Vísir - 01.06.1968, Blaðsíða 6

Vísir - 01.06.1968, Blaðsíða 6
6 VI S IR . Laugardagur 1. júní 1968. TONABIO íslenzkur texti. — („Duel At Diablo") Víðfræg og snilldar vel gerð, ný, amerísk mynd i litum, gerð af hinum heimsfræga leik stjóra „Ralph Nelson.“ Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð bömum innan 16 ára. NYJA BIO Orustan i Laugaskarði (The 300 Spartans) Æsispennandi amerfsk lit- mynd, um frægustu orustu fomaldar. Richard Egan Diane Baker Bönnuð bömum yngri en 12 ára. Sýnd kl. 5 og 9. AUSTURBÆJARBÍÓ Hugdjarfi riddarinn Mjög spennandi ný frönsk skilmingamynd I litum og Cinemascope. Aðalhlutverk: Gerrard Barry. Sýnd kl. 5 og 9. íslenzkur texti. KÓPAVOGSBÍÓ Hvad er að frétta kisulóra? („What's new pussycat?") Heimsfræg og sprenghlægileg ensk-amerísk gamanmynd í litum. Peter Sellers Peter O'Toole ■yTanafestan er tvfbent. Hún getur veriö manninum nauðsynleg kjölfesta í hafróti tímans. En hún getur einnig verið honum óþægilegur drag- bítur í lffsbaráttunni. Bertrand gamli Russel, brezki stærð- fræðingurinn og heimsspeking- urinn, hefur komizt svo að orði að það sé ein af mikilvægustu stundum f lífi hvers einstakl- ings þegar hann staldrar viö andartak, klórar sér í kollin- um og spyr sjálfan sig: „Hvaða lögmál býður. að þetta þurfi nauðsynlega að vera einmitt svona?“ 1 rauninn er þessi spurning frumvaki allrar þróunar. Hún vekur óhjákvæmilega aðra spurningu: „Getur nokkuð sak- að þótt reynt sé að breyta til? Og þótt þetta hafi reynzt vel — þar það þá að vera sönn- Japanskur tvíbyrðingur, 41.5 m á lengd, 12 m á breidd, knúinn tveimur dieselvélum, 650 ha. Tvíbyrðingurinn — ,gömul nýjung', sem nú er að ryðja sér til rúms Tvöfalt burðarmagn — tvófaldur stöðug- leiki — minni vélarorka un þess aö annað geti ekki reynzt okkur betur?“ Ef viö virðum fyrir okkur skip, gildir einu hvort þaðerstórteða smátt, og rifjum um leið upp fyrir okkur teikningar og mynd ir, sem við höfum séð af vfk- ingaskipunum gömlu, róm- versku galeiðunum eða egypzku Nílarskipunum, eins og þau hafa verið sýnd á myndum f grafhýsum Faraóanna þá kom umst við aö raun um, aö skip- ið, byrðingurinn, hefur ekki tek- ið neinum breytingum að kalia, hvað lögun snertir, frá þvf á fyrstu tíð. Jafnvel byrðingur hraðskreiðustu, stærstu og ný- tízkulegustu farþegaskipanna, sem flytja kröfuhöröustu og vandlátustu ljúfalífsfjölskyld- umar heimsálfanna á milli, á furðumargt sameiginlegt við eintrjánunga steinaldarmanns- ins. Samkvæmt þessu munu margir telja, að þetta sanni aö þessi byrðingslögun sé hin eina rétta, þaö komi ekki til neinna mála, að menn hefðu verið svo fastheldnir á einmitt þetta bygg ingarlag byröingsins ,ef líkur væru fyrir því að annað reynd- ist betur. Samt sem áður hefur þetta byrðingslag vissa ókosti. Það krefst þess aö þyngdar- punktur skipsins sé neðarlega, og takmarkar samt sem áður yfirbygginguna og hleðslu á þil fari, meö tilliti til stöðugíéika. Það er þvi ekki nema eðlilegt þótt númtíma skiptasmiðir leggi spurningu Russels gamla fyrir sig — er nauðsynlegt að fylgja þessari ævafornu venju varð- andi lögun byröingsins? Pólínesar á Suðurhafseyjum hafa svarað þeirri spurningu neitandi, minnsta kosti að vissu leyti, frá ómunatíð. Til þess að sigrasta á veltihættu byrö- ingsins, hafa þeir njörvað sam- an tvo byröinga með þverstöng- um og sigla þannig réttum kili gegnum brim og boöa. Síðustu árin hafa bandarískir og brezk- ir skipasmiöir smíðað nokkra litla tvíbyrðinga, hraöbáta og litiar snekkjur, sem hafa þótt gefa mjög góða raun. Til dæm is þola seglsnekkjur af þeirri gerð margfalt stærri segl, en hinar með gamla laginu, án þess að nokkur þungur blýkjöl- ur komi til. En því verður ekki neitaö, aö tvíbyröingarnir