Vísir - 08.07.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 08.07.1968, Blaðsíða 16
VISIR Mánudagur 8. júlí 1968. Varalína bjargar málunum H Það olli miklum vandræðum, er sæsímastrengurinn Scotice slitn- aði s.l. föstudagsmorgun. Er senni legt, að togari hafi verið að verki, en þó er það ekki fullvíst. Blaðið hafði samband við Aðalstein Nor- berg, ritsímastjóra, og sagði hann að slitin hefðu orsakað mikla erf- iðleika, en þó er nokkurs konar varalína í gegnum loftið og hefur m-> 10. dða GJALDÞROT YFIRVOFANDI HJÁ KAUPFÉLAGI RAUFARHAFNAR Öll starfsemin að koðna niður. — Ekkert gert til að endurbyggja frystihúsið, sem brann i vetur. — Veldur alvarlegu atvinnuleysi H Mikið atvinnuleysi hefur verið á Raufarhöfn í vet- ur vegna deyfðar, sem komið hefur í allan rekstur Kaupfé- lags Raufarhafnar. 50 — 60 manns hafa verið á atvinnu- Ieysisskrá í allan vetur, en í vor fór nokkuð að rætast úr, þó að enn muni vera nokkurt atvinnuleysi á staðnum. — Björgun danska flutninga- skipsins Hans Sif og farms bess og grásleppuveiðin bætti nokkuð úr atvinnuleysinu. Það, sem mestu veldur um atvinnuleysið, er, að frysti- húsið, sem er í eigu kaupfé- Iagsins, brann í vetur. Ekkert hefur verið gert til þess að endurbyggja það. Mönnum ber ekki alveg saman um það, hvers vegna ekkert hefur verið gert til þess að endurbyggja frystihúsið, sem er einn aðalvinnugjafinn á veturna. Ljóst er þó, að nær ekkert tryggingarfé hefur fengizt fyrir húsið. Það var tryggt hjá Bruna- bótafélagi Islands, en innbúið hjá Samvinnutryggingum. Frystihúsið var upphaflega rek- ið af hlutafélaginu Frosti h.f., sem kaupfélagið, hreppurinn og nokkrir einstaklingar stóðu að. Fyrir nokkrum árum keypti kaupfélagið allt hlutaféö, en rak frystihúsið áfram sem hlutafé- lag. Þegar húsið brann kom á dag- inn, að kaupfélagiö hafði ekki greitt Samvinnutryggingum tryggingariðjald í nokkur ár og átti því ekki með réttu tilkall til tryggingarfjárins. Var því ekki um það að ræöa að fá það greitt, nema greidd væru þau iðgjöld, sem frystihúsið og kaupfélagiö sjálft skulduðu Samvinnutryggingum, en sú upphæð slagar hátt upp í trygg- ingarupphæðina. Tryggingarféð frá Brunabótafélaginu fór að 10. síða Annasamt h já íþróttamönnum Norðurlandameistaramót, leikir i /., 2. og 3. deild, fyrsta marabonhlaupið á Islandi Helgin var ein sú annasam- asta sem um getur í sögu ísl. íþróttamála. Norðurlandameist- aramót í tugþraut, fimmtarþraut og maraþonhlaupi ber þar hæst, en keppni þessari lauk á laugar- dag Maraþonhlaupið vakti mikla athygli, en hlaupið var af Laug- ardalsvelli suður fyrir Straums- vík og til baka. Ilvarvetna, sem hlaupararnir fóru um, hafði saftt azt sainan mikill mannfjöldi til aö virða hlaupagikkina fyrir sér og fylgjast meö hlaupinu. Þá fóru fram þrír leikir í 1. deild um helgina. I Reykjavík léku Valur — ÍBA, í Vestmannaeyjum ÍBV og KR, og í Keflavík lék IBK og Fram. Þá voru leiknir margir leikir í 2. og 3. deild. M.a. léku Akranes og Breiðablik í gærkvöldi, og sigruðu Akurnesingar með 8 mörkum gegn einu. Þá fóru