Vísir - 06.06.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 06.06.1968, Blaðsíða 4
skyldunni. Þaö ségt á því, hvemig hann svarar spumingunni um það hvers vegna hann hefur valið sér bústað í Mtinchen en ekki í Ruhr héraðinu sjálfu, þar sem verk- asniðjumar eru. „Auðvitað gæti y «ig búið i Diisseldorf, en það er í námunda við Essen. Hvað mund- uð þér gera, ef þér væruð erfða- prins og land yðar yrði snögg- lega lýðveldi? Erfðaprins, sem «>:enn jafnvel öfunda, þótt hann sé f útlegð? Er ég sat dag einn á bar við Rivieruna, réðust nokkr- Rolls-Royce með innbyggðum bar sem tveggja metra hár bílstjóri ekur. Sá vegur 250 pund og getur verið lífvörður ef með þarf. Arndt á einnig skemmtisnekkju, sem er 31 metri á lengd, sem kostaði 1.8 milljónir marka. Að lokum má nefna veiðihöll- ina við Werfen ' Austurriki, með 72 herbergjum og 16.000 ekrum lands. Kostnaðurinn við viðhald hallarinnar nemur milli fjórðungs og hálfrar milljónar þýzkra marka. Sonur Alfrieds Krupps — Hefur nóga peninga en leitar hamingjunnar — Með elnu pennastriki hafnaði hann þeim kosti að erfa 150 ára iðnaðar-helmsveldi og halda uppi heimsfraegu nafni. Um leið hlaut hann bó árlegan styrk, sem nem- ur rúmlega tveimur milljónum marka. Arndt von Bohlen und Halbach, einkasonur hins fræga iðnjöfurs Alfried Krupp von Bohlen und Halbach, hefur litla trú á gildi peninganna. Hann tel- ur, að hamingjan verði ekki keypt með beim einum. Faðir hans lézt á sfðastliðnu ári, en sonurinn hafði ekki áhuga á að taka að sér rekstur fyrirtækis- ins. Hann fór f þess stað að leita hamingjunnar. Nú kynnu menn að spyrja, hvað þessi ungi „playboy" eigi við með hamingju. Hvemig er hún skýrgréind? Er það hamingja, að sitja veizlur eða kvöldverðar- boð með draumaprinsessum, eða Rolls-Royce-bifreiðin? Þessu hefur Amdt von Bohlen reynt að svara. YFIRDROTTNUN. Það hefur ekki gerzt án bitur- leika, að hann hafnaði fyrirtask- um föður sfns, þar sem starfa rúm 100.000 manns. „Ég hefði ofurvel getað stjómað þessu veldi", segir hann. „Ég hefði get- að haldið nafni forfeðra minna á lofti, ef ég hefði haft jafn góða samstarfsmenn og pabbi." Þetta er hans skoðun, þótt faðir hans hafi eitt sinn skipað honum að snerta ekki við fyrirtækinu og hann líti á föður sinn sem ofur- menni, eins og raunar aðra Krupp jöfrana. „Pabbi stjórrrði ekki. Hann drottnaði." Það er ekki auðyelt að fleygia þvl frá sér eins og skítugri flík, að menn eru fæddir í Krupp-fjcS- ir ferðalangar á mig og skömm uðu mig fyrir að drekka upp fé þeirra og skipuðu mér að fá mér vinnu." ÓHAMINGJA. Hvað um föður hans? „Líf hans var eilíft strit, ábyrgð, vonbrigði og auðmýking. Ég kenndi í brjósti um hann. En pabbi var stórsnjall og'hann þekkti starf sitt til hlít- ar. Hann var sannkallaður heið- ursmaður og stóð við orð sín“. Arndt reiðist, þegar hann hugsar um örlög föður sfns, sem var dæmdur fyrir stríðsglæpi árið 1945. „Hann var óhamingjusam- ur og varð að þola miklar raun- ir“. Þetta er ef til vill megin- orsök þess, að sonurinn ætlar sér að lifa Iffinu á annan hátt og ekki láta prússneska skyldurækni angra sig. Enda átti hann slæma æskudaga. „Ég hef vaxið upp i heimavistum og ég á engar fall- egar endurminningar". ENGINN SKORTUR . „Það er alltaf verið að tala um þessar tvær milljónir marka, en ég fæ heldur meira auk vaxta af einkaeign minni." Arndt von Bohlen skortir ekk- ert af veraldlegum gæðum. Hann á 200 fermetra fbúð i Pac elli-höllinni í Schwabing og segir, að gestir sínir geti búið á gisti húsum á sinn kostnað. I-Iann á listasafn, þar sem meðal annars eru verk eftir Rubens og Van Dyck og aðra málara. Ennfremur 1 arf eftir föður sinn, sem hann vildi þiggja, hlaut hann sumarhús við Marrakech í Marokko. „Um það vissi ég ekki fyrr en pabbi var dáinn", én Hassan n Mar- okkokonungur gaf honum hús þetta. ÞAÐ VAR AST. Arndt von Bohlen hefur átt vin gott við fjölmargar þekktar stúlk ur, leikkonur og prinsessur. Svo virðist sem samband þeirra hafi ekki verið alvarlegt. — Gina Lollobrigida? — Faileg umgjörð fyrir mig og aðra. — Soraya prinsessa? — Hún var mér ekki til öþæg- inda . — Liz Taylor? — Fyrir augtð var bún mér bezt. — Hildegard Knef? — Það var ást við fyrstu sýn. segir hann og roðnar við. Enda hefur hann á borðinu ljósmynd af þeirri leikkonu með eiginhandar- áritun og kveðju frá henni. Hann viðurkennlr að lif sitt hafi pkti hróazt sem hann hefði kosið. Helzt vildi