Vísir - 05.06.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 05.06.1968, Blaðsíða 16
VÍSIR Míðiikudagur 5. jiiní 1968. ELDUR í BLAKKI , Jlétt eftii- miðnætti í nótt urðu menn varir við að mikinn reyk lagði upp úr m.b. Biakk, þar sem hann lá við gömiu Verbúðarbryggj- upa. Slökkviliðið og lögreglan fór begar á staðinn. Eldur hafði komizt í lestargólf skipsins út frá oiíuofni. Ofninn var í lestinni til að þurrka hana, Eldurinn varð fljótJega kæfður og.munu ekki hafa orðið verulegar skemmdir á bátnum. gaiaaaae. W'I w—t1WPH—^IPP>Wiw»^<—wgg!HHP*Wl!y,wlgggaw*1 ~ ~nr ■ FRiÐRIK TAPAÐI Á TÍMA Jón og Freysteinn unnu erlendu meistarana ■ Það ríkti mikil stemmning í Tjarnarbúð í gærkvöldi, þar sem tefld var þriðja umferð Fiske-skákmótsins. Húsið var troðfullt af áhorfendum. Athygli þeirra beindist að sjálfsögðu mest að skák þeirra stórmeistaranna Friðriks Ólafssonar og Vasjúkovs. Friðrik tefldi mjög djarftega til vinnings og átti góðar vinningslíkur framan af, en notaði mikið af tíma sín- um í fyrri hluta taflsins og missti af vinningslciöinni í tíma- þröng. — Þá átti hann aðeins eftir um finim mínútur af tíma sínum og tíminn var útrunninn í .‘{9. leik, en þá var Vasjúkov kominn með unna stöðu. Það voru hins vegar þeir Freysteinn Þorbergsson og Jón Kristinsson, sem mest komu á óvart í þessari umferð. Frey- steinn vann Addison og Jón austurþýzka meistarann Uhl- mann. Þeir Byrne og Ostojic gerðu jafntefli, sömuleiðis Szabo og Taimanov. Andrés gerði jafntefli við Guðmund Sigurjónsson og Benóný við Inga R. Við birtum hér til gamans skák þeirra Friðriks og Vasjú- kovs: Ilvítt Friðrik Ölafsson — Svart Vasjúkóv. 1 e4 e5, 2 Rf.t Rc6, 3 Bb5 a6, 4 Ba4 Rt'6, 5 0-0 b5, 6 Bb3 Bb7, 7 Hel Bc5, 8 c3 d6, 9 d4 Bb6, 10 a4 0-0, 11 Bg5 h6, 12 Bh4 He8, 13 axb5 axb5, 14 HxH Bxll, 15 Dd3 exd4, 16 cxd4 g5, 17 e5 (býður biskupinn) kf8, 18 Rxg5 hxg.5, 19 Bxg5 dXe, 20 ! í Dh3 Dd6, 21 Dh6 skák Ke7, 22 Dg7 Kd8, 23 Bxf6 KcS, 24 Rd2 Dd4. Hér fer Friðrik inn á hættu- legar brautir og skákin er töp- uð eins og úr henni spilast. 25. dxe Dxd2, 26 Hfl Bxf2, 27 Hf2 Del skák, 28 Hfl De3 skák, 29 Khl Dxb3, 30 h4 Rd4, 31 Kh2 Dc2, 32 Dg4 skák Kb8, 33 Hf4 Re6, 34 Hb4 Bc6, 35 h5 Kb7 36 b3 Ha8, 37 Dg3 Ha2 / 38 Hg4 Hal, 39 Hh4 Hfl, 40 h6 og tími Friðriks er útrunninn framhaldið þarf raunar ekki að tefla. Svartur leikur í 40. leik Dcl 41 Dg4 Hhl skák, 42 Kg3 Del mát. j binn hefur gisituð um helginu Heldur virðist hafa greiðzt úr ísnum við Norður- og Austurland um helgina, samkvæmt upplýsing- um Veðurstofunnar í morgun og hefur isinn yfirieitt. þokazt heldur frá landinu, enda hefur vindátt ver- ið suðlæg. Nú hefur aftur snúið í norð-austan og hefur ísinn nálgazt aftur við Hraun á Skaga, en þoka er mjög víða og skyggni slæmt. Ekki var vitað til að neitt skip ætti í erfiðleikum í ísnum á Húnaflóa, én flugvél Landhelgisgæzlunnar leiðbeindi nokkrum skipum út úr isnum um helgina. Is Á POLLINUM Á AKUREYRI Hiti v/ð frostmark i morgun Akureyringar vöknuðu í morgun við vondan draum. Góða veðrið undanfamar vikur hafði sact skilið við kaupstaðinn og nærliggjandi héruð og landsins forni fjandi, haf- isinn var kominn í heimsókn. Hita- Dagur Akureyrar á sýningunni íslendingar og iiafiö: Syngjandi í skiðalyftu i Laugardalshöllinni % t dag er Akureyrardagur á sýningunni lslendingar og hafið í Laugardalshöllinni. Sext- án aðílar standa að myndarlegri deild Akureyrar og í dag mun fulltrúí þessara fyrirtækja og stofnana gefa upplýsingar þær sem menn kunna að óska eftir og verður hann til viðtals í bás Akureyrar. • Akureyri mun standa fyrir glæsilcgri kvöldskemmtun, sem hefst kl. 20.30 og mun þar koma fram fólk að norðan og skemmta gestum með söng og hljóðfæraslætti. 1 þessum hópi eru hljómsveit Ingimars Eydals með Helenu og Þorvaldi og Eiríkur Stetansson söngvari mun syngja með undirleik Þor- gerðar dóttur sinnar, sem er 14 ára. Sigrún Harðardóttir syngur nokkur lög og einleik á píanó leikur Þorgcrður Eiríksdóttir. M. a. mun Sigrún syngja sitjandi i skíðaiyftustól, sem komið er fyr- ir á rennibraut fyrir ofan leik- sviðið. stigið er við frostmark og ishröngl læðist inn Eyjafjörð og safnast saman í botni hans. Er nú íslengja inn að Slippstöðinni á Oddeyrar- tanga og út að Hjalteyri. Á Akur- eyri er nú miög kuldalegt, grátt í I fjöilum og slydda í byggð. Auk hafíssins var komið vitlaust veður með norðaustan roki. Einnig má geta þess að örmió siglingaleið er fyrir Austurlandi vegna hafíssins sem ekki virðist ætla að gera það endasleppt. 