Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 1
58. árg. — Föstudagur 14. júní 198.8 Ætlaði að semja um skuld — lamdi lánardrottin sinn Kona nokur í bænum kæröi til lögreglunnar í gærkvöldi líkamsárás, sem hún hafði sætt á heimiii sínu. Hafði komið til hennar maður, sem hún hafði lánað nokkra peninga fyrir einu ári, en hafði ekki enn greitt þá og stóð heimsökn mannsins í samhandi við það, hvemig skuldaskilunum yrði háttað. Samningaviðræöurnar stóöu þó ekki lengi yfir, því að í miðju kafi reiddist maðurinn ofsalega, reif í sundur samninginn, sem þau höfðu gert milli sín, þegar hún lánaði honum peningana — og sló konuna í andlitið, en hafði sig siöan hið snarasta á burt. Konan slapp án alvarlegra meiðsla, en málið er í frekari rannsókn. Óttazt um afdríf tveggja 22ja ára Siglfirðinga 20 skip og 2 flugvélar leituðu í gær auk leitarflokka úr landi Óttazt er um afdrif tveggja ungra manna, : ;m fóru i róöur frá Sigluftrði klukkan háif níu á miðvikudagskvöldiö, en siðan hefur ekkert til þeirra spurzt þrátt fyrir víðtæka leit. 20 skip og tvær flugvélar leituðu allan daginn í gær — leitarsvæðið var frá 30 mílum út af Sauða- nesi og um 40 mílur út frá Tjör- nesi. Auk þess voru fjörur gengnar allt frá Hvanndölum inni undir Ólafsfirði vestur und- ir Hofsós. — Einnig hafa minni bátar farið grunnt með ströndu til þess að skyggnast um á fjörum. Mennirnir voru varaðir við að hætta sér langt út á miðviku- dagskvöldið, því að veður var ? fremur slæmt og hvessti um nótt I 10. síðu. I Kosningaundirbúning- ur fyrir 27 millj. kr. Hlutfallslega meira en Bandarikjamenn nota i baráttu fyrir forsetakosningar ■ Kosningaundirbúningurinn kostar ekki síður fé hér á landi en erlendis, enda ekki við öðru að búast. — Stuðningsmenn dr. Kristjáns Eldjárns, létu hafa það eftir sér á blaðamannafundi í gær, að bein fjárútlát vegna undirbúnings þeirra að kosning- unum væri um 2 milljónir króna, en meta mætti framlag sjálf- boðaliða á allt að 25 milljónir króna. Menn hafa oft hneykslast á því hvílíkar geysilegar fúlkur væru not aðar í kosningaundirbúningi í Bandaríkjunum. Ef þessar tölur Kristjánsmanna eru umreiknaðar yfir á bandarískan mælikvarða, þar sem þúsund sinnum fleiri menn búa, þýðir það 27 milljarða ís- lenzkra króna, sem er áreiðanlega ekki minna en margir frambjóð- enda þar nota í kosningaundirbún- ingnum. Erfitt hefur reynzt að fá upp- gefið þar hversu mikið frambjóð- endurnir þar nota vegna kosning- undirbúningsins, en fyrir nokkru lét Rose Kennedy, móðir Roberts heitins Kennedy, hafa eftir sér, hversu mikið hefði farið í próf- kosningarnar i einu fylki. Menn hneyksluðust mikið á upphæðinni, þótt hún væri ekki nema smábrot af 27 milljörðum króna, — upphæð in mun hafa verið 1-2 millj. doll- ara. Vísir leitaði til kosningaskrif- m-> 10. síðu. Skriður kominn ú undirbuning olíuhreinsunurstöðvor: Þrir erlendir oliusérfræðingar kanna kosti hreinsunarstöðvar „Vísir í vikulokin" fylgir blaðinu á morgun til áskrifenda — Rætt við Jóhannes Nordal seðlabankastjóra, sem er formaður nefndar áhugaaðila um málið □ Sérfræðingar þriggja alþjóðlegra olíufélaga, Shell, ESSO og BP, hafa dvalið hér á landi að und- anförnu til að kynna sér hagkvæmni olíuhreins- unarstöðvar. Sérfræðingarnir áttu viðræður við nefnd áhugaað- ila um þetta mál, en í þeirri