hann hefur lítið sinnt skák að undan- förnu. Taimanoff hefur einnig sín áhugamál auk skáklistarinn ar. Hann leikur á píanó. í fimm mánuði hefur hann ekki getað sinnt skáklistinni. „Þetta er bara betra“, sagði hann. „Þegar ég hef helgað mig tónlistinni um skeið, hungrar mig í skák.“ Rússarnir segja, að Larsen sé færasti skákmaður Vesturlanda. Bobby Fisher mundi aldrei geta iö. si»tu ■j \ ? : ^ ' . r%, ■m De Guulle fár til Baden Baden ! \ Ræddi þar við yfirmenn franska setuliðsins og tryggði sér hollustu þeirra ■ Þcgar de Gaulle hvarf á leið til iandseturs síns var hann í leyndarferð til Baden-Baden, en þar fullvissaði Massu hershöfð- ingi, yfirmaður frönsku hersveit- anna í V-Þ hann um hollustu hersins. Fréttir frá París árdegis í dag herma, að hafnir séu herflutn- ingar frá Vestur-Þýzkalandi til Frakklands og innanlands í Frakklandi. Áður hafði hernað- arlegur málsvari neitað að frétt- irnar væru réttar um liðflutning frá Vestur-Þýzkalandi. .Lítið kaup og lélegt fæði" — struku því af skipinu 1 Reykjavík 3 strokumenn af danska skipinu „Anna Lea" hafðir i haldi fram að brottfarartima skipsins Þrir skipverjar af danska skip inu „Anna Lea“, sem hér hef- ur verið að undanförnu, struku af >ví í fvrrinótt hér f Reykja- vík. Var þeirra saknað og út- lendingaeftirlitinu tilkynnt um hvarf þeirra og lögreglan beðin að hefja leit aö þeim. Fundust piltarnir allir i einu kaffihúsi bæiarins í gærkvöldi og voru þar handsamaðir. Einn þeirra er frá Chile í Suður-Ame- íku, en hinir tvéir eru Spán- verjar. Varla hafa blessaðir piþarnh gert sér fulla grein fyrir út í hvað þeir voru að flana, en þá skýringu gáfu þeir yfirvöldun- um, að beim hefði fundizt að- búriaðurinn vondur um borð i skipinu. Lítið kaup, mikil vinna og Iélegt fæði — eins og þeir orðuöu það sjálfir. Þeim var þó gert það ljóst, að hérna yrðu þeir ekki eftir og eru þeir geymdir í Hegningar- húsinu, þar til þeir verða fram- seldir yfirmönnum skipsins á brottfarartíma þess í kvöld. — Skipsmenn trevstu sér ekki til þess að halda strokumönnunum um borð til siðustu stundar og fóru þess á leit við ýfirvöldin, að þau geymdu þá bak við lás og slá fram til þess. Lið það, sem um getur í frétt- unum árdegis, er: Tvö skriðdreka- herfylki frá V.-Þ. og tvö fallhlffa- herfylki, sem flutt voru „í kyrr- þey“ frá Suðvestur-FrakklansJi til stöðva nálægt París. Skriðdreka- herfylkin, en um 1000 manna liö er í hvoru um sig, eru í Satory- herbúðunum nálægt París. Af op- inberri hálfu hefur ekkert verið sagt um þessa liðílutninga. Hið eina sem talsmaður landvarnaráðuneyt- isins fékkst til að segja, var að land- ið í grennd við Satory-herbúðirnar væri vel fallið til skriðdrekaæfinga og væri iðulega til þess notað. Op- inberar heimildir eru ekki fyrir lið- flutningum frá’ V.-Þ., en fréttir hafa borizt frá ýmsum stöðumi um liðflutninga milli herstöðva við París og landamæranna. M. a. er fregn um, að sézt hafi herflutninga- iest. í henni voru 50 bífar. I Frönskum hersveitum í Vestur- i Þýzkalandi hefur verið skipað að hafa allt tilbúið, ef skipun komi um að þær skuli halda inn i Ai fc ur-Frakkland, ef beðið yrði um ao- stoð til þess að halda uppi lögum og reglu. Frönsku hershöifðingjarnir í Vest ur-Þýzkalandi tjáðu de Gaulle í ferð hans til Baden-Baden, að þeir myndu styðja hann í einu og öllu vegna framkvæmda löglegra að- gcrða. Meðan de Gaulle var*i V.-Þýzka- landi var Mme de Gaulle hjá dótt- 10. síða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.