Vísir - 03.07.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 03.07.1968, Blaðsíða 1
 VISIR 5£. árg. - MiðvíkHdagur 3. jújí 1968. - 144. tbl. ENN EITT TAPIÐ ■ Enn einu sinni urðu íslendingar að þola tap í knatt- spyrnulandsleik. Í þetta sinn voru það v-þýzkir áhugamenn, sem að vísu eru engir áhugamenn á íslenzkan mælikvarða, sem unnu Íslendingana, 3—1. Íslenzka liðið sýndi ágætan ieik þar til um miðjan síðari hálfleik, er Þjóðverjarnir jöfnuðu leikinn, 1 — 1. Hermann Gunnarsson hafði skorað eina mark íslands á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Segja má, að ísl. liðið hafi verið betri aðilinn fyrri hálfleik, en Þjóðverjarnir réðu öllu um gang leiksins í síðari hálfleiknum. ■ Á myndinni sjáum við hinn ágæta markvörð, Schiitz, slá knöttinn frá markinu, en Matthías Hallgrimsson (lengst ‘il vlnstri), er við öllu búinn. Sjá nánar um leikinn á iþróttasíðu blaðsins f dag. STJÓRNARSLIT ERU EKKI Á DAGSKRÁ — sagði Emil Jónsson v/ð Visi i morgun ■ Stjórnarslit eru ekki á dagskrá, að því er Emil Jóns- son sagði Vísi í morgun. All- miklar bollaleggingar urðu manna á meðal í gær vegna forystugreinar Alþýðublaðs- ins í gær, en þar stóð m. a.: „Kann svo að fara, að meira reyni á hinn nýja forseta á næstu vikum en margan hef- ur grunað“. Settu margir þessi orð blaðsins f samband við, að Alþýðuflokkurinn hefði í hyggju að slíta stjórn- arsamstarfi við Sjáifstæðis- flokkinn. M. a. eru skrif um það í Tímanum og Þjóðviljan- um í morgun. Emil Jónsson, utanríkisráð- herra sagði vegna skrifa þess- ara í viðtali við Vísi í morgun: „Hér hlýtur að vera um mis- skilning að ræða. Mér er ekki kunnugt um tilefni til slikrar túlkunar. Vera má að fyrir höf- undi Ieiðarans vaki, að ef til vill geti komið til kasta forset- ans í haust vegna stjómar- kreppu, sem gæti hugsanlega myndazt vegna erfiðleikanna". Martröð fyrir fólkið - Öllum búpeningnum lógað — Talað við Agúst Þorleifsson dýralækni i Eyjafirði Landlæknir og yfirdýralæknir hafa lagt til við viðkomandi ráðu- neyti að niðurskurður búpenings verði hafinn á Rútsstöðum í Eyja- ; firði og nýbýlinu Akri frá Rúts- stöðum, þar sem taugaveikibróð- irinn kom upp í búpeningi bónda. Talaði Visir við Ágúst Þorleifs- son dýralækni- á Akureyri í morg- un. Sagði Ágúst, að lagt hefði verið j til að öllum búpeningi á báðum bæjum yrði lógað. Á bæjunum báð-1 um eru um 30 kýr fyrir utan 7, sem þegar eru dauðar af völdum pestarinnar. Auk þess er hænsna- rækt á báöum býlunum eða um 200 hænur. Auk þess má búast við aö tveim hestum og tveim hundum verði einnig lógað. Gerði Ágúst ráð fyrir því, að úrskurður ráðuneytanna kæmi á morgun eða næsta dag og yrði þá hafizt handa, — Það er bezt fyrir fólkið að styðja Rockefeller Eugen McCarthy, sem heldur ó- trauður áfram baráttu sinni til þess að verða fyrir valinu sem forseta- efni demokrata, lét bess getið um síðastliðna helgi er ýmsir helztu ríkisstjórar, er fylgja demokrata- flokknum að málum, sátu á ráð- stefnu, að hann kynni að styðja Nelson Rockefeller, svo fremi aö hann gæti fallizt á stefnu hans í utanríkis- og innanríkismálum. Þessi ummæli voru vitanlega skilin á þann veg, að í þeim fæl- ist hótun um að styðja Nelson Rockefeller, ef Hubert Humphrey með flokksvélina að baki sér yröi valinn forsetaefni flokksins, en Humphrey vinnur stöðugt af kappi að því að tryggja aðstöðu sína meðal ráðandi manna í flokknum í hinum ýmsu ríkjum, og m. a. hefir hann levnt og Ijóst unnið að því, að tryggja sér eins mikið kjör mannafylgi og frekast er unnt fyr- irfram, en geta má þess, að kjör- menn demokrata í Kaliforníu, þar sem Robert Kennedy sigraði vilja ekki binda sig fyrir flokksþingið. Einn af fyrrnefndum rfkisstjór- um demokrata sagði út af ummæl- um McCarthys, að þau gætu reynzt „góður nagli í hans eigin pólitísku líkkistu" — en ýmsir benda á, að Nelson Rockefeller studdur af McCarthy myndi hafa sterka að- stöðu í