nefnd eiga sæti full- trúar allra íslenzku olíufélaganna og ýmsir áhuga- menn. Formaður nefndarinnar er dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, en hann er eins konar tengiliður milli olíufélaganna og ríkisstjórnarinn- ar, eins og einn olíuforstjórinn komst að orði. 12 úru drengur brúðkvuddur < 12 ára gamall drengur varö bráð , ’ kvaddur í gærkvöldi, þar sem i . hann var að leik með nokkrum ] K félögum sínum nærri Valsheim ( $ ilinu við Öskjuhlíð. Knattspyrnu 1 ( þjálfari nokkurra Valsdrengja J veitti eftirtekt drengnum, þar ( sem hann lá i grasinu, og leizt1 honum ekki á útlit drengsins og J lét kalla á sjúkrabil, sem flutti ( drenginn á slysavaröstofuna. Er < þangaö kom, sáu iæknar að J drengurinn var Iátinn. Félagar drengsins, sem með * honum höfðu verið áöur, báru, að hann hefði hjólað töluvert < og reynt nokkuð á sig, áður' en ] betta gerðist og þá hafði hann , kvartað um þraut fyrir hjart- < anu. Þetta mál er algjörlega á athug unarstigi ennþá, sagði Jóhannes Nordal, þegar Vísir ræddi við hann í morgun. Á meðan forrann- sókn er ekki lokið er erfitt að spá nokkru um áframhaldiö. 1 öllum útreikningum og athug unum er reiknað með því, að hér yrði. reist olíuhreinsunarstöð, sem gæti unnið úr 1 milljón lesta af jarðolíu á ári (crudeoil). Stærð stöövarinnar er miðuð við, að hún gæti fullnægt eftirspurn á hráolíu (gasoil) eins og búast má við aö hún verði eftir nokkur ár. Notkun á hráolíu hér á landi er hlutfallslega miklu meiri en notkun á bensíni og svartolíu (fueloil) og yröi því að flytja út verulegt magn af bensíni og svartolíu, ef fram- Ieiðsla hreinsunarstöðvarinnar yröi miðuð við notkun á hráolíunni. Því hefur verið fleygt aö varla borgaði sig að reisa og reka olíu- hreinsunarstöð fyrir minna en 2y2 milljón lesta markað. Dr. Jóhann- es Nordal sagði í viðtalinu í morg un að þetta færi alveg eftir að- j stæðum á hverjum stað. Stöðvar eru til á bilinu frá y2—20 milljónir lesta. Forrannsóknin er ekki enn svo langt komin, að hægt sé að fullyrða nokkuð um þann gjaldeyrissparn- að, sem af stööinni leiddi eða almennt hvort hún gæti borið sig. Það var ríkisstjórnin, sem upphaf lega hrinti þessu máli af stað, en nú hefur frumkvæðið verið sett í hendur olíufélaganna og annarra áhugaaðila um málið. Þar sem málið er enn á frumstigi hefur ekki ennþá verið tekin af- staða til, hvar olíuhreinsunarstöð in yrði hugsanlega reist. Dr. Jó- hannes Nordal sagöi þó, að ávallt hefði veriö rætt um Geldinganes eða einhvern annan stað við Sund- in. Reykjavíkurborg hefði gert ráð fyrir olíuhöfn þar og væri því ekki óeðlilegt að stöðin yrði ] reist þar. -3> 6?~tir SAS sækja forjeta íslands heim 55 manna hópur blaðamanna víðs vegar að úr Evrópu, ráðuneytis- stjóra af Norðurlöndunum og for- ráðamanna SAS er staddur hér á landi í boði SAS í tilefni af upphafi áætlunarflugs SAS hingað til ís- Iands. Þessir gestir SAS komu hingað í gær frá Grænlandi eftir stutta dvöl þar, en i morgun heimsóttu þeir Alþingishúsinð, þar sem for- seti íslands, herra Ásgeir Ásgeirs- son veitti þeim móttöku í skrif- stofu sinni. Hópurinn fór síðan til Þingvalla, þar sem hann verður mestan hluta dagsins, en síðar í dag mun hann þiggja boð ambassadors Dana. Á morgun verður farið til Mývatns.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.