Alþýðublaðið - 16.09.1966, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 16.09.1966, Blaðsíða 7
’ía Viðtal við Olaf Ingólfsson, stud. mag. í JÚLÍ síðastliðnum dvaldi hópur 'íslendinga á norrænu móti, sem haldið var á Útey í Noregi. Hér fer á eftir viðtal við Ólaf Ingólfsson, stud. mag., sem var fararstjóri þeirra félaga. — Hvar í Noregi er Útey? — Þessi eyja er í vatni, sem heitir Tyrifjorden og er í um 40 km. fjarlægð frá Oslo. Eyjuna á Samband ungra jafnaðarmanna í Noregi. — Hverjir sóttu mótið og hver var tilgangur þess? — SUJ í Noregi (AUF) ásamt ungu fólki úr verkalýðshreyfing- unni stofnaði til þessa móts og sá um það. Þangað var komið .ungt fólk úr jafnaðarmannafélög- um frá öllum Norðurlöndunum, alls um 800 manns. Auk þess voru gestir frá Póllandi, Indlandi, Júgóslavíu, Yestur-Þýzkalandi og Dóminíska lýðveldinu. Tiigangur mótsins var aðallega sá, að þarna kæmi saman sem flest ungt fólk frá hinum ýmsu þjóðum, til þess að það gæti kynnzt, skipzt á skoð- unum og lært hvað af öðru bæði um land og þjóð og um starfsemi félaganna og flokkanna. Þarna voru éinnig haldin pólitísk nám- skeið og ýmsir merkir menn fengnir til að halda fyrirlestra m. a. Daninn Jan Hækkerup, sem er framkvæmdastjóri Alþjóðasam- bands ungra jafnaðarmanna (IU- SY) og Iteiulf Steen. varaformað- ur norska verkamannaflokksins. — Hvernig er umhorfs á eynni, Ólafur Ingólfsson og hvernig var fyrirkomulag mótsins? — Þessi cyja er 10.2 ha. að stærð og að miklu leyti vaxin skógi. Þar eru samt nokkur stór í jóður og svæði til íþróttaiðkana. Mótið var sett að kvöldi 13. júlí, en þann dag og daginn áður var fólk að streyma til eyjarinn- ar og koma sér fyrir. Við íslendingarnir lögðum af stað með flugvél frá Reykjavík um morguninn 12. júlí og flug- um fyrst til Bergen með viðkomu í Færeyjum. í Bergen þurftum við að bíða 4 klst., en ekki þótti okkur það neitt verra, því að þar með gafst okkur tækifæri til að skoða örlítið þessa merkilegu borg. Síðan flugum við til Osló og þar tóku á móti okkur Arvid Jacobsen, ritari AUF, — og fleiri. Þeir óku okkur til vatnsins þar sem ferja beið. Okkur voru lánuð tjöld og viðleguútbúnaður, en annars höfðu flestir slíkt með sér enda skemmra að komnir. Þarna á eynni var komið á fót ýmsum stofnunum, þarna var verzlun þar sem fengust matur og nýlenduvörur, þarna var póst- hús, sjúkrahús, hátalarakerfi um alla eyna, skrifstofur, eldhús, samkomusalur og þrjá fyrstu dag- ana var meira að segja útibú frá Arbeiternes Landsbank. Um kvöldið 13. júlí var svo mótið sett. Formaður AUF, Ola Teigen, bauð gesti velkomna og opnunarræðuna hélt formaður Norska verkamannaflokksins, Tryggve Bratteli. Síðan gekk mótið í stuttu máli þannig fyrir sig: Á daginn var lítið skipulagt sérstakt, nema þegar námskeiðin voru, eö þau fóru fram um hádegisléytið. Á hverju kvoldi var kvöidvaka. Þá komu vfram ýmsir • þekktir j skemmtikraftar, mest söngfólk. I Annars , skemmtu þátttakendur hinna ýmsu þjóða með söng og dansi o. fl. Eftir kvöldvökuna var stiginn dans til kl. há-lf