Vísir - 15.06.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 15.06.1968, Blaðsíða 8
s V1SIR . Laugardagur 15. júní 1968. VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteínsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Stmar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Slmi 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuðl lnnanlands 1 lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiöja Vfsis — Edda hf. Þjódhátíð Á mánudaginn halda íslendingar þjóðhátíð. Við minnumst 24 ára afmælis lýðveldisins og fæðingar- dags frelsishetjunnar, Jóns Sigurðssonar, sem við eig- um það öllum öðrum fremur að þakka, að við erum fullvalda þjóð. í endurminningu þeirra, sem muna hinn 17. júní 1944, er sá dagur bjartur og fagur, þótt nokkuð rigndi á Þingvelli. Þá voru íslendingar ein- huga þjóð, sem fagnaði langþráðum sigri og strengdi þess heit, að standa tryggan vörð um fengið frelsi og sjálfstæði. Við höfum oft verið á það minnt, að sjálfstæðis- baráttu smáþjóða er aldrei að fullu lokið. Þær eru alltaf meira eða minna í vörn gegn ásókn sterkra afla, sem bæði beint og óbeint herja á þjóðerni þeirra, tungu og menningu. Um þetta höfum við dæmin deg- inum ljósari víðs vegar um heiminn. Gegn þeim áhrif- um þarf smáþjóðin alltaf að vera vel á verði og „eiga eina sál, þegar bíður þjóðarsómi“. En hér verður vita- skuld að greina skynsamlega á milli þeirra erlendu áhrifa, sem hættuleg eru og hinna, sem holl eru og hagnýt. íslendingar verða að gera sér grein fyrir því, að einangrun landsins er úr sögunni. Við erum komnir í þjóðbraut þar sem til okkar berast margir og mis- jafnir straumar úr mörgum áttum. Við getum ekki staðið utan við hugsjónaátökin í heiminum, og raunar er engri menningarþjóð samboðið að taka þar ekki afstöðu. Eins og eðlilegt er skipum við okkur í sveit með þeim þjóðum, sem eru okkur skyldastar og líkastar í hugsunarhætti, menningu og stjórnskipan. Og þetta á að vera hægt án þess að glata þjóðlegum sérkenn- um, tyngu og menningararfi, ef þjóðin stendur ein- huga saman um gæzlu þeirra verðmæta. Nú standa fyrir dyrum forsetakosningar. Embætti forseta íslands er sigurtákn þeirrar frelsisbaráttu, sem lauk á Þingvöllum 17. júní 1944. Forsetinn er umheim- inum tákn þess og sönnun, að ísland sé frjálst og full- valda ríki; og þótt nú séu farnar að heyrast raddir um að leggja embættið niður, fá þær vonandi lítinn hljómgrunn með þjóðinni. Ekkert hefur minnt um- heiminn betur á sjálfstæðan tilverurétt þessarar litlu þjóðar en landkynning þeirra tveggja mætu manna, sem hafa verið forsetar hennar. Það er því leitt til þess að vita, að til skuli vera svo skammsýnir og smásál- arlegir íslendingar, að þeir telji eftir þann hlutfalls- lega litla kostnað, sem forsetaembættinu fylgir. Slíkt er engum þjóðhollum manni sæmandi. Við skulum öll vona að hér eftir sem hingað til verði haldið uppi á forsetaheimilinu þeirri reisn, sem sam- boðin er virðingu sjálfstæðrar menningarþjóðar, og að þeir ráði þar alltaf húsum, sem vita til hlítar, hvaða skyldur embættið