Vísir - 15.06.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 15.06.1968, Blaðsíða 3
/ V í S I R . Laugardagur 15. júní 1968. 3 MYNDSJÁ Og hér sjáum viö qinn af hinum fjölmörgu fallegu görðum borgarinnar, sem setja hreinlegan og menningarlegan blæ f- umhverfið. mn Tjessa dagana er unnið af kappi um allan bæinn við að snyrta og hreinsa borgina og miðast nú allt við að koma lóö- um, görðum og portum í snyrti- legt horf fyrir þjóðhátíðina á mánudaginn, Heilu skúrarnir eru rifnir niður með stórtækum vélum og vörubilar flytja leifar þeirra á haugana. Spýtnarusl í húsagörðum lendir lika á haug- unum og í staðinn spretta upp blóm og trjárunnar meðfram híbýlum manna. Lóðahreinsunin svonefnda hefur sem sagt verið í fullum gangi síðustu vikumar, og er nú svo komið að vandfundinn er sá húsagarður, sem hægt er að telja ósnyrtilegan og borg- inni til ósóma. Hreinsunardeild- in svonefnda, sem starfar é vegum gatnamálastjóra fylgist lika vel með þrifnaðinum í kringum hibýli manna og vinnu- staði og lætur fjarlægja í sam- ráði við eigendur allt það, sem til óþrifnaðar er og óprýði. Árið 1964, þegar lýðveldið var 20 ára má segja, að veru- legur skriður hafi komizt á þessi mál og síðan hefur verið haldið áfram að brýna fyrir fölki, að það er ekki nóg að taka til í stofunni, garðurinn og það sem að vegfarendunum og nábúunum snýr þarf líka að vera snyrtilegt. Vissulega verður haldið áfram við að hreinsa til í borginni í allt sumar, en þessa siðustu daga fyrir 17. júní reyna þó flestir að gera svo hreinlegt og snyrtilegt við hús sin og húsa- garða, að hægt sé að segja að höfuðborgin sé falleg á sjálfan þjóðhátiðardaginn. Fallegt hús, ósnyrtilegt umhverfi. Reyndar verður líklega búið að fjarlægja þetta járnarusl, þegar þessi mynd birtist. ■ í" •***+*?»•*••& Hér er verið að rífa gamalt íbúðarhús í portinu við Brú í Brautarholtinu, en þar hefur verið unnið að miklum hreins- unum undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum Péturs Hannessonar hjá hreinsunardeiid gatnaihálastjóra. Einstaka bakgarðar eru ennþá óhreinsaðir. Vonandi víkja flestir spýtnahaugarnir áður en langt um líður fyrir fallegum blómabeðum og trjárunnum. LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA... Það sparar yður t'ima og ójpægindi INNHEIMT USKRIFST OFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæð —Vonarstrætismegin — Sími 13175 (3l'mur) »

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.