láta verr aö stjórn á kröppum beygj um en þeir gömlu — t.d. í kappsiglingu. Nú hafa stærstu skipasmíöa- stöðvar, japanskar hafið smíði stórra tvíbyrðinga til farþega- flutninga. Méö því að tileinka sér grundvaílaratriði í siglinga- tækni Pólínesanna og færa þau í nýtízkulegra form, smíöa þeir nú „fljótandi farþegahall- ir“ hagnýta hinn aukna stöðug- leika til stóraukins farþega- rýmis ofan sjólínu. Meö þessu móti fæst allt að 30% aukið rými fyrir bæði farþega og bíla, aö sögn sérfræöinga, og fyrir það verða tvíbyrðingarnir mun hagkvæmari í öllum rekstri. Enn sem komiö er, hafa fyrst og fremst verið smíðaðar eins konar ferjur á skemmri, en fjöl förnum leiðum með þessu sniði. Og þær eru ekkert smásmiði — sem stendur er japanska skipa- smíðastöðin NIPPON KOKAN að hleypa af stokkunum 1800 smálesta tvíbyrðingi, sem taka á 500 farþega og 50 bíla, og skríður 16 hnúta á vöku. Hann verður — eins og aðrir slíkir tvíbyrðingar — knúinn tveim sjálfstæðum aflvélum. Með því fyrirkomulagi verða tvíbyrðing ar jafnvel enn „liprari" f snún- ingum en einbyrðingar — önn ur aflvélin er látin ganga áfram, hin aftur á bak, og snýst skip- ið þá um sjálft sig, ef þannig má að orði komast. Norskar skipasmíöastöövar hafa ekki einungis fylgzt með þessum tilraunum hinna jap- önsku af athygli, heldur hafa Norðmenn nú smíðað 39 metra langan tvíbyrðing með 11 m breiðu þilfari, sem tekur 615 farþega og um 50 bíla. Hvor byrðingur er 4 m á breidd en 3 m á milli. Rista byrðingamir þó ekki nema 2,5 m með fullri hleðslu. Loks má geta þess, aö ekki þarf nema um % véla- orku til að knýja slíkan byrð- ing með jöfnum skriðhraða og viðlíka stóran einbyrðing. Vafalaust mundi tvíbyröing- ur henta okkur vel á leiðinni milli Reykjavíkur og Akraness Borgarness. Það mundi aö minnsta kosti ómaksins vert að fylgjast með því, sem þama er að gerast. ^WVAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/W Ursula Andress Endursýnd kl. 5.15 og 9. Bönnuð innan 12 ára. ST JÖRNUBÍÓ BÆJARBÍÓ Réttu mér hljóðdeyfinn — tslenzkur textl. — Engin sýning í dag. Indiánablóðbaðið ÓPERAN APÓTEKARINN Ný amerísk kvikmynd. Sýnd kl. 5 og 7. GAMLA BÍÓ eftir Joseph Haydn Einnig atriði úr Ráðskonuríki, Fidelio og La Traviata. stjomandi Ragnar Bjömsson Leikstj. Eyvindur Erlendsson Frumsýning í Tjarnarbæ þriðju daginn 4. júní kl. 20.30 Aögöngumiöar I Tjamarbæ laugardag og þriðjudag.frá kl. -7. Sími 15171. Aðeins fjórar sýninnar. Syngjandi nunnan (The Singing Nun) Bandarísk söngvamvnd í litum og Panavision með fsl. texta Debbie Reinolds. Sýnd 2. hvítasunnudag. kl 5, 7 og 9. Tarzan i hættu Bamasýning kl 3. LAUGARASB80 Blindfold j Spennandi og ekemmtileg amer . i. ! ísk stórmynd ' litum og Cin- ema Scope. með hinum frægu i ieikurum j Rock Hudson Claudia Cardinale ; Sýnd kl. 5 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. íslenzkur texti. Bamasýning kl 3 Munster-fjólskyldan Annan hvítasunnudag. HASK0LABI0 Sirr> 22140 ÞJÓÐLEIKHOSIÐ Wl!» Sýning annan hvítasunnudag kl. 20. Þjár sýningar eftir. Aðgöngumiðasalan opin laug- ardag frá kl 13.15 til 16. lokuð hvítasunnudag opin 2., hvíta sunnudag frá kl. 13.15 til 20. Sími 1-1200. Engin sýning í dag. Bssrneileikhúsið Pés/ orakkart Vegna áskorana verður ein sýning í Tjarnarbæ 2. hvfta- sunnudag kl. 3 1 sýning. Aögöngumiðasala frá kl. 11 sama dag. KAFNARBÍÓ Likið / skemmtigarðinum Afar spennandi og viðburðarfk ný þýzk litkvikmynd meö George Nader íslenzkur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5 7 og 9. ILEIKMAGI REYKJAyfKDK Heddo Gablei Sýning annan hvítasunnudag kl. 20,30. Leymmelur 13 Sýning miðvikudag kl. 20.30 Aðgöngumiðasalan ■ Iðnö ei ipir frá kl 14 Simi 13191

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.