Vísir - 19.06.1968, Blaðsíða 10
10
VIS IR. Miðvikudagur 19. júní 1968.
Kynnrng á forsetaefnunum
i sjónvarpi og útvarpi
Fyrsti kynningarþáttur forseta-
efnanna verður f sjónvarpi og
útvarpi i kvöld kl. 8.30, en alls
verða þættimir þrír. 1 kvöld munu
fréttamennimir, Markús Örn Ant-
onsson (sjónvarpi) og Hjörtur Páls
son (útvarpi) lejggja spumingar fyr
ir forsetaefnin, en þeir voru til
þess fengnir, þar sem þeir eru yfir
lýstir stuðningsmenn hvors fram-
bjóðandans um sig. Markús styður
dr. Gunnar Thoroddsen, en Hjörtur
dr,- Kristján Hldjárn. Munu báðir
fréttamennirnir leggja spurningar
fyrir annan frambjóðandann 5 einu.
Dregið verður um það, hvor verður
fyrst spurður. Þátturinn verður
sendur út beint frá sjónvarpssal i
útvarp og sjónvarp.
Annar þátturinn verður í sjón-
varpi á mánudagskvöldið. Þá munu
stuðningsmenn hvors frambjóðand-
ans um sig verða með 40mínútna
kynningardagskrá fyrir frambjóð-
enduma. Þættimir hafa ekki verið
fyllilega unnir ennþá, svo ekld er
hægt að svo stöddu að skýra frá
því hvemig þeim verður háttað, en
eflaust verða þeir hinir fróðiegustu.
Föstudaginn, 28. júni, tveim dög
um fyrir kosningarnar flytia fram-
bjóðendurnir loks hvor um sig 10
mínútna ávarp samtímis í sjónvarpi
og útvarpi.
Vatnsveita —
i6. síðu.
framkvæmt 18.—20. júlí
n.k. Nú vinna um 100
manns að vatnsveitu-
framkvæmdum í Eyjum,
að byggingu dælustöðv-
ar, lagningu innanbæjar-
vatnsveitukerfis og
sprengingavinnu í hafn-
armynninu.
Lagningu leiðslu frá upptök-
um neyzluvatnsins og niður að
sjó, landmegin, nánar tiltekið á
Krosssandi er lokið. Flytur sú
leiðsla um 700—800 tonn vatns
á sólarhring, en næsta sumar
verður tekin í notkun dæla, og
þá mun leiðslan geta flutt allt
að 1800 tonn á sóiarhring. Síðar
verður önnur leiösla lögð, og
getur sú flutt um 80% meira
vatnsmagn, en sú fyrri. Vinna
við byggingu dæluhússins er
þegar hafin, og vinna þar um 20
manns.
Leiöslan til Eyja liggur um
hafnarmynniö, og þar þarf að
gera allt að 3ja m djúpan skurö
f sjávarbotninn. Þarf víðast að
sprengja fyrir skurðinum, og
hefur það verk gengið fremur
illa vegna ótíðar, og sagöi bæj-
arstjórinn, að ótíðin hefði gert
verkið kostnaðarmeira en búizt
hafði verið við, og tafið fram-
kvæmdirnar.
Heiidarkostnaður viö gerö
vatnsveitunnar er um 127
millj. króna (áætl.). Áætlaður
kostnaður á ári er um 3500 —
4000 kr. á hverja fjölskyldu, og
stofnkostnaður um 2% af fast-
eignamati. Verður vatnið selt
eftir mæli.
Bridge —
>- 16. sföu.
(fyrsta birtist á laugardag).
í fimmta sæti mótsins höfn-
uðu Ástralíumenn með 444 stig
6. Sviss 434, 7. Belgía 422, 8.
Frakkland 415, 9. Svíþjóð 406,
10. ísland 382, 11. Venezúela
365, 12. Austurríki 352.
í dag leika ítalir við Kanada,
en Bandaríkin við Holland. Hvor
leikur verður 80 spil, en sigur-
vegararnir keppa til úrslita. Mót
inu Iýkur 21. júní.
MINNINGARSPJÖLD
Minningarspjöld Flugbjörgunar-
sveitarinnar.
'ást á eftirtöldum stööum: Bóka-
búö Braga Brynjólfssonar, hjá
Sigurði Þorsteinssyni Goðheimum
32 sími 32060. Siguröi Waage.