fram nokkrir leikir í útihand- knattleiksmótinu við Melaskól- ann. I kvöld hefst í Reykjavik Norðurlandameistaramót ungl- inga í knattspyrnu, og verður í kvöld leikið bæöi í Laugardal og í Keflavik. Islendingar mæta Finnum hér í Revkjavík, en suð urfrá leika Svíar og Danir. Golfmeistaramót íslands hefst í dag í Vestmannaeyjum. Og þar sem svo mikið er um að vera í íþróttaheiminum, er opna af í- þróttafréttum I VÍSI í dag, bls. 2 og 3. síldarfarm- urinn lofar góðu wmzm Frá maraþonhlaupinu. Hér sjást norsku keppendurnir í maraþonhlaupinu fá sér hressingu, en Megnið af sildarflotanum er nú uð lesta farmur, sem mun vera 1 hlaupararnir fengu að drekka og annað smávegis á vissum fresti allt hlaupið út. Myndin er tekin , „ .. rúmar hálfrar milljón króna virði. á Reykjanesbrautinni. siglingu norð-austur á miðin við ^'arnarey, en þangað er meira en J •legja sólarhringa sigling. — Veiði-; '■•orfur eru góðar á svæðinu og! >ngu nokkur skip góðan afla tyrir °'iíina. Heimir frá Stöðvarfirði landaði yrstu síldinni á þessu sumri í •eimahöfn sinni og var síldin t.ekin bræðslu hjá síldarverksmiðjunni 'Oixu. Var það falleg síld, um 35 m löng og fitumagn hennar um 'l0%. Mun það vera söltunarhæf íld, ef hún kemst fersk til verk- unar. — Myndin er tekin við vrstu síldarlöndunina á Stöðvar- irði á miðvikudaginn F;ö(>ur hundr Mesta umferðarhelgi sumarsins Umferðin Id mest til Þingvalla og Lougnrvatns H — Þetta er einhver mesta ferðahelgi sumarsins til þessa og sú langmesta eftir H-breytinguna, sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn umferðardeildar lögreglunnar, í samtali við VÍSl í morgun. H - Upp úr hádeginu í gær töldu lögregluþjónar um 280 bíla á 15 mínútum, sem lögðu leið sína út úr bænum, svo af því má nokkuð sjá, hve mikil umferðin hefur verið. Umferðin gekk óhappalaust á því svæði, sem umferðardeildin hafði til eftirlits, og án nokkurra teljandi tafa. Þó myndaðist löng röð bifreiða á Vesturlandsveg- inum í gærkvöldi, þegar fólk tók að streyma til bæjarins aftur ut- an af þjóðvegunum. Þrengslin við Elliðaárbrýrnar áttu þar mesta sök á, en eitt- hvað munu þó stangarveiðimenn irnir i ánum hafa dregið athygli ökumannanna til sín. Bílalestin mjakaðist óþolandi hægt niður Ártúnsbrekkuna og sumir voru 20 mínútur á leiðinni frá Grafar- holti niður í bæ. Þeir, sem komu af Bæjarhálsinum, hefðu þó lík- lega ekki kornizt í bæinn fyrr en seint í nótt, ef ekki hefði lög- reglan verið þarna nærstödd til þess að greiða fyrir umferðinni. Jón Guðmundsson, yfirlög- regluþjónn á Selfossi, kvað tölu- verða umferð hafa legið austur um helgina, en þó ekki meiri en oft er um helgar. Fátt varð um óhöpp utan eitt, sem varð sunn- an undir Miðfelli í Þingvalla- sveit, þegar tveir bílar á suður- leið stönzuðu á veginum, en sá þriðji rakst aftan á þá. Varð það allharður árekstur og högg- ið svo mikið, að bíllinn i miðj- unni kastaðist einnig aftan á þann fremsta. Skemmdir urðu miklar á bílunum, en engin meiðsli á fólki. ))!>-> 10. síða

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.