8 ára telpa fyrir bíl Um kvöldmatarleytið í gær varö 8 ára stúlka fyrir bifreið á gatna- mötum Langholts og Álfheima. Stúlkan var aö fara yfir götuna á gangbraut, þegar hún varð fyrir bifreiðinni. Hún mun ekki hafa slasazt alvarlega. Engin göngusíld norður og austur af landinu Síldarleitin hefur nú staðið tæpan mánufi og er fyrsta leið- angrinum austur í ár Iokið. Ekki hefur orðið vart við göngusíld austur og norður af landinu. — Hins vegar urðu leitarskip vör víð lóðningar djúpt undan land- inu, eða norður af Færeyjum. — Torfurnar eru smáar og dreifð- ar og gætu eins verið kolmunni, sagði Hjálmar Vilhjálmsson leið- angursstjóri á „Árna Friðrikssyni", segar Vísir ræddi við hann í morg- un. Hins vegar taldi hann ekki ólík- legt að einhver sfld væri á þess- um slóðum eða svona um 0 gráð- una. Ámi Friðriksson og Hafþór leit- uðu svæðið frá 8 gr. V.l. austur á 5 gr. A.l. og sunnan frá 63° 30’ N.br. norður á móts við Jan Mayen. Varð einkum vart við lóðningar austan og sunnan til á þessu svæði. Sagði Hjálmar, að mikil átusvæði væru á þessum slóðum, djúpt I hafi og sagði hann, að trúlegt væri að átan hefði dregið úr göngu. Hjálmar sagði, að sjór færi nú hlýnandi sunnan lil á þessu svæði en sjávarkuldinn væri svipaður og í fyrra, norðan til og vestan ti! á svæðinu. Engin síld hefur veiðzt í ár á norðanverðu Atlantshafi, þegar frá er talin síldveiði Norðmanna við Finnmörk að undanförnu. F.nginn íslenzkur bátur hefur ennjiá reynt .fyrir sér fyrir austan. Færeyingar hafa reynt með nöt norður af eyj- unum, en aðeins fengið kolmunna. Þar með er þó ekki iill sagan sögð, því að þeir hafa aðems kastað á daginn, en síldin kemur helzt upp undir yfirborðið á nóttunni. Þingi sveitarstjórnarráös Evrópuráösins í Frakklandi frestaó Islenzku þátttakendurnir fengu skeyti i gær Þrír Islendingar, þeir Unnar Stefánsson, viðskiptafræðingur, Jón Tómasson, skrifstofustióri og Ólafur Einarsson, sveitarstjóri sem ætluðu utan nú í vikunni til að sitja þing Svcitarstjórnarráös F.vr- ópuráðsins í Strassburg, fengu skeyti í gær, þar sem tiikynnt er að þinginu lial'i verið frestað vegna ástandsins í Frakklandi. Þingið átti að hefjast 10. þ. m. og var ekki seinna vænna að skeytið bær- ist, þar sem Ólafur ætlaði utan á morgun. Gert er ráð fyrir að | þíngið verfti lialdift i uktóber n.k. I Menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, afhendir Wodizco riddarakrossinn í ráðherrabústaðnum í gær. Bodan „Skiptir engu hvort landið er lítið eða stórt /4 — ábyrgðin er sú sama, sagöi Bodan Wodizco, begar honum hafði verið afhentur riddara- kross Fálkaorðunnar Síðustu tónleikar Sintoníuhljómsveitarinnar voru stærsta i augnablik i tónlistarferli mínum og frama. Ég skildi það þá,' að það skiptir engu hvort starfssviðið er í litlu eða stóru ■ landi, með lítilli eða stórri hljómsveit. Ábyrgðin er sú sama, | sagði jBodan Wodizco í viðtali við V7ísi í gær, þegar mennta- málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, hafði afhent honum ridd- ] arakross Fálkaorðunnar fyrir farsæl störf með Sinfóníuhljóm-1 sveitinni undanfarin þrjú ár. Afhendingin fór fram í ráð-' herrabústaðnum. Dodan Wodizco er nú á förum til Póllands, i en hann mun stjórna pólsku útvarps- og sjónvarps-sinfóníu-' hljómsveitinni. Ábyrgðin er að sumu levti miklu meiri í landi eins og ís- landi, þar sem tönlistarmenn- ing er að hefjast til vegs og virðingar og þá sérstaklega þeg ar verið er að kenna ungu fólki að skiija tónlistina. Tónlistin hofur sitt eigið al- þjóðlega tungumál og þess vegna mjög mikilvægt að ungu fólki sé kennt hið rétta ,,orða- val“, og nauðsynlegt að stand ardinn" sé hár. Það er að því leyti skemmtilegra að kenna þetta tungumál, að músikin > 10. sfðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.