Vísir - 06.06.1968, Blaðsíða 9
V í SIR . Fímmtudagur 6. júní 1968.
■ptyrsta mikla áfallið, sem for-
eldrar þeirra bræðra Joseph
og Rose og systkini þeirra uröu
fyrir var, er Joseph Kennedy
yngri beið bana, er flugvél hans
var skotin niður f síöari heims-
styrjöld. Það var 1944 og geröist
þetta f Þýzkalandi.
Mánuði síðar féll markgreif-
inn af Harlington, eiginmaður
Kathlyn Kennedy, f orrustu í
Frakklandi. Árið 1948 lét
Kathlyn lífið af völdum flug-
slyss á Frakklandi.
John forseti var skotinn til
bana f heimsókn til Dallas 22.
nóvember 1963. Edward öld-
fyrir
þeirra,
slasaðist alvarlega í flugslysi fyr
ir nokkrum árum.
Sorgarefni mikið hefir það
verið ættinni, aö ein fimm
dætra Rose og Josephs, Rose-
mary, er andlega veikluð og
dvelst jafnan í sjúkrahúsi fyrir
andlega veiklaða.
Árið 1955 létu tengdafor-
eldrar Roberts — George
Skakel og kona hans — lífið f
flugslysi. Svili Roberts, Dean
Markhann, náinn vinur hans
fórst í flugslysi.
Bandaríski ambassadorinn í
París, Sargent Shriver, og kona
hans, Eunice, systir Roberts,
hafa stöðugt samband við Hvíta
húsið. Enn sem komið er hafa
þau ekki tekið ákvörðun um
hvort þau fljúga vestur.
Nokkrum klukkustundum eft-
ir að Robert Kennedy var sýnt
banatilræöið lýstu ýmsir leiðtog-
ar þjóða og aðrir leiðtogar yfir,
að þeir hörmuðu djúpt heiguls-
og níðingslega árás á Robert
Kennedy. Umsagnar málsvara
Páls páfa var getiö í blaðinu f
gær, en hér eru ummæli ým-
issa annarra, en þau komust
ekki að þá.
Giuseppe Saragat forseti
ltalíu harmaði árásina sterkum
oröum og kvað hana hafa verið
geröa af illvilja og heiguls-
hætti. Hann óskaði eftir að fá
jafnharðan fréttir af líðan
Roberts Kennedys. .
Vegna fréttarinnar var mikið
fát á mönnum, er kjósa skyldi
þingforseta.
Leiðtogi kommúnista Pietro
Ingao sagði, að vandamál vestra
á sviði félagsmála og stjórn-
mála, ej ágreiningur væri um,
yrðu ekki leyst með fyrirlit-
legum ofbeldisaðgerðum sem
þessum.
ungadeildarþingmaður
Massachusetts,' yngstur
tíðindin. Engin tilkynning var
birt þegar frá Hvíta húsinu.
Eugene McCarthy keppinaut-
ur Kennedys var nýháttaður í
gistiherbergi sínu, er honum
voru sögð tíðindin. Hann k.læddi
sig þegar og fór niður f forsai
gistihússins, þar sem ýmsir
samstarfs- og stuðningsr.ienn
voru.
McCarthy „bað um einnar
mfnútna þögn“, en sagði annars
ekkert til þess að láta hafa
eftir sér.
í Moskvu var tilræðisins get-
ið, án umsagnar. f Zurich féli
Bandaríkjadollar f hlutfalli við
svissneska frankann um 30 stig
(points).
Um gervöll Bandaríkin og
vfðar komu út aukablöö og
aukaútsendingar voru í sjón-
varpi og útvarpi.
Tilræðið hefir ollið sárri
hryggð og hneykslan um gerv-
alla Evrópu, segir í framhalds-
fréttum NTB. Otvarpsstöðvar
hættu venjulegum útvarpssend-
ingum og birtu fréttir frá Los
Angeles jafnharöan og þær
komu. Sagt var frá horfum og
líðan Kennedys meö stuttu
millibili.
Meðal þeirra,, sem hafa for-
dæmt morðtilraunina voru mál-
svari Kristiiegra lýöræöissinna í
Vestur-Þýzkalandi og Walter
Scheel leiðtogi Frjálsra lýðræð-
issinna.
Og í Los Angeles sagði
blökkumaður meö tárin í augun-
um:
„Hvað þýðir að reyna, hvað
þýðir það?“
Blökkumenn í Kaliforníu eru
sagðir hafa stutt Kennedy svo
vel í forkosningunni, að það hafi
verið traustsyfirlýsing.
Hann var skotinn nákvæmlega
tveimur mánuðum eftir að leið-
togi blökkumanna dr. Martin
Luther King var skotinn tii
bana í Memphis.