leggur þeim á herðar. GLEÐILEGA ÞJÖÐHATÍÐ morgun útlönd í morgun útl'ond í morgun útlc ) Aðeins 6 norskir þingmenn mæltu með, að Noregur segði sig úr Nato Míklll meirihluti með áframhaldandi aðild □ í gær voru umræður og atkvæðagreiðsla á norska stórþinginu, um hvort Norðmenn skyldu segja sig úr NATO. Aðeins sex þingmenn greiddu þeirri tillögu atkvæði, svo að hún var felld með miklum meirihluta. Flutningsmaður tillögunnar var Sverre Löberg frá Þelamörk, og mæltist hann til þess, að NorQmenn segðu sig úr NATO við fyrsta tækifæri eftir 24. ágúst 1970. Skylt er að vara við úrsögninni með eins árs fyrirvara, og það er fyrst hægt að gera 24. ágúst 1969, þegar samningurinn hefur verið í gildi í 20 ár frá því að Noregur gekk í Atlantshafsbandalagið. Mifelar umræöur voru um þetta mál á þinginu, og var Lö- berg forvígismaður úrsagnarinn- ar. Þingmaöurinn Gustavsen lagðist gegn þvl, að stórþingiö skæri úr um málið, og lagði til að það yröi gert að aðalmálinu i næstu þingkosningum, þannig að þjóðin gæti látið vilja sinn í ljósi. Undir lok umræðnanna lýsti Peter Kjeldseth því yfir, að hann hefði i huga aö greiða úrsagnar- frumvarpinu atkvæði sitt. Hann sagði, að ástæöan væri sú, aö sér féllj ekki stefna Atlantshafs- bandalagsins gagnvart rfkjum á borð við Grikkland og Portúgal, sem bæði eru aðilar að samtök- unum. Tryggve Bratteli sagði um þettá, að aðild Noregs stuðlaði engan veginn aö þvi að treysta stjórnir þessara landa í sessi. 8 i 8 ; i u : % ■i \ í T 4. umferð Fiskemótsins vann 4 Byrne landa sinn Addison létt, Addison sem hefur nokk- uð jafna útkomu gegn Fischer og hagstæöari vinningstölu gegn Benkö segir sjálfur að gegn Byrne sé tilgangslaust fyr ir sig að stilla upp taflinu, Jón Kristinsson veitti Vasjúkov harða keppni, en biðskákina vann Vasjúkov eftir hróksenda- tafl. Uhlmann virtist fá mun betra út úr byrjuninni gegn Freysteini .en.Freysteinn varð- ist af hörku og tókst að halda jöfnu. Jóhann og Szabo gerðu jafntefli eftir jafna baráttu. 1 5. umferð sýndi Uhlmann loks styrkleika sinn og vann Byrne sannfærandi. Tefldi Uhl- mann uppáhaldsbyrjun sína, frönsku vömina og fékk strax unnið I byrjuninni. Bragi gerði jafntefli gegtf Ostojíc, en Bragi hafði haft mun betri stöðu allan timann. Hlutur Benðnýs hafði verið fremur rýr fram að þess- ari umferð. Hafði Benóný kvart að mjög undan ónógri lýsingu í salnum. Birtist Benóný nú með tvær 200 kerta perur sem hann festj sjálfur upp með fagmanns- legu öryggi, Ekki lét árangurinn á sér standa. Benóný tefldi góða sóknarskák gegn Jóhanni og vann fallega, Óvæntustu úrslit- in urðu f skák Szabos og Guö- mundar, Tefldi Guðmundur skákina sérlega vel og gerði út um hana með glæsilegri fóm. 6. umferð. Szabo náði sér aldrei á strik gegn Ostojic og hafði lagt út í vanhugsaðar sókn neitt af sínum gamla sóknar- krafti. Þá vann Bragi Addison eftlr að Bandaríkjamaöurinn hafði laft út í vanhugsaðar sókn araðgerðir. Virðist Bragi njóta sin sérlega vcl gegn aiþjóölegu meisturunum, en gegn þeim hef- ur hann hlotiö 214 vinning gegn y2, Freysteinn tefldi Sae- mish árásina gegn kóngsind- verskri vörn Byrnes. Fórnaði Freysteinn manni, og vann við það peö, en varð síðan aö sætta sig við jafntefli. 