Vísir - 27.07.1968, Blaðsíða 1
Crfitt að slíta sig frá leiklistinni
að hjá sjónvarpinu frá stofnun
þess. Einnig er hann öllum lands-
mönnum að góðu kunnur sem einn
okkar fremsti leikarl.
Hvernig fannst þér að starfa hjá
sjónvarpinu?
Það hefur verið reglulega ánægju
legt og mjög gaman að starfa þar.
Telurðu að þú munir sakna starfs
ins hjá sjónvarpinu?
Já, ég mun áreiðanlega gera það,
en þrátt fyrir allt hlakka ég mjög
mikið að koma aftur til minna góðu
vina hjá Leikfélaginu, Það má segja
aö hugur minn snúist það mikið um
leiklist, að erfitt sé að slíta sig
burtu frá henni.
Varstu ekki erlendis fyrir
skömmu?
Jú, ég fór utan til að kaupa sjón
varpsefni fyrir veturinn, sem síðan
verður lagt fyrir Útvarpsráð til
samþykktar. Annars hætti ég ekki
að vinna hjá sjónvarpinu fyrr en
1. október.
Hvernig hefur þú eytt sumarleyf-
inu að öðru leyti, Steindór?
Ég fór með Leikfélaginu f leik-
för um landið og sýndum við
„Koppalogn" og hafði ég mjög gam
an af þeirri ferð,
Við þökkum Steindóri fyrir
rabbið og óskum honum alls góðs
á leiklistarbrautinni í framtfðinni.
— segir Steindór Hj'órleifsson, sem hefur
sagt upp hjá sjónvarpinu
58. &
— Lauearda
úlí 196
27
- 165. tbl.
„Ástæöan er, aö þegar faiazt
eftir mér í þetta starf hjá
sjónvarp'nu fyrir þremur árum, var
ég oröinn fastráðinn leikari hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, en fékk
mlg lausan gegn því aö koma
sem fyrst aftur“, sagöi Steindór
Kjörleifsson er Vísir innti hann eft
ir orsökinni að uppsögn hans hjá
sjónvarpinu nýlega.
Hann hefur stjórnað lista- og
skemmtideild sjónvarpsins og starf
Sementssalan minnkar um 15-20 þús-
und lestir á þessu ári
— segir dr. Jón Vestdal, forstjóri Sementsverksmióju rikisins — Full-
kominn losunarútbúnaður i Artúnshöfða — Losun fer fram algjörlega
án bess að ryk myndist
Fyrirsjáanlegt er að sem-
entssalan á þessu ári verður
um 15 — 20 þús. lestum minni
en á síðasta ári, sagði dr.
Jón Vestdal, forstjóri Sem-
entsverksmiðju rfkisins. Ef
bornar eru saman tölur um
sementssölu til annarra fram-
kvæmda en við Búrfell og f
Straumsvík kemur f ljós,
að fyrstu 7 mánuði ársins f
fyrra voru þessar töiur 59.365
ton. en á þessu ári aðeins
44.300 tonn.
Við gétum ekki dregið úr af-
köstum verksmiðjunnar. Annað
hvort er að halda áfram eins og
verið hefur, eða að stöðva verk-
smiðjuna algjörlega. Við höfum
nægilegt geymslurými eins og
er. Þess ber að gæta, að á fyrstu
sjö mánuðum þessa árs er sala
semenls til Búrfellsframkvæmda
og Straumsvíkurframkvæmda
17.800 lestir.
Dr. Jón Vestdal skýrði blaða
manni Visis frá afgreiðslu sem-
ents í hinum nýju bækistöðvum
verksmiðjunnar í Ártúnshöfða.
Þar eru tveir 34 metra háir
geymar, sem taka um 4000 lest
ir af lausu sementi hvor. Ferj-
an, sem annazt hefur fiutninga
á sementi .til Reykjavíkur frá
því að verksmiöjan tók fyrst til
starfa, fer eina ferð á dag að
jafnaði, en tvær ferðir, er mesti
annatíminn er. Getur ferjan
flutt um 400 tonn f hverri ferð,
240 lestir af lausu sementi, og
afganginn í umbúðum. Lausa
sementið er selt til stærri að-
ila, svo sem Straumsvíkurfram
kvæmda, Búrfellsframkvæmda,
steypustöðvanna i Reykjavfk og
nokkurra annarra aðila, en pakk
að sement til annarra aðila.
Mikil sjálfvirkni er við losun
sementsins f Ártúnshöfða, og
blaðamaður komst að raun um
það, að sú vinna fer fram al-
'gjörlega án þess, ' að nokkurt
ryk myndist af þeirri vinnu, Nán
ar verður sagt frá heimsókninni
í Ártúnshöfða í blaðinu eftir
helgina.
