Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 02.07.1968, Blaðsíða 12
72 V í SIR . Þriðjudagur 2. júlí 1968. AN N ELORRAIN E: CÆFA EÐA GENGI Hún starði á hann glöð og hissa, og það var ertnisglampi í augun- um á honum, þegar hann leit á hana. — Ég trúi þessu varla, sagöi hann lágt, um leið og hann tók utan uin hana og sveiflaði henni út á gólfið. — Forlögin' hefðu ó- mögulega getað verið svona væn, án þess að ég ætti einhvern þátt í því. Hann hló. — Mér tókst nefniléga aö depla augunum til hljómsveitarstjórans, þegár ég vildi láta hann þagna. En drottinn minn, Mary mia, hvernig geturðu orðið svona falleg? Þú leyfir mér von- andi að þúa þig? Mary kinkaði kolli og hló titr- andi. Hún vissi ekki almennilega, hvernig hún átti að haga sér í þessum yndislega, duflandi leik. Mary varð forviöa á að upp- götva, að hún dansaði vel — það hlaut að koma af þvi, hve vel hann stjómaði henni. Hún lagði aftur augun og lét hann fara meö sig hvert sem hann vildi. Hún var ekki í neinum vafa um, að hún var að dansa við fallegasta mann- inn í salnum, og að hún hafði í eitt skipti fyrir öll stungið upp í stelpurnar, sem skríktu og sögðu að enginn vildi dansa við hana. — Hvað. er það, sem þér finnst svona skemmtilegt? spurði hann með andlitið rétt viö hárið á henni. — Má ég hlæja Hka? — Nei, það held ég varla, sagði hún hlæjandi. — Ég var.bara að hugsa um, að .þaö lá við, að ég væri hætt við að koma, og nú . .. — Og nú? hváöi hann spyrj- andi. ÝMiSLEGT ÝMISLEGT GÍSLl JÓNSSON Akurgerði 31 Slini 35199 Fjölhæf jarðvinnsluvél. annasi lóðastandsetningai greí hús grunna. holræsi o. fi. 3 30435 Tökum að okkur hvers konai múrbro' og sprengivinnu 1 húsgrunnuro og ræs im Leigjuro út loftpressui og vfbra sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats •onai Alfabrekkt við Suðurlands braut. slmi 10435 TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNINÓAR, FlJÓT OG VÖNDUÐ VINNA ' ÚRVAL AF ÁKLÆÐUM LAUGAVEG 62 - 5lM» I0q25 HEIMASlMI 83634 BOLSTR UIM í j — Mér þykir vænt um að ég i 1 skyldi koma, sagöi hún ofur blátt áfram. — Það er allt og sumt. — Þú ert indæl, sagði hann og : brosti. — Ég hef sagt við sjálf- ; an mig, að það hafi verið heimska | af mér aö leggja svona mikið j upp úr fyrstu áhrifunum, sem ég I varð fyrir af þér. Þegar öllu er á botninn hvolft, hugsaði ég, get- ( ur maður ómögulega órðið ástfang inn af hillingum. Þú verkaöir þann- ig á mig. Ég sagöi við sjálfan mig, að líklega mundi ég verða fyrir vonbrigðum, þegar ég sæi þig næst, og að ég væri flón aö vera að eyöa tíma í þetta, og þar fram eftir götunum — og sjáðu svo, hvernig nú er komiö. Þú ert miklu fallegri og indælli en þú varst síöast! — Nei, sagði hann, þegar hljóm- sveitin þagnaði aftur. — Ég ætla mér ekki að sleppa þér enn, Mary! Við skulum ganga út og tala sam- an — Þaö er svo margt, sem ég þarf að fá að vita um þig. Ekki ennþá, svaraði Mary um hæl. Hún var hrædd um að spilla þessum yndislegu augnablikum. — Ekki ennþá. Það er svo lítið um mig að segja. Annað en að ég vinn hérna, og að ég hef yndi af því. Hann dró hana varlega en ó- hikað með sér út af dansgólfinu og inn í eina stofuna, sem ætluð var gestum, fyrir handan ganginn. Þar logaöi eldur á skíðum, og þar voru freistandi hægindastólar. — Hvort sem þér — þú — meina ég — trúir því eða ekki, er þessi stofa dags daglega fund- arstaður lafhræddra hjúkrunar- kvenna og fokreiðrar yfirhjúkrun- arkonu, sagði Mary um leiö og þau settust. Þaö er hérna, sem þær eiga að mæta, þegar þær hafa svikizt um, verið alvarlega óhlýðnar eða óhóflega metnaöargjarnar. Það er allt sama syndin, í augum yfir- hjdkrunarkonunnar — hún er mjöjf strong við þær, sem fara yfir strik iö. Mary þagnaði þegar hún sá, aö hann áttaði sig ekki á hvert hún var að fara. Nú fann hún strax að hún var farin að tala um spítalastörfin. — Afsakaðu, sagði hún hlæjandi. — Segðu mér heldur eitthvað um sjálfan þig. Er faðir þinn hérna í kvöld? Hún sá aö svipurinn á 'honum harönaöi og iöraðist eftir það sem hún hafði sagt, án þess þó að skilja hvers végna hann hafði þykkzt viö spurninguna. Hvers vegna spyrðu? sagði hann stútt. — SlLiptir það þig nokkru máli? Ætlarðu aö segja mér að þú sért eiún af aðdáendum hans? Hvort sem þú trúir því eða ekki, fær hann bréf frá lagiegum litlum VÉLSKÓFLA til leigu i minni og sterri verk t. d. grunna, skuröi o. fl. ippl. í símtun: 8 28 32 og 8 29 51 í hádeginu og eftir kl. 7 á kvöldin. GRÖFULEIGAN HF. VM%VVAV.V.V.W.V.V.V.VV.WAW.V.VA%WAW PIRA-S YSTEM Tvímælalaust hagkvæmustu og fjölbreyttustu hillu- húsgögnin á markaönum. Höfum lakkaðar PIRA-hillur, teak, á mjög hagstæðu verði. Lítiö í SÝNINGARGLUGGANN, Laugavegi 178. STÁLSTOÐ s/f, Laugavegi 178 (v/Bolholt), sími 31260 í í .VA%V.