kosningum. SÍIDVIIBIDIIUN LEYST Fyrstn sumarsíldín kom á land um hádegið. Síldarflotinn heldur út i kvöld og nótt. Síldarverðið ákveðið í morgun SÍLDVEIÐIDEILAN LEYSTIST í nótt eftir tólf tíma samn- lngaviðræður. Útgerðarmenn og sjómenn hafa setið á Iöngum fimdum með sáttasemjara ríkisins að undanförnu, en samn- ingar tókust loks í morgun um klukkan sjö. — Yfirnefnd verð- lagsráðs, sem skipuð er fulltrúum útgerðarmanna, sjómanna, fulltrúum síldarkaupenda og oddamanni ríkisstjórnarinnar, kom saman i morgun xlukkan tíu til þess að fjalla um síldar- verðið og náðist samkomulag um það. Yfirlýsing frá yfir- nefnd er væntanleg.í dag. Búast má við að hreyfing kom ist á síldveiðiflotann strax næstu daga, en skipin hafa flest legið í höfn vikum saman. Skip- in eru flest tilbúin til veiða og hafa aðeins beðið eftir að deil- ari leystist. — Hins vegar hefur gengiö erfiðlega að manna flot- ann. Búizt er viö fundi í sjómanna- félaginu I kvöld og munu samn- ingarnir verða bornir undir at- kvæði á þeim fundi, en Jón Sig- urðsson, formaður félagsins vildi ekkert um samningana segja í morgun að svo stöddu. Sex skip eru komin til veiða austur í haf og hafa fjögur þeirra þegar fengið afla, eitt skipanna, Guðbjörg, landaöi í Færeyjum í morgun, og Hilmir átti að koma til Stöðvarfjarðar laust fyrir tólf í morgun meö 450 tonn og er það fyrsta síldin, sem berst á land fyrir austan í sumar. Sagði Guðmundur Björnsson framkvæmdastjóri á Stöðvar- firði í viðtali við Vísi í morgun, að þegar yrði byrjað að bræða þessa síld í verksmiðjunni á Stöövarfirði. Hér væri um fall- ega og feita síld að ræða, sem væri söltunarhæf, ef hún kæm- ist ný í tunnurnar. Guðmundur var bjartsýnn á síldveiðihorfurnar og sagðist vonast til þess að fá næga síld til Stöðvarfjarðar í sumar. hafizt verði handa sem allra fyrst. Það er hreinasta martröð fyrir fólkiö að hafa kýrnar inni á fóðr- um og þurfa að hella niður allri mjólkinni. Nú þegar hafa kýmar verið hafðar inni í hálfan mánua Það er ekki hægt að bjóða fólkinu upp á meira, þegar auðsýnt er að allt starf þess er unnið fyrir gýg. Ágúst sagði ennfremur, að hann mundi hafa yfirumsjón með drápi búpenings og myndi fá 5—6 menn með sér til verksins. Ennfremur yröu fengnar jarðýtur til þess að grafa eina allsherjar stóra gröf fyrir búpeninginn. Nú eru þau þrjú, sem fengu veikina að hress- ast, en eru ennþá á sjúkrahúsinu á Akureyri. Voru það fjósameist- ari, móðir bændanna á Rútsstöð- um og ungur sonur bóndans á Akri. Þór Hjaltason, bóndinn á Akri sagði Vísi í morgun, að heimilis- fólkið væri fegið því að ákvörðun hefði verið tekin í málinu og lóg- un búpeningsins færi fram. „Við erum fegin því og vonum, að það verði sem allra fyrst." Þeir bræður á Rútsstöðum munu 1M>- 10. síða Hamingjuóskirnar streyma til heimilis hinna nýkjörnu forsetahjóna Viðtal Visis við frú Halldóru Eldjárn Síðan það varð lióst, að dr. Kristján Eldjárn hafði borið slgur úr býtum í forsetakosningunum, hefur að sjálfsögðu verið mikið á seyði á heimili hans. Vísir hafði i morgun tal af frú Halldóru Eldiárn, og spurði hana eftir þvi, hvort ekki hefði verið í mörgu að snúast undangengna daga. Frú Halklóra sagði, að heilla- óskaskeyti hefðu borizt í hundr- aða ef ekki þúsundatali. Gestagang- ur hefur að sjálfsögðu verið gífur- legur, og síminn hefur ekki linnt á látunum. Fólk' sem ekki er persónulega kunnugt þeim hjónum hefur hringt og borið fram ham- ingjuóskir sínar. Blóm hafa streymt að, og yfirleitt hafa þeim hjónum borizt hamingjuóskir af öllu tagi. Frú Halldóra sagði, að þau hjón- in hefðu í hyggju að taka sér ein- hverja hvíld á næstu dögum, en hún kvaðst samt ekki geta sagt um, hvort þau mundu fara eitthvað út úr borginni eða vera hér kyrr. Að lokum kvaðst frú Halldóra vilja þakka öllum þeim fjölmörgu, sem hafa sent þeim hamingjuóskir eða vottað þeim ánægju sína á ann- an hátt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.