VÍSIR . Mánudagur 8. júlí 1968. Siglufjörður 1818 - 1918 - 1968 Fré háfíðnhöld- unum á Siglufirði mm m Helgi Sveinsson, leikfimi- kennari, færir þakkir fyrir heiðursviðurkenninguna, en hjá honum stendur Júlíus Júliusson, framkvæmdastjóri hátfðarnefndar. Ljósm. H. G. Fyrir framan barnaskólann safnaðist saman nær 3 þúsund manns og hlýddi á ávörp og söng karlakórsins „VÍSIS" í glamp- andi sólskini og sumarblíðu. — Ljósm. Hafliði Guðmundsson. TTvaðanæva af landinu iX streymdi fólk til Siglufjarö- ar - flest burtfluttir Siglfirð- ingar —til þess að vera viö- statt hátíðahöldin, sem fram; fóru á laugardag og sunnudag, þegar 150 ára afmælis verzlunar staðarins og hálfrar aldar af- mælis kaupstaðarins var minnzt. Hátt á þriðja þúsund manns var samankomiö á leikvellinum fyrir framan barnaskólann, þeg ar bæjarstjórinn, Stefán Frið- bjarnarson, setti hátíðina á laug ardag og bauð gesti velkomna, sem sumir hverjir komu frá vinabæjum Siglufjarðar á Norð- urlöndum, færandi hamingjuósk ir, vinarkveöjur og gjafrr. Glampandi sólskin var og stillt veður strax um morgun- inn, sem hélzt út allan daginn, svo hvert mannsbarn var komið í hátíðarskap um leið og það sté út úr dyrunum fyrst um morguninn. Flutt voru ávörp, en þess á milli söng karlakórinn „VÍSIR" og kvennakór, og sérstakir gest ir kaupstaöarins báru fram gjaf- ir í tilefni dagsins. Siglfirðing- ar busettir í Reykjavík færðu kaupstaðnum 250 þús kr., sem varið skyldi til kaupa á skíða- lyftu. Frá Vestmannaeyjum barst fagurt málverk og steinn úr Surtsey og þannig mætti lengi telja. Ræðumenn minntust helztu at burða úr sðgu kaupstaðarins og verzlunarstaðarins og létu í ljós beztu framtíöaróskir. Með al gesta og ræðumanna Voru forsætisráðherra, dr. Báarai Benediktsson, og félagsmálaráð- herra Eggert G. Þorsteinsson. Til skemmtunar gestum sýndi fimleikaflokkur Siglfirðinga und ir stjórn Helga Sveinss., leik- fimikennara, listir sínar á slá og hlaut gott klapp fyrir. Það rifj aðist upp fyrir viðstöddum, aö stjórnandinn, Helgi Sveinsson, hafði einnig stjórnað fimleika- sýningu á 25 ára afmælishá- tfð kaupstaðarins, en Helgi átti fyrir stuttu fimmtugsafmæli. Fimleikamennirnir heiðruðu stjórnanda sinn að tokinni sýn- ingunni meö sérstakri gjöf, styttu af fimleikamanni úr silfri. Meöan böm og nnglingar skemmtu sér við að horfa á þá Bessa Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson við barnaskólann, hröðuðu aðrir sér að íþróttavell inum, þar sem fram fór knatt- spymukeppni milli heimamanna og Siglfirðinga búsettra annars- staðar. Vildu flestir ógjarnan missa af þvf að sjá heimameim veita „flóttamönnunum", eins og heimamenn glottandi nefndu þá burtfluttu, verðskuldaða ráðn ingu. Urðu þeir heldur ekki fyrir vonbrigðum þvi að leikn- um lyktaði meö glæsilegum sigri heimamanna. Síðan dreifðist mannfjöldinn — sumir til þess að skoða mál- verka- og ljósmyndasýningu, sem opnuð haföi verið í gagn- fræðaskólanum, en aðrir til þess að tryggja sér aðgöngumiða að músíkkabarett, sem sýndur var í biómu um kvöldiö. Fram eftir nóttu var svo stiginn dans í sam komuhúsinnu báðum, en á sunnudag var hátíðardagskránni ha3diö áfram. 1 1 Hliðið að hátíðarsvæðinu. - Ljósm. H.G. Fimleikar á slám voru meðal skemmtiatriða hátíðardagskrárinnar. Þrátt fyrir sól og blíðu síðustu daga sjást þð enn í fjöllunum leifar hins harða vetrar, sem nú er Iiðinn. Ljósm. J. R.