Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 9

Vísir - 31.05.1968, Blaðsíða 9
VISIR . Föstudagur 31. maí 1968. RAUÐI DANNI jþegar þetta er skrifað, er enn ekkert vitað með vissu, hver veröur endanleg ákvöröun de Gaulle forseta, en flestar lík- ur benda til þess, að hann hafi misst með öllu stjórnartökin. Samkomulag um lausn verk- fallanna hefur fariö út um þúf ur, stuðningsmenn hans virðast líka hafa snúizt gegn honum og tekið nú loksins af skarið um það, að í aðferðum sínum ætli hann sér að hrifsa meiri völd úr höndum þjóðþingsins en stjórnarskráin heimilar, til- laga hans um að efna til þjóö- aratkvæöagreiöslu um lausn vandamálanna sé ólögleg! Virö ist sem þessi ákvöröun hafi fengið mjög á de Gaulle, svo hann flúöi skyndilega úr París, faldi sig um tíma og hvarf loks til hins gamla sveitaset- urs síns f Colombey-les-deux- Eglises. Ef til vill hefur hann þar með farið að nýju í útlegð, eða er það enn mögulegt, aö hann búi yfir slfkum krafti að hann geti staðið sem klettur móti straumi? Um það verður ekki hægt að ræða hér og bíöur til næstu viku, þegar málin skýr- ast. En f stað þess langar mig hér til að rabba nokkuð um annan foringja, sem risið hef- ur upp með frönsku þjóðini, — mann sem var með öllu óþekkt ur fyrir nokkrum vikum, korn- ungur maöur, aðeins 23 ára gam all, og hann jafnvel útlend- ingur í landinu. Að vísu er vafasamt hvort hann sé þess umkominn að veita nokkra for- ustu f framtíðini, því að verk hans hefur aöallega verið aö rífa niöur. Hitt er þokukennd- ara, hvernig á að vera hægt aö byggja upp aö nýju eftir þau reiðarslög sem yfir hafa geng- ið. j^Jaöur sá sem ég á hér viö A er stúdentaforinginn Dani- el Cohn-Bendit. En telja verö- ur að hann eigi meiri þátt en nokkur annar í aö koma af stað þeirri ólgu og uppreisnar- anda, sem nú ríkir í Frakklandi svo að allt leikur á reiðiskjálfi. Eftir aö allt var komið í bál skrapp hann að vísu burt frá Frakklandi, skrapp austur til Þýzkalands til þess að leita samráða við uppreisnargjarna þýzka stúdenta. Og nú í vik- unni bárust fréttir um það, aö hann ætlaði að snúa aftur til Parísar, en franskir landamæra verðir meinuðu honum för yfir landamærin. Hann lét það þó ekki á sig fá, heldur læddist yfir marklínuna að næturþeli, sem er víst ekki mikill vandi, þar sem landamæragæzla milli þessara tveggja samstarfsríkja er að mestu afnumin, nema rétt með aðalvegunum. Um miðja vikuna var hann svo kominn aftur til Parísar í miðjan hóp stúdenta og hafði lögreglan engin tök á þVí aö grípa hann þar, enda annað meira ,sem hún þarf að sinna. JJaniel Cohn Bendit er sem fyrr segir 23 ára gamall, kallaður Danni rauði vegna þess, að hann er eld-rauðhærð- ur, Hann er fæddur f Frakk- landi, sonur Gyðingahióna sem flýðu Þýzkaland 1933. Hafði faðir hans verið málfærslu- maður í Berlín, og taldi hann ekki lífvænt þar eftir valda- töku Hitlers. Ekki mun fjöl- skyldan þó hafa oröið aö þola neinar beinar Gyðingaofsóknir og þó Þjóðverjar tækju síðar Frakkland, létu þeir þessa flóttafjölskyldu afskiptalausa. Árið 1958 eða sama árið og de Gaulle komst til valda þeg ar Daniel var 13 ára fluttust foreldrar hans aftur heim til Þýzkalands og stundaði piltur inn síðan nám í þýzkum mennta skóla í sex ár. Hafði hagur foreldranna batnað mjög við það að þau fengu sér dæmdar skaðab. fyrir eignamissi vegna fyrri- eignaupptöku nasista. Þegar Daniel hafði lokið mennta skólanámi hlaut hannmjöggóða námsstyrki, sem einnig byggð- ust á þeim ákvörðunum Þjóð- verja að bæta mönnum af Gyð ingaættum tjón á fjármunum og stöðu, sem þeir hefðu oröið fyrir. Styrkir þeir sem hann hefur notið, hafa verið svo ríf legir, að hann hefur vafalaust komizt betur af en flestir franskir stúdentar. 