Vísir - 29.07.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 29.07.1968, Blaðsíða 1
VISIR Sofnaöi út frá rafmagnsofni Slökkviliðiö í Reykjavík var í gærkveldi kvatt að Hrafnistu,' Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Þar hafði myndazt mikill reykur f herbergi eins vistmannsins. Vist- maðurinn hafði sofnað út frá raf- magnsofni, og viö það hafði reyk- urinn myndazt. Litlar sem engar skemmdir urðu, og manninn sak- aði ekki. Til öryggis var vistmað- urinn fluttur á slysavarðstofuna. Mörg verkefni framundan við jarðboranir Mörg verkefni eru í gangi hjá jaröborunardeild ríkisins, samkvæmt upplýsingum Isleifs Jónssonar, verkfræðings deild- arinnar, er Vísir hafði samband við hann í morgun. í fyrsta lagi er borað fvrir | Hitaveituna í Reykjavík með | gufubornum. Síðari hluta júní I mánaðar var lokið við hoiu 1 Blesugróf og fengust þar 50 lítr ar á sekúndu af 105 — 115 stiga heitu vatni: Kostnaður við þá borun var um 70—80 kr. á dag. Þá er hafin borun við Náma fjall fyrir .afstöðina þar á staðn um. Einnig er unnið við að rann saka jarðhitasvæði á Reykjanesi, en það er ,gert vegna fyrirhug- aðrar sjóefnavinnslu þar. Enn- fremur er áætlað að bora eftir heitu og köldu vatni fyrir sum- ardvalarheimili, sem á að rísa í Krísuvík. Svo að fariö sé út á landsbyggð ina þá sagði Isleifur, að til máia kæmi aö bora á Dalvík og á fleiri stöðum nyrðra, en það væri ekki enn ákveðið hvenær þær boranir hæfust. Má því segja, að jarðboranir hafi næg verkefni og árangur hefur hing að til verið góður. HELZTU SKURÐLÆKNAR LAND- SPÍTALANS FARA Á SÍLDARMIÐIN — Varðskip á miðin með lækni og viðgerðarmenn — Samið við Rússa Norðmenn og Þjóðverja um sameiginlega þjónustu Það verða ekki neinir viðvaningar, sem veita ís- lenzku síldarsjómönnunum læknisþjónustu á miðun- um næstu vikurnar. — Næstu vikumar mun Hannes Finnbogason, sérfræðingur í skurðlækningum starfa um borð í varðskipinu Ægi, sem heldur á miðin ein- bvem næsta daginn. Og síðan mun Snorri Hallgríms- son, yfirlæknir taka við af Hannesi og verða fram í september. — Það er ekki svo auðvelt að grípa vana lækna til slíkra starfa, sagði dr. Snorri, þegar Vísir hringdi til hans í morgun. Læknar handlækningadeildar Landspítalans voru beðnir um að skipuleggja þessa hluti fyrir mkkru og það varð úr að Hann- es fórnaði sumarleyfi sinu í þetta og ég færi svo á eftir ef síldin verður þá ekki komin upp að sagði dr. Snorri. Snórri sagði allgóða aðstöðu vera um borð í skipunum og góð tæki. Þar væri hægt að fram- einn vanur læknir gæti fram- kvæmt, en hann hefur að sjálf- sögðu enga aðstoðarmenn til svæfinga og annars slíks. Slík þjónusta við síldarflotann hefur verið á döfinni lengi og nauð- syn liennar þótti koma áþreifan- lega 1 ljós í fyrrasumar. Yfir 60 skip eru nú á síldarmiðunum og um borð í þeim upp undir þúsund manns. Um borð í Ægi verða ennfremur tveir sérfræðingar til tækjaviðgeröa fyrir flotann. Vísir hafði ennfremur samband 10. síða GÓÐ SÍLDVEIÐI UM HELGINA * Síldveiöi var góð um helgina og Forsetinn flytur eftir 16 ára búskap Forseti íslands, herra Ás- geir Ásgeirsson, er um bessar mundir að flytja frá forseta- setrinu að Bessastöðum. Þar hefur hann búið af rausnar- skap síðustu 16 árin. i vik- unni fiytur dr. Kristján Eld- jám og kona hans ásamt börn um sínum að Bessastöðum sem hinn nýi forseti lands- ms. Herra Ásgeir Ásgeirsson kvæma allar þær