\V.V.%V.V.V.V.V.\\VA^V.V.V.V.V.V.V.V.V hjúkrunarkonum, alveg eins og hann væri kvikmynda-kvenna- gull. Hún hnyklaði brúnirnar því að henni sárnaði í hvaöa tón hann sagði þetta. Var þetta ekki hálf strákslega mælt spurði hún hik- andi. — Þegar á allt er litiö hljóta allir, sem áhuga hafa á lækning- um, að dást að fööur þínum. Mér finnst það ekki undarlegt. Ég dá- ist að honum sjálf, og er ég þó engin „lagleg, lítil hjúkrunarkona", eins og þú kallar þaö. Áður en hún skildi hvað hann vildi, hafði hann sprottið upp úr stólnum, tekið um báðar hendur hennar og dregið hana að sér. — Ertu það ekki? spuröi hann glaður. — Það éar hundaheppni! Góða Mary. Ég . hef heyrf meiri spítala-golfrönskú en ’ég get torg- að. Ég er alinn upp á eter og hef verið innan um verkfæri úr skurðstofunni öll mín uppvaxtar- ár. Viö notum skurðarhnífa til að borða með og slofrum í okkur súp una úr nýrnaskálum. Mary hló og gleymdi ógeðinu, sem hún hafði haft á ummælum hans áður. Hann var ungur, hugs aöi hún með sér, og það var gam an að vera með honum. Hún var ekki vön að skemmta sér meö neinum. í kvöld vildi hún vera ung og sæl — vildi geyma sér þetta yndislega kvöld í endurminn ingunni og hugsa til þess hvenær sem hún var þreytt og stúrin. 1 fyrsta skipti vildi hún gleyma — aö minnsta kosti nokkra klukku- tíma aö hún væri læknir. Tony þurfti ekki að fá að vita það — >egar Tarzan, sem orðinn er vopnlaus, ætlar aS ráðast að fuglinum... ... losar stúlkan skyndilega beltið, sem hún er með um mittið. Augu? — Meinar hún að ég eigi að hylja augu fuglsins? hvaö kom honum það viö? Hann vildi helzt vera sem fjærst starfi föður síns, því ekki það? Hún vildi það gjarnan líka. Til miðnættis vildi hún vera Öskubuska í ævin- týrinu, og síðan hverfa til raun- verunnar aftur, hamingjusamari og ánægðari, því að hún hafði gleymt sinni réttu tilveru um stund. TAPAÐUR - FYRIR FULLT OG ALLT? Kvöldið leið fljótt. Tony dansaöi við hana, aftur og aftur, og hinir læknarnir jöfnuðu sig von bráðar, eftir taugalostið sem þeir fengu er þeir sáu hana þama, og tóku eftir ljómanum í augunum á henni og roöanum í kinnunum. Þeir komu hver eftir öörum til þe'ss ao rá aö dansa við þessa nýju Mary Mar- land. Um miðnætti, þegar hátíð- inni var að ljúka, sást Simon Carey í dyrunum og skimaöi um salinn eins og álfur úr hól. Mary dansaði fram hjá honum — við Tony — og veifaði og brosti til hans, en það var auðséö að hann þekkti hana ekki. Og henni þótti gaman aö þvf. — Hvenær fæ ég að sjá þig aftur? Hún heyrði varla spuminguna. Þegar Tony endurtók hana, hnykl- aði hún brúnimar, og nú var hún allt í einu komi í heim raunver- unnar aftur. — Sjá mig aftur? endurtók hún dræmt. — Ég — ég veit ekki. Ég kem sjaldan nokkurs staðar — ég hef svo mikið að gera. Hann hló ertandi. — Við skulum binda enda á það, Mary. Héðan í frá kemur þú út á lífið með mér — ekki einu sinni, eða sjald- an, heldur oft! Hélztu að ég vildi missa sjónar af þér, úr því að ég náði f þig? Þú verður að gefa mér heimilisfangið þitt áður en við skiljum, — nei, það er bezt að ég fylgi þér heim. Mary brosti og varð dálítið ó- rótt, án þess að hún vissi hvers vegna. — Það er nú ekki langt aö fara, sagði hún. Héma yfir þveran garðinn og að húsinu þama viö hliðiö. — Hvernig á að skilja það? spurði hann og horfði á hana. — Þú gleymir líklega, að þú hef- ur sagt mér að þú værir ekki hjúkrunarkona. REIKNINGAR * LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA... í>oð sparar vður t'ima og óþægindi INNHEIMT USKRIFST OFAN Tjarnargötu 10 — 111 hæd — Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3Iinur) t*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.