hann gerast bóndi, begar hann var yngri. Nú verður hann að selia 6100 hektara bújörð f Rrasiliu. Hann ætlar að gerast listsafnari og bankamað- ur. Spurningunni um, hvort hann sé enn að leika sér svarar hann bannig að lokum: „AHir vilia vera að skipta sér af mér og færa til verri vegar allt sem ég geri“. -----------------------------^ Arndt von Bohlen á meöal annars Rolls-Royce með innbyggöum bar. Hinar ógnvekjandi stórhelgar Tvær mestu ferðahelgar árs- Ins eru tvímælalaust hvltasunnu helgin og verzlunarmannahelg- in, en þá þyrpist fólk út úr bæn- um tll að lyfta sér upp Sú tízka hefur og skapazt, að unglingar taki sig upp hópum saman til að leggjast út, og valda þá auð- vitað áhyggjum, hvort sem það er að öllu leyti ástæðulaust eða ekkl. En það sem mér hefur fundizt eftirtektarvert undan- farin ár, og sannaðist reyndar nú fyrir þessa helgl, er óttinn sem fram kemur í blöð- um og er reyndar bergmál frá lögreglunnl, að eitthvað voða- legt muni ske. Öttavaldurinn er tvenns konar, í fyrsta lagi vegna hinnar gffurlegu umferð- ar og í öðru lagi vegna ungling anna. Unglingarnir hóa sig saman f stóra hópa og setia sig niður á ákveðnum stöðum, sem á verzlunarmannahelginni er aöal- lega Þórsmörk, sem frægt er orðið að endemum, og á hvfta- sunnuhelghmi eru það aftur á móti ýmsir staöir, sem nær líggja, enda vart fært um lang- ar leiðlr. Það þykjr tilheyra hvftasunnuhelginni, að ungling- amlr hafi með sér svo og svo mikið áfengi, sem lögregian ger- ir sföan mikla ieit að á leiðinni, og gerir upptækt. Er það alla- vega mikilsveröur mælikvaröi á helgina, hvort mikið eða lítið magn er tekið af unglingunum, enda er það árlegur fastur sið- ur að taka blaðamyndir af fengn um og jafnvel sjónvarpsmynd í þetta sinn. Var fengurinn ekki sérstaklega mikill aö þessu sinni og er tvennu kennt um, jírferð- inu og veðurfarinu. Mér er ekki grunlaust um, að þessi skrínaleikur f sambandi við áfengisflutninginn og leit- ina í farangri unglinganna sé farinn að verða eins konar sport hjá uppreisnargjömum ungling- um, þvf þeir þykja hreint ekki litlir karlar, sem komast með sfnar flöskur, eina eða fleiri, alla leið á leiðarenda. Er sú ánægja hreint ekki litil, og þykir strákunum þetta heljar mikill hasar að geta platað lögg una að þessu leyti. Áfengisneyzla unglinganna er út af fyrir sig sorgleg stað- reynd, og mikiö vandamál, en það er mjög vafasamt, að þessi farangursleit lögreglunnar sé heppileg til úrbóta. Sá háttur að rifa upp farangur stórhópa unglinga, sem fara úr bænum um þessar helgar hlýtur að vera samt sem áður mjög vafasöm aðgerð, því að sem betur fer, eru þeir fleiri sem eru saklaus- ir að þessuin brennivínsflutn- ingum úr borginni, en verða samt fyrlr harkalegri farangurs- leit af hálfu lögreglunnar og ó- þægindum. Aflar lögreglan sér þannig óvildar hjá stórum hópi unglinga í stað þeirrar virðingar sem æskileg væri. Einnig stingur þessi' áfengis- leit mjög f stúf við þá miklu og góðu samvinnu sem lögregl- an hefur á selnni árum, lagt mik ið upp úr við borgarana, og er kannski lykillinn að þeirri stór- bættu umferðarmenningu, sem orðin er á götunum. Góð sam vinna milli löggæzlu og almenn ings hefur miklu góðu kornið til leiðar, þess vegna finnst mér þessi meðferð á ungling- unum stinga óþyrmilega í stúf við þá ágætu framför. Einhvern veginn finnst mér, • að það hljóti að verða að finna • einhverjar aðrar leikir til úrbóta J á þvi vandamáli, því þessar • skærur hafa ekki gefið góða J raun, og drykkjuskapurinn hef- • ur alls ekki minnkað á stór- • helgunum, og á venjulega veður • farið eða ófærðin einhvern þátt • f málum þegar betur tekst til. 2 Lögreglan þarf að finna nýjar • leiðir í þessum málum fyr- • ir næstu verzlunarmannahelgi, J og það hlýtur að vera hægt, • því lögreglunni er virkilega • margt til lista Iagt, það sann- • aði hún á H-daginn, en einmitt • hún á kannski einna mestan þátt J í þvi hve vel tókst til með þá • breytingu. • Áfengisvandamál unglinganna • á ekki að byrja aö leysa úti á • þjóðveginum, og þarf að bjTja * að kryfia máiið annars staðar. • Til dæmis er það mörgum urn- • hugsunarefni, hve auðveldlega J unglingar frá 14—21 árs komast • yfir drykkjarföng í eins stórum • stíl og raun ber vitnl. Hvernig • er það mögulegt? • Þrándur í Götu. ! ••••••»•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••^ I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.