Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 10
m V í SIR . Þriðjudagur 2. júlí 1968. Umferðarverðir úr unglingavinnunni Umferðarverðir gegna enn störf- um hér í höfuðborginni. Þó er sá háttur viðhafður, að þeir eru á „fullum launum“, sem vinna núna við umferðarvörzluna. Það eru ein- ungis flokkar úr unglingavinnu eykjavíkurborgar sem annast þessi störf. Unglingarnir fá 21 krónu fyrir hverja klukkustund, og má segja að það safnist þegar saman kemur, þótt það taki ef til vill talsvert Iangan tíma. Við brugð um okkur niður i miðbæ og hittum þar unga og fallega stúlku viö um- feröarvörzlu á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Unga stúlkan, sem heitir Hulda Hafsteinsdóttir, mátti hafa sig alla við að halda óþolin- móðum Reykvíkingum í skefjum á þessari fjölförnu umferðarleið í miöborginni. — Er ekki gaman að starfa við umferðarvörzlu, Hulda? *— Ekkert sérstaklega, en þó virð ist fólk fara eftir þv£ sem við gerum. — Reyndir þú að fá vinnu á öðrum staö í vor? — Nei, ég vissi að það mundi ekkert þýða. — Eruð þið einungis við þessi störf? — Nei, nei. Ég byrjaði fyrst inni á Laugardalsvelli, en fór svo hing- að niður eftir. Sennilega förum við síðan inn i Heiðmörk og vinnum að ræktunarstörfum. — Hvað er langur vinnutími? — Við vinnum 2x2 tíma á dag, frá kl. hálf tólf til hálf tvö og síðan frá hálf fimm til hálf sjö. Við fáum borgaða fimm tima vegna strætisvagnaferða o. s. frv. 1 — í hvaöa skóla varst þú í vet- ur? — Ég var í öðrum bekk Réttar- holtsskóla og fer í verzlunardeild sama skóla næsta vetur. 12 tíma árangurs- laus sáttafundur — Sildveibideilan verður alvarlegri meb hverjum degi ■ Samningafundur milli sjó-®'- manna og útvegsmanna stóð í tólf tíma til klukkan hálf-níu í morgun, en enginn árangur náð- ist á þeim fundi og hefur annar fundur verið boðaður í kvöld. Situr enn við það sama í síld- veiðideilunni. Búizt var við að fiskverðið yrði ákveðið nú eftir helgina, en ekki hefur neitt af því frétzt ennþá. Síldveiðideilan verður alvar- Iegri með hverjum deginum, þar sem síldveiðiskipin liggja flest í höfn, en fréttir berast af miklu síldarmagni á svipuðum slóðum og um þetta leyti í fyrra, og hafa nokkur skip fengið góðan afla þar norð-austur af landinu um 700 mílur úti í hafi. Aust- fjarðabátar halda nú út til veiða þrátt fyrir deiluna, og fóru tveir út frá Neskaupstað í gær. Mikil óvissa ríkir á vinnumark- aöinum vegna síldardeilunnar. Hóp- ur ungs fólks bíður eftir að komast í vinnu, en engar allsherjar ráö- stafanir hafa ennþá verið gerðar af hálfu opinberra yfirvalda til þess aö bæta úr þeim vanda og er beðið eftir því að síldarvertíðin hefjist. Hins vegar hefur gengiö treglega að manna síidarflotann. Sjómenn eru ekki ánægöir með sinn hlut og útvegsmenn hafa lýst yfir því, að síldveiðiflotinn verði rekinn með stórtapi í sumar, ef rekstursgrund- völlurinn verður svipaður og í fyrra. Þessi tveir aðilar og síldarverk- smiðjurnar verða að semja fyrir til- stilli rfkisstjórnarinnar um síldar- verðið og kjör sjómanna og út- vegsmanna, en það hefur ekki tek- izt til þessa. hférabsmót Sjálfstæbisflokks- ins hefjast um næstu helgi — Verba jbó / Búbardal, ab Arnarstapc á Mýrum og á Hellissandi KolsScentindir — í sfðu skemmdir geysivíða.' Einnig væru miklar skemmdir í Norð- urárda! og á öllu Norð-austur landi. Dr. Halldór sagði að skemmdir vegna kals væru miklu minni utan túna, en innan túngarðs. Þetta væri vegna þess, að ræktuð grös og erlendar gras tegundir, sem ræktuð væru á túnum, þyldu tíðina miklu verr en gras það, sem væri utan tún garðsins. Skoda Oktavia '62 til sölu. Upplýsingar i síma 41278 eftir kl. 7. SALONIKI: Eitt vitnanna í máli, sem flutt er fyrir herrétti í