Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 14.06.1968, Blaðsíða 3
fllllll Þessi mynd er tekin ofan úr siglutoppi og sýnir hluta flotans, sem bíður nýmálaður og „af- skveraður“ við Grandann eftir kallinu að austan. LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA... Það sparar yður t'ima og óþægindi INNHEIMTUSKRÍFSTOFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæð —Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3lmur) mRMrMrMJLMivmsKTT* sxvBtonnicnmxmjMmuMVismvry-'. . ■. mkmu., Síðbúinn floti OGREIDDIR l REIKNINGAR * I __________________ rrriirrrTrrMiiirrMnmTmnHHBnHMrHÍTiraB-TiT-nTi-niiii 1«™» I Iiw■iimhitíiiiii m II i i ii iiu ii VlSIR . Föstudagur 14. júní 1968. sem þeir eru með I höndunum þessir er víst að verða kiárt og vonandi fiskast vel í það í sumar. skipshlið. Þar fara hásetar, sem eru að spila lokaþáttinn £ þessu „intermesso" milli vetrarvertíö- ar og sumarlangrar útilegu, gleði fáeinna iðjuleysisdaga á þurru landi. Það glittir á gler í höndum þeirra, ofurlítil brjóst- birta fyrir sumarið. Þeir snarast út og skella hart á eftir sér vippa sér kæruleysislega yfir borðstokkinn og eru horfnir und ir þiljur. ísafjarðarbáturinn Hafrún lestar ís og ætlar út í bugt að elta síldarkræður. — Járnsmið- ir leggja síðustu hönd á nóta- dekkið á Eldey frá Hafnarfirði, strákarnir eru að koma fyrir skálkastoðum á dekkinu á Helgu RE. — Bráðum tæmist höfnin og þeir sjást ekki aftur fvrr en í haust. Svo eru það aðrir sem ætia alls ekki austur. Skip, sem fyrir fimm árum voru flaggskip síld arflotans fara nú bara á troll og lóna á eftir ýsu og þorski uppi undir iandsteinum. — Þá er að taka trollið um borð, bobbingarnir liggja meðfram borðstokknum á dekkinu á ein- um þeirra og logsuðumenn sitja uppi í gálga. — Kannski skrapa þeir saman fyrir meira skot- silfri á botninum hér úti fyrir en norður á síldarslóðum. Granda. I Cíldarflotinn er síöbúinn á miðin að þessu sinni. Það ríkir mikil óvissa um veiðarn- ar. Útgerðarmenn eru áhyggju- fullir og sjómenn örvænta um sinn hlut í sumar. Eystra bíða síldarsaltendur á- tekta. Þar líöa værir sólskins- dagar án þess aö tekiö sé til hendinni við löndunarbryggj- urnar, sem ísinn nuddaði sér ut- an í fram á vor. Síldin er ennþá 500 mílur norður í hafi og þar eru rúss- neskir snurpubátar einir um hit- una. íslenzki síldarflotinn bíður hins vegar bundinn við bryggj- ur, ellegar reynir fyrir sér í Norðursjó. Niðri við Granada bíða 15—20 stálskip. Sum eftir því að kall- ið komi að austan, önnur eftir því að komast út í bugtina. Það er ys á bryggjunum, hávært glamur frá járnsmiöum við vinnu um borð, gneistar frá log- suðutækjum. Það eru penslar á lofti við bómur og brúarvæng. — Stöku sinnum rennur leigubíll upp að

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.