Laugarásvegi 73 sími 34527, —
Stefáni Bjarnasyni, Hæðargarði
54, sfmi 37392, Magnúsi Þórarins-
syni, Álfheimum 48. sími 37407
Logsuðumaður
óskast strax. Einnig maður vanur málningar-
vinnu (sprautumálun). Upplýsingar ekki í
síma.
H.F. OFNASMIÐJAN
Einholti 10.
VÖRUKAUP
Viljum kaupa nærfatnað, ýmsar gerðir. Til-
búinn barna- og unglingafatnað svo sem
skyrtur, peysur, blússur, buxur og fleiri teg-
undir. Sími 11670.
----------------------1----------------------------
Faöir okkar,
STURLAUGUR JÓNSSON
stórkaupmaður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, laugardaginn 22.
júnf 1968 kl. 10.30.
Jón Sturlaugsson
Þórður Sturlaugsson.
Almennir fundir Gunnars
Thoroddsens utan Reykjavíkur
ÍSAFJÖRÐUR
í Alþýðuhúsinu
föstudaginn 21. júní kl. 20.30
SAUÐÁRKRÓKUR
í Bifröst
laugardaginn 22. júní kl. 16.00
t
KÓPAVOGUR
í Kópavogsbíói
sunnudaginn 23. júní 'kl. 14.00
H AFPÍ ARFJÖRÐUR
sunnudaginn 23. júní kl. 21.00
SELFOSS i
í Selfossbíói
þriðjudaginn 25. júni kl. 21.30
SUÐURNES
í Stapa
miðvikudaginn 26. júní kl.v 21.00
Kristjón Kristjáns-
son, forstjóri,
látinn
Kristján Kristjánsson, forstjóri,
lézt f sjúkrahúsi Hvítabandsins sl. ’
sunnudag. Hann hafði gengið þar
undir uppskurð og var talinn á
batavegi, þegar hann lézt í svefni.
Kristján var kunnur athafna-
maður bæöi í Reykjavík og á Ak-/
ureyri, þar sem hann hóf atvinnu-
rekstur. Hann stofnaði Bifreiöastöð
Akureyrar og rak hana lengi ásamt
verkstæði, sem var kennt við
stööina. Þá hafði hann á hendi
Fordumboð á Akureyri 05 síöar
að hiuta i Reykjavík (Fordumboð-
in eru tvö hér).
Auk þess var Kristján meðeig-
andi að og í stjórn margra fyrir-
tækja og stofnana.
Níno Tryggvodóttir
listmálori, látin
Hin kunna listakona Nínai
Tryggvadóttir andaðist í fyrri-’
nótt á sjúkrahúsi f New York’
eftir stutta sjúkdómslegu. Húnj
var 55 ára að aldri.
Nína hefur að mestu dvalið]
erlendis síðan 1935, f Kaup-
mannahöfn, París, New York.j
London og víðar. Hún giftistj
bandarískum lækni, Aifred L..
Copley 1949, en þau bjuggu að'
mestu leyti f New York. Hér|
heima dvaldi Nína Tryggvadótt-|
ir þó árin 1950—52.
Nína hélt fjölda málverka-'
sýninga víða um heim. Enn-|
fremur samdi hún nokkrarj
barnabækur. Hún verður jarð-
sett hér á íslandi.
FJOUDJAN HF.
Hagstæðustu verð.
Greiðsluskilmálar.
Verndið verkefni
íslenzkra handa.
FJÖLIÐJAN HF.
Sími 21195
Ægisgötu 7 Rvk.
BORGIN
BELLA
„Já, en elsku Pétur — ég var
búinn að lofa Steina og Jóa og
Kalia aö giftast þeim, löngu áð-
ur en ég kynntist þér ...“
lilBMET!
Stærsta sjávardýr, sem vitað
er til aö lifað hafi á jöröinni, var
Krónósaurusinn, sem lifði við
Ástraliu fyrir um það bil
100.000.000 árum síðan og var um
50 fet á lengd.
VISIR
Jyrir ^\%\ánun
Nýjasta símskeyti.
\
Þrátt fyrir geipileg vandræði á
silfurmarkaðinum í Mexfco selur
SÖREN KAMPMANN - góðar
vörur. fyrir sanngjarnt verö.
Vísir 19. júní 1918.
VEÐRIB
■ DAG
Norðaustan
gola eða kaldi
léttskýjað
Hiti 10—12 stig
i dag 6—7 í
nótt.
ifflTnnvTnrinmmnn
FILMUR QG VELAR S.F.
I ■ I 11 I I U
FRAMKÖilUN
LITFIIMUR
E
FILMUR OG VÉLAR S.F.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 SÍMI 20235 - BOX 995