'C’g hef áður rætt hér um fyrsta tilefni stúdentaóeirð anna í Nanterre-háskólahverf- inu, sem var krafan um sam- blöndun kynjanna á stúdenta- görðunum. En sjálfur kallaöi Danni rauði þetta vandamál — „að kynferðismál stúdenta hafa ekki verið leyst.“ En hvað stúd entagörðunum viðvíkur, þá er þetta vandamál þó enn flóknara í augum hans og fylgismanna hans. Það er sem sagt höfuö- krafa þeirra, að stúdentagarð- arnir séu ekki ætlaöir einungis Daniel Cohn-Bendit. að þurfa að vinna meira en tvo til þrjá daga í viku, en lifa líkt og stúdentar eins og þá lystir. A ðalkjarninn í þessari hug- mynd er aö stúdentar og verkamenn eigi að mynda sam eiginlega alþýðuæsku, þannig myndi um leið leysast stétta- vandamálið, verkalýðurinn fá greiðari aögang að skólum og kynblöndun verða meiri milli hinna ólíku stétta. Það merkilega er, að einmitt í þessu efni verður fyrsti hug sjónaágreiningurinn milli stúd- entahópsins og kommúnista. Þetta kemur fram í því, að kommúnistar eru algerlega fjandsamlegir slíkri samblönd un verkalýös og stúdenta. Cohn-Bendit og félagar hans arfari í lýðræöisríkjunum vegna þess aö þar hafa loforðin verið svikin. í lýöræöisríkjunum sé þó enn ef til vill hægt að trúa á loforðin, þó menn hafi ill dæmi fyrir sér. „Við þurfum aö berjast á tveimur vígstöðvum"; sagöi Danni rauöi nýlega í samtali, — „Við þurfum á eina hliöina að berjast við de Gaulle, sem reynir að verja ríki sitt, en á hina hliðina þurfum við að berjast við Kommúnistaflokk- inn og kommúnísku verkalýðs- félögin, sem reyna að verja yf- irráö sín yfir verkalýösstétt- inni.“ Cohn-Bendit heldur því statt og stöðugt fram að þorri verka lýðsins sé í eðli sínu andvígur flokkskrumlum kommúnista og það hafi einmitt komiö mjög fyrir stúdenta, heldur skuli ungir verkamenn einnig fá vist þar. Það skiptir þessa ungu byltingarmenn litlu máli þó langt sé frá því að hægt sé aö fullnægja þörf námsmanna fyrir stúdentagarða. Hitt telja þeir mikilvægara að skapa sem nánast samband milli menntastéttanna og verka- manna og hefur þeim að þessu leyti verið likt við kínverska alþýðubyltingarmenn. Þeir halda því fram, að þaö sé ein stærsta þjóðfélagsbylting in, hve námsmönnum hefur fjölgað og hve almennur náms tími hefur þannig lengzt. Það eigi aö skipa málum þannig, að ungir menn allt fram undir þrítugsaldur eigi ekki að vinna nema að mjög takmörkuöu leyti, þetta aldursskeið eigi að nota til þess að hugsa og skapa sér hugsjónagrundvöll í lífinu. Þetta sama segja þeir að eigi einnig að gilda um hina tornæm ari þjóðfélagpmeðlimi, sem gef ast upp við langskólanám og gerast verkamenn. Þeir neyðist til að kasta sér út í fulla vinnu til að glíma við þann fjár hagsvanda sem leiðir af fjöl- skyldustofnun og húsnæðisút- vegun. En í stað þess eigi þeir kröfu til þjóðfélagsins um það að mega búa á stúdentagörð- um til þrítugsaldurs og eigi ekki segja að það sé vegna þess að kommúnistarnir vilji að verka lýöurinn sé áfram nokkurs kbnar þarfa-fénaöur, sem þeir geti beitt fyrir flokksstarf- semi sína. Þeir vilja halda verkalýðnum áfram niöurlægö um og. kúguðum, því aö á því byggist vald flokksins. Síðan má leiða þennan á- greining lengra. Stúdentarnir kringum Cohn-Bendit