Samning Austurlandsáætlunar hafin
Bergur Sigurbj'órnsson starfar að gerð hennar — Lokið mannfj'óldak'ónnun i Norðurlandsáætlun
Hafin er gerð almennrar fram-
kvæmdaáætlunar fyrir Austur-
land, og hefur Bergur Sigur-
bjömsson, viðskiptafræðingur,
byrjað störf í því skyni. Þetta
kemur m. a. fram í viðtali við
Unnar Stefánsson, framkvæmda
stjóra Sameiningarnefndar sveit
arfélaga, sem birtist í blaðinu í
dag. Bergur Sigurbjörnsson hef-
ur nýlega verið ráðinn fastur
starfsmaður Sambands sveitar-
félaga í Austurlandskjördæmi.
Framkvæmdaáætlunin verður
unnin í samvinnu við Efna-
hagsstofnunina og lögð fyrir
hana tii endanlegrar vinnslu.
Vísir í
vikulokin
fylgir blaðinu i dag
til áskrifenda
Einnig verður unnið aö áætlun I s?m þau óska, við að gera fram-1 göngumálaáætíun fyrir Austurland
um uppbyggingu atvinnulífs á kvæmdaáætlanir fyrir þau sjálf. | er mun verða lokið í haust. Raf-
Austurlandi og aðstoð til ein- Fyrsta verkefni Bergs Sigur- magnsmálin eru eitt stærsta á-
stakra sveitarfélaga eftir þvf l björnssonar verður að semja sam-1 íC. stða
14 tonna bátur
fékk 70 tonn
í einu kasti
— kastið fyllti jbr/á
báta af ufsa
Raufarhafnarbúar uröu vitni
að óvenjulegum fiskmokstri
rétt utan við landsteinana í
gær, en þar fyllti eitt kast
þrjá báta af ufsa. Gizfcað er á
að þetta stóra kast hafi verið
um 70 tonn og er það engu
minna en sæmilegasta síldar-
kast, en þama eru á veiðum
litlir dekkbátar með mörgum
sinnu-n minni nætur en sfld-
arskipin.
Það mun hafa verið mótorbát
urinn Níels Jönsson EA 106,
frá Hauganesi sem lenti i þess
ari óvenjulegu ufsatorfu með
nótina en hann er aðeins 14
lestir að stærð. — Dreif þar að
fleiri báta og voru þrír fylltir
á skömmum tíma. Síðan var
hamazt fram á kvöld við aðgerð
um borð í bátunum.
Þessi mikli fengur er mönn-
um þó ekki svo mikið happ,
sem skyldi, vegna þess að ufsi
er nú orðinn illseljanleg vara á
srlendum mörkuðum og frysti
húsin taka ekki á móti honum.
Ufsii.n, sem veiddist á þessum
slóðum er fremur smár og ó-
drjúgur í vinnslu, — Munu sjó-
m->- 10. síða.
Ibúðaverð hefur staðið í stað
síðan í fyrra
— útborganir lækkað, brótt fyrir aukinn bygging-
arkostnað. Minna að gera á fasteignamarkaðinum
íbúðaverð á fasteigna-
markaðinum hefur lækkað
frá því í fyrra fremur en
hækkað, þrátt fyrir verð-
hækkanir á þessu tímabili
af völdum gengislækkun-
arinnar m. a. og aukinn
byggingarkostnað. Sérstak
lega hafa útborganir lækk-
að og eru þær í mörgum
tilfeflum 20—30% lægri. en
þær voru í fyrravor. —
Undantekningar eru að
sjálfsögðu margar frá
þessu og fer verðið nokkuð
eftir íbúðahverfum.
Lítil sala hefur verið i ibúðum
á frjálsum markaði í vor og‘i
sumar og er framboðið umfram
eftirspurn.
Þrátt fyrir þessa lækkun á út-
borgunum þýðir ekki fyrir fólk
ao leggja í íbúðakaup með minna
en 4 — 500 þús. Er þá miðað við
nýlegar íbúðir f fjölbýlishúsum.
Segja fasteignasalar, að mikið
af því fólki, sem er í íbúðaleit
bjóði 1 — 300 þúsuiul kr. útborg-
un, en fyrir svo litla útborgun
fáist aðeins kjallaraíbúðir og svo
eldri íbúðir, risíbúðir o. s. frv.
Virðist kaupgéta fólks hafa
minnkaC nokkuð og haft áhrif á
markaðsverð íbúða. Ennfremur
hafa hinar miklu íbúðabyggingar
að undanförnu skapað aukið fram-
boð á fasteignamarkaðinum og meö
al annars byggingar Framkvæmda-
nefndar byggingaáætlunar.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Vísir hefur aflað sér að undan-
förnu er verð á góðum ibúðum í
nýju hverfunum sem hér segir á
frjálsum markaði:
10. síða.