aðgerðir, sem , fengu þrettán skip afla á laugardag r r r m — — — — — * 1 ‘nn- —í Sær tók heldur að bræla og uröu skipin að hætt að landa í flutningaskipiö Nordgaard seinni partinn í gær, en vitað var um sex skip með afla. Þrjú skip voru á'leiö til lands í gær, Eldborg með 380 lestir, Nátt- fari með 150 og Sóley með um 200 lestir. Mun Eldborg verða búin út til söltunar, áður en hún heldur á miöin aftur, en þar um borð er mjög góð aðstað;. fyrir söltun, ætti að vera hægt að hafa heilt síldar- plan á millidekki skipsins. Fyrsta síldin barst til Vopnafjarö ar í gær, Kristján Valgeir kom þangað meö 280 lestir í bræðslu, ennfremur kom Baldur til Rauf- arhafnar um helgina meö 80 lestir. Annars landa flest skipanna í flutn ingaskipin. Haförninn er nú leiö á miðin og fiytur hann 600 tonn af neyzluvatni til skipanna. Síldin e> á leið til lands, en Nordgaard lestar á miðunum. Söltunarskipið Elisabeth Hentzer nú á Raufarhöfn og er búizt við aö það fari morgun. i annan leiðangur sinn á 7 metra lerki ris í Laugardal Undirbúningi landbúnaðar- , sýningarnar i Laugardal miðar | vel áfram. Meðan margra athygl isveröra nýjunga verða á sýnlng unni tré, Ierki frá Hallorms- stað, allt að 7 metrar á hæð. Sér stakir reitir verða fyrir ýmsar gras-.tgundir, sem sáð hefur ver ið, og a'írir fyrir kartöflur, róf- ur, hafra og fóðurkál. Sturla Friðriksson, erfðafræðingur, á einnig ýmsar tegundir, sem hann hefur ræktað sérstaklega, og merkilegar munu teljast. Gripahús eru komin upp. Verða veitt verðlaun, ails 600 þúsund krónur, fyrir beztu gripina. Þá er prentun sýningar skrár lokið, og er það 265 síðna rit. Sýningin verður opnuð hinn 9. ágúst. Mikill áhugi mun vera úti á landsbyggðinni, og algengt, að hópferðir verði farnar á sýn- inguna. Konur munu fara með körium sínum, ef sláttur hindr- ar ekki förina. Heildarkostnaður sýningarinnar er áætlaður 7V?. milljón króna, og er búizt við um 60 þúsund gestum. s Minni halli á vöru- skiptajöfnuði í júní sagöi í viðtali við Vísi í morg un að hann væri nú fluttur til sonar síns, Þórhalls Ás- geirssonar, ráðuneytisstjóra, en hann býr ásamt fjölskyldu sinni að Einimel 6. Forsetinn kvaðst vera að ljúka flutningi og mundi hann búa hjá syni sínum þar til íbúð hans við Aragötu í Reykjavík verður laus, en þýzka sendiráðið hef ur haft hana á leigu undan- farin ár. • Minni hal’.i varð á vöruskipta- jöfnuöi fyrir júnímánuð síðast . li'Jinn en á sarna tíma i fyrra. Hefur ; i "lutningur þennan mánuö verið | minni nú og útflutningur meiri. Hallinn nemur þó um 715,8 milljón- um króna þennan mánuð. Sam- | kvæmt fréttaiilkynningu Hagstof- u:mar hefur útflutningur í júni numið um 319,7 milli., en innfiutn- ingur 1.035,0 millj. Á sama tn..a í fyrra nam út- flutningurinn 266,3 millj., en inn- fiutningur 1.151,9 millj. Þá var haliinn 885,6 milljónir króna. Þess ber að ^ :a, að í ár var mun minna flutt inn at' skipum og flugvélum en i fvrra, eða skip fyrir 174,5 millj. og flugvélar 133,0 millj. á m-*- 10. síöu. r Aframhaldmidi góðviðri Útlit er fyrir áframhaldandi rign- ingu sunnanlands eða frá Suðvest- uriandinu aö Vestfjörðum. Gert er ráð fyrir smáskúrum í dag en vax- andi rigningu á morgun. Sunnanátt er um allt land og annars staðar á landinu þurrt og hlýtt. Hitinn í gær var yfirleitt frá 16 — 19 stig og sólskin á köflum á Norður- og Austurlandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.