segjast vera sósíalistar og þeir viöur- kenna einnig gildi þeirrar stéttabaráttu, sem kommúnist- ar hafa beitt sér fyrir, — vegna þess að stéttaskiptingin fyrir- finnst í þjóðfélaginu. En síðan greinir þá á, — að kommún- istarnir vilja viöhalda stétta- skiptingunni, hversu fögur sem fyrirheit þeirra eru um afnám hennar. Stúdentarnir kringum Cohn-Bendit telja hins vegar, að það sé aðalatriðiö að afnema stéttaskiptinguna og skapa öli- um jafna afstöðu. Tjegar að því stigi kemur, að Marxistísk bylting yrði framkvæmd verður ágreining- urinn enn svæsnari. Hinir ungu byltingarsinnuðu stúdentar for dæma hugtakið „einræöi öreig anna eða verkalýðsins.“ Þeir segjast jafnvel hafa enn ríkari fyrirlitningu á einræðinu i kommúnistaríkjunum en stjóm- greinilega í ljós f síöustu á- tökum, þar sem málgögn komm únista sýndu þaö glöggt að þau vildu ekki þessi uppþot núna. Þau kölluðu stúdentana „fyrir litlega arnarkista" og þáu létu það i ljósi í samningaviðleitni, að þeir vildh ekki steypa de Gaulle. Ef til vill stafaði þaö af því, að kommúnistar álitu mótspyrnu de Gaulle gegn Bandaríkjunum mikilvæga, ef til vill af því að kommúnistar ótt uðust að yfirráöum þeirra yf- ir verkalýðnum væri hætta búin, þegar hin nýja byltingar stefna kenndi að verkalýður og stúdentar ættu að sameinast og ryöja úr vegi stéttaskipt- ingu. En greinilegast kom þessi á- greiningur í ljós, þegar bylt- ingarstúdentar komu í fylk- ingu að Renault-bílaverksmiðj- unum og vildu sameinast verka mönnum þar. Þeir fengu ekki inngöngu, ekki vegna þess að verkalýðurinn væri þeim and- vfgur, heldur af því að fulltrú- ar Kommúnistaflokksins eða heil skipulögð klíka þeirra í stjórn verkalýðsráöanna óttað- ist aö missa vald í samtökun- um. Allan tímann síðan hefur þessi barátta staðið, á að leyfa samvinnu stúdenta og verka- manna og kommúnistamir hafa m-y io. síða. TÍSm SF7B' Að þessu sinni leitaði blaðið til nokkurra Reykvíkinga og þótti tiihlýðilegt að spyrja einhvers í sambandi við H-breytinguna og var spumingin þannig: Hvað finnst yður erfið- ast við hægri umferðina? Friðjón Friðjónsson, skrifstofustjóri: Það er ekkert erfitt við að breyta yfir. Þetta er allt saman svo leikandi létt. Ég hef ekki gert neina vitleysu ennþá, held ég, og vonast til að það haldistj Ingólfur Waage, innheimtumaður: Mér er alveg sama, þótt ég aki hægra megin. Ég þekki bæ- inn svo vel, að það er engin hætta á að ruglast. Umferðin úti á landi veröur eflaust mun erfiðari og vil ég t. d. skilyrðis- laust láta breikka „Kambana“. Þorbergur Skúlason, vistmaður á Elliheimilinu Gmnd: Ég verð nú að segja, að það er oröið miklu erfiðara fyrir mig að hjóla, eftir að maöur þarf að vera á öörum kanti. Svo finnst mér bílamir taka allt of mikið „pláss" og vera dálítið fyrir manni. Annars finnst mér erfið- ast að hjóla, þar sem sandur er mikill og laus möl. Sigríður Haiblaub, húsmóðir: Mér finnst þetta ekkert sér- staklega erfitt. Ég hef nú frekar lítið ekið og ekki lent í neinum óhöppum. Bjó lengi í Þýzkalandi og varð þá mjög hægri sinnuð, þvl þegar ég kom hjngað, gekk ég á alla þá sem vom hægra megin á gangstéttum. Guðbjörg Magnúsdóttir, húsmóðir: Þetta er ekkert erfitt. Ég hef aðeing ekiö einu sinni á móti umferðinni og kom það þá ekki að sök. Annars finnst mér að umferðarmerki megi vera fleiri og laga beri ljósin á gatnamót- um Nóatúns og Laugavegar. Hef ekið i 6 ár og aldrei neitt komið fyrir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.