Jacquellne Kennedy, ekkja
Kennedys heitins forseta, flaug
í gær til Los Angeles. í frétt um
þetta frá New York segir, að
hún hafi farið þangað til þess
að vera í nálægð mágs síns. —
Þegar John F. Kennedy var myrt
ur var Bobby Kennedy mesta
stoö hennar og stytta í harmin-
um. — Myndin er af frú Kenn-
edy og þeim bræðrum Robert og
Edward (t. v.) tekin 14/1 1964,
í skrifstofu dómsmálaráðherra.
Þetta var, er frú Kennedy kom
fram opinberlega f fyrsta sinn
eftir dauða manns hennar, en
við þetta tækifæri þakkaði hún
öllum þeim, sem sent höföu sam
úöarskeyti og bréf til hennar og
Kennedyættarinnar.
Johnson á fundi með ráðunautum
— McCarthy hætti v/ð kosningaferð og öllum
kosningaáróðri i New York — Öryggisráðstafan-
ir við heimili Kennedys fyrir utan Washington
■ Nánari og vafalaust' réttari
fréttir bárust síðdegis í gær
um viðbrögð Johnsons forseta,
er honum var tilkynnt, aö Ro-
bert Kennedy hefði verið sýnt
banatilræði. Hann kvaddi þegar
helztu ráðunauta sína á sinn
fund og hófst sá fundur fáum
mínútum síðar, að þvi er mál-
svari 1 Hvíta húsinu sagði. For-
setinn gerði ráðstafanir tii þess
að fá jafnharðan fréttir um líð-
an Kennedys.
Hubert Húmphrey varaforseti,
sem átti að flytja kosningaræðu
í Colorado Sprints I gær, hafði
stöðugt samband við Hvíta hús-
ið. Humphrey sagði, eftir að
hann frétti um banatilræðið:
„Við biöjum fyrir Kennedy
öldungadeildarþingmanni og öðr
um, sem þessi óhugnanlegi of-
beldisverknaður bitnar á. Það
er hræðilegt og hrollvekjandi,
sem hefur skeð. Viö vottum frú
Kennedy og bömum hennar
dýpstu samúð.
Af hálfu McCarthys öldunga-
deildarþingmanns var hætt þeg-
ar árdegis í gær allri kosninga-
starfsemi í sambandsrfkinu New
York. Robert Kennedy er full-
trúi þess í öldungadeild þjóð-
þingsins.
Af þessari ákvötröun.leiðir, að
lokað verður 25 skrifstofum I
New York og skrifstofum í
hundraðatali úti um sambands-
ríkið.
Þá tilkynnti McCarthy, að
hann hefði aflýst kosningaferða-
lagi til Seattle og aö hann mundi
■ Johnson Bandaríkjaforseti
lýsti í gær banatilræðinu
við Robert Kennedy sem harm-
leik og sagði ennfremur:
„ÖH Bandarfkjaþjóðin biður
þess, að hann megi lifa þetta af
... það enj ekki til orð til þess
að lýsa þessum ógnvekjandi við-
burði. Hugir vorir eru hjá Kenn-
halda aftur beina leið til Was-
hington.
Það varð kunnugt f gær, að
lögreglan hefði gripið til vfð-
tækra öryggisráðstafana kring-
um heimili Kennedys, sem er
skammt fyrir utan Washington.
Ekki er kunnugt um hversu
mörg hinna 10 bama hans em
heima, en lögreglan leyfir eng-
um að fara inn á lóðina.
edy og vér biðjum fyrir honum,
konu hans og börnum, og öör-
um sem harmleikurinn bitnar á.
Vér biðjum fyrir Iffi hans —
Bandaríkjaþióðin öll, og vér biðj
um þess, a.ð ósáttfýsi og óvild
og allt illt verði hrakið úr hjört-
um mannanna.
JOHNSON FORSETI:
Bandaríkjaþjóðin biður
að Kennedy megi holda lífi
EFTIR BANATILRÆDID....
Fréttirnar hryggðu menn
víða um lönd og vöktu
megna fyrirlitningu
Sago SCennedyættarinnar, sago sorga og sigra
lacqueline Kennedy flaug í gær til Los Angeles
■ Saga Kennedyættarinnar er
saga mikilla sigra einstakiinga,
hún er saga um baráttu alla
tíð, úr fátækt til auös og valda,
á sviöi fjármála og stjómmála,
saga um menn, hvem af öðrum,
er gnæföu upp úr, voru bomir
forustumenn, en hún er líka
saga mikilla áfalla, mikilla
sorga. Ekki eru nema 4 ár og
misseri betur síðan er John F.
Kennedy forseti var myrtur í
Dallas í Texas.
Antino Cariglio leiðtogi jafn-
aöarmanna á þingi sagöi:
Vér erum allir haldnir fyrir-
litningu á þessum atburöi, sem
er áfall og snertir samvizku
hvers siömenntaös manns.
í Washington var Johnson
forseti vakinn og honum sögö