Sal- oniki, hefur borið, að Konstantin konungur hafi verið þátttakandi í leynifélagsskap, sem hafði að mark miði aö steypa hernaðarstjórninni Þetta er í fyrsta sinn, sem konung- ur hefur opinberlega verið borinn slíkum sökum. BRUSSEL: Hinn opinberi saksókn- ari f Brussel hefir lýst yfir, að Jean Schramme, yfirmaöur hvítra máialiða sem börðust í Kongó, hafi játað að hafa myrt Beigíumann meðan hann var í Kongó og kastað iíki hans í fljót (í apríl eða maí í fyrra). Samkvæmt lögum er hægt að leiða fyrir rétt f Beigfu Belgíu mann, sakaðan um morð á öðrum Beigíumanni á erlendri grund. Jean Schramme hefur verið handtekinn BASEL: Daniel Cohn — Bendit — Danni rauði — sem mjög kom við sögu í stúdentaóeiröunum í París, hefur ákveöið að hætta afskiptum af stjórnmálum að minnsta kosti í biii. Hann símaði til Vestur-Berl- ínar, að hann myndi ekki flytja á.arp, sem búið var að ákveða, að hann fiytti þar. BELLA Ég er oröin hundleið á því aö þurfa alltaf að planleggja há- degismatinn. Sá sem hirt hefur matrosahúfu fyrir framan Matardeild Sláturf. Suðurl nds í Hafnarstræti, er vin- samlega beöinn að skila henni í Lækjartorg 1. Vísir 2. júlí 1918. NEW YORK: Robert F. WagnerJ fyrrverandi borgarstjóri f New» York hefur unnið embættiseið semj ambassador Bandaríkjanna í Madr-J id. « • PARÍS: Parísarlögregian hefir hand’ tekið 6 menn, sem stunduðu eitur-!> iyfjasmygl og sölu í stórum stíl., Einn þeirra, M. Guirche fór títt’ milli franskra hafna og New York og hafði sjö sinnum Citroen-bif- reið meðferðis, en f henni voru eit- urlyfin falin (hreint heroin). Hann hefir játað að hafa fengið 50.000 franka þóknun (10 þús. dollara) fyrir hverja ferð. Eiturlyfjahringur- inn sendi nýlega 730 ' af hreinu heroini til New York en verðmæti þess miðað við söluverð ; New York er 292 millj. dollara. Um næstu heigi hefjast héraðs- mót Sjálfstæðisflokksins á þessu sumri og verða þá haldin þrjú mót sem hér segir: Búðardalur, föstudaginn 5. júlí kl. 21. Ræðúmenn verða Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, Jón Árnason, alþingismaður og Birgir ísl. Gunnarsson, hdl. Arnarstapi á Mýrum, laugardag- inn 6. júlí kl. 21. Ræöumenn verða Jóhann Hafstein, dómsmálaráð- herra, Friðjón Þór'öarson alþingis- maður og Jón E. Ragnarssofi, hdl. Hellissandur, sunnudaginn 7. júlí kl. 21. Ræðumenn verða Jóhann Hafstein, dómsmálaráöherra, Ás- geir Pétursson, sýslumaður og Árni Emilsson, verzlunarmarður. Skemmtiatriði annast leikararn- ir Róbert Arnfinnsson og Rúrik Haraldsson og hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Hljómsveitina skipa Ragnar Bjarnason, Grettir Björns- son, Árni Scheving, Jón Páll Bjarna son og Árni Elvar. Söngvarar meö hljómsveitinni eru Erla Traustadótt ir og Ragnar Bjarnason. y\ð loknu hverju héraðsmóti verð, ur haldinn dansleikur, þar sem hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi og söngvarar hljómsveitarinnar.kcimá frárrii. Verkfræbinemar T æknifræbinemar Óskum að ráða mælingarmann og mann við efnisútreikninga. Uppl. í síma 52485. | IfllSMET Hennar hátign Elízabet II er fulltrúi k^nungsættar, sem swið hefur við völd allt frá árinu 500 — eöa allt frá tímum Eirc aí Dalriadr (í Skotlandi) en hann var forfaðir hennar í 48. ættlið VEBRIC DAG Norðan gola og hiti 10 til 13 stig f dag. Hægviðri og 6 til 8 stig i nótt. Léttskýjað MINNINGAHSPJÖLD Minningarspjöld Flugbiörgunar- sveitarinnar. ást á eftirtö'dum stöðum: BOka aúð Braga Brvniólfssonar. hiá Sigurði Þorsteinssvni Goöheimurr 32 simi 32060 Sigurði Waage Laugarásveg' 73 sími 34527 Stefáni Bjarnasyni, Hæðargarði 54, simi 37392, Magnúsi Þórarins- syni, Álfheimum 48, simi 37407. r- i *ua.’<t>aí

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.