7. umferð. Bragi tefldi d3 í 2. leik gegn franskri vörn Uhl- manns, Sótti Bragi kóngsmegin en Uhlmann drottningarmegin. Sókn Þjóðverjans reyndist þó hættulegri og gafst Bragi upp skömmu fyrir bið Benóný tefldi stífa sókn gegn Ostojic sem varðist af rósemi. Reyndist sókn Benónýs ekki nægilega vel und- irbúin og Ostojic innbyrti einn vinninginn enn. Benóný bregzt ekki því áliti að tefla manna frumlegast, en þessi skákstíll virðist ekki gefa Benóný sama árangur og oft áður, 8, umferð. Guðmundur Sigur- jónsson geröi jafntefli við Vasjú kov i vel uppbyggðri skák. Tefldi Vasjúkov e6 afbrigöið í Sikileyjarvöm en var ekki á- nægður með þá stöðu sem byrj unin veitti honum. Bauð hann því jafntefli sem Guðmundur þáði. Bandarfkjamennirnir voru í vfgaham f þessari umferð. Addison náðj strax hörkusókn gegn Benóný sem fékk aldrei færi á að hróka. Flæktist kóng- ur Benónýs víða um borðið þar til hann varð mát. Andrés tefldi of hægfara gegn Byrne sem fóm aði biskup á kóngsstööu Andrés ar og vann létt. Aðalskákin f þessari umferð var Ostojic : Frið rik. Tefldi Friðrik drekaafbrigö- ið í Siki!eyjarvörninni,,sem Júgó slavarnir þekkja flestum betur. Friðrik brá þó snemma út af bekktum leiöum og varð skákin mjög flókin. í lokin lentu kepp- endur f miklu tímahraki og er hamagangnum lauk virtist staða Ostojic unnin. Hafa biðskákir hlaðizt mjög á Friðrik sem á þessu stigi málsins átti þrjár erfiðar biðskákir. 1 6, unsferð vann Friðrik lærdómsríkt tafl gegn Jóhanni. Hvítt: Jóhann Sigurjónsson. Svart: Friðrik Ólafsson. — Sik- ileyjarvöm. I. e4, c5, 2. Rf3, Rc6, 3. d4, cxd, 4, Rxd, e6, 5. RxR, bxR, 6. Bd3. Ég hafði í huga líka uppbygg ingu og Smyslov tefldigegnTalí Kandidatamótinu í Zagreb 1959. 6.....Rf6, 7. o-o, d5, 8. Rd2, Be7, 9. b3, a5, 10. De2, a4, Eftir skákina áleit Friðrik þennan leik hafa komið of fljótt. Betra heföi verið að leika 10 ... Db6 og skipta biskupunum á c8 og d3. II. a3, axb, 12. cxb, Db6, 13. b4, Ba6. Ekki 13.,, Bxb 14. Hbl og svartur tapar manni. 14. BxB, DxB, 15, DxD, HxD. 16. exd, Rxd, 17. Bb2, f6, 18. Rb3. Ég var allánægður með stöð- una á þessu stigi málsins. C peð svarts virðist all vejkt og ekkert annað fyrir hvítan en að sækja að því í rólegheitum. Næsti leik- ur svarts kom mér algjörlega á óvart. 18. ... c5! 19. Rxc, BxR, 20. bxB, Kd7, 21. Hfdl, Hb8, 22 Bd4. Kc6, 23. g3. Nauðsvnlegur leikur. Ef t.d. Hd3 Rf4, 24. Hd2 Hxa! Tanleikurmn. Hér var eini mögu 23. ... Hb3, 24. f4, h6, 25. Hel, Kd7, 26. Hebl? leiki hvíts 26. Hedl og hótunin f5! verður svörtum mjög óþægi- Ieg. 26.....Hd3, 27. Bf2, g5, 28. fxg, hxg, 29. Hb7f Kc6, 30. Habl? Þessi leikur gerir illt verra. Hyítur varö að reyna Hb8 og halda niðri framrás e peðsins. 30......Haxa, 31. Hlb2, eE. 32. Hb8, e4, 33. Hc8f Kd7, 34. Hg8, Half, 35. Kg2, e3. Hvítur gefur. Eftir 36. Bgl H3dl og bisk- upinn fellur. Jóhann Sigurjónsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.