eitt. Að dansinum loknum var oftast varð- eldur. Þær stundir eru mér einna eftirminnilégastar. Þá var sam- söngur og leikið undir á gítar, eða þá að nokkrar manneskjur sungu og spiluðu. Stundum voru haldnar stuttar ræður, þar á með- ■ ■ Jan Hækkerup fr.kv.stj. Alþjóðasambands ungra jaf naðarmanna og Peter Berk, ritari SUJ í Danmörku al talaði Ingvar Carlson, yngsti þingmaður Svía. Á daginn var hægt að gera sér margt til skemmtunar. Flesta dagana var sérstaklega gott veð- ur, jafnvel stundum í það heit- asta, t. d. einn daginn var 28 stiga hiti og nær alltaf logn. En við hitanum var það einfalda ráð tekið að stinga sér í vatnið og synda, enda var það mjög iðkað. Tjaldbúðunum var skipt niður í átta bæi. Hver bær kaus sér stjórn. Bæirnir kepptu svo sín í milli í íþróttum, svo sem knatt- spyrnu og blaki, og eins voru kappleikir þjóða í millum. Sam- göngur við eyna voru með ferju á klukkutíma fresti á : daginn, og eins áætlunarbílar til Osló og til Hönefoss, en það er litill, mjög vinalegur bær — í um 26 km. fjarlægð frá Útey. Á liverjum degi voru hengd upp blöð þar sem tilkynntir voru helztu dagskrárliðir hvern dag. Einnig kom nokkrum sinnum út blað, „Utöya posten" og var það borið um allt. Eitt sinn voru boð- aðar kosningar eftir nokkra daga og vissu fáir hvað væri á seyði. Kvöldið áður en þær skyldu fara ijram héldu / írambjóðendur tveggja flokka ræður af mikilli mælsku og furðulegustu mál voru á stefnuskránni. Flokkarnir nefndust Romantiske Radikale Venstre og Det Sexualdemokrat- iske Parti. Kosningadaginn var mikið líf í tuskunum og baráttan hörð. Stefnuskrárnar og framboðs listarnir komu og var dreift um allt. Um kvöldið var kosið og var mikill spenningur og tvísýnt um úrslit. Fór svo að Romantiske Radi- kale Venstre hlutu nauman meiri- hluta og skyldu þeir mynda stjórn. Ekki vildu hinir una við þetta. Næsta morgun þegar mer.n vökn- uðu stóðu menn á öllum mikil- vægum stöðum með vatnsbyssur og loftriffla í höndum. Bylting hafði verið gerð og kúgurunum steypt. í staðinn fyrir Utöya post- en kom nú út Revolusjons Tid- ende, sem birti fréttir af bylting- unni og kynnti leiðtogann Leo Folkowitz og aðra í ráðinu, m. a. sex eða sjö varaforseta. Þetta var eitt af mörgum up.p- átækjum, sem fólk hafði sér til skemmtunar. — Hvers finnst þér þú hafa orðið vísari af kynningu við fólk- ið? — Vitaskuld fór ekki allur tíminn í skemmtanir. Það sem mér finnst ekki livað minnst verðmætt var sú kynning og þekk ing á lífi og starfi fólksins, sem fékkst af viðtölum við einstakl- inga. Við eyddum þannig mikl- um tíma í að tala við fólk up starfsemi og skipulag félaganna svo að dæmi sé nefnt. Unghreyf- ingin hér á landi er í tveimur stigum, þ.e.a.s. FUJ á hinum ýmsu stöðum og svo aftur Sam- band ungra jafnaðarmanna. Éíi t. d. í Svíþjóð er hreyfingin ,;í þremur stigum. Minnstu einifíg- arnar eru aðeins klúbbar með 60 —70 félaga, síðan koma heildir, sem fara eftir landssvæðum, t- d. ein borg. Síðast eru landssám- tökin SSU. Félagslífið er mjög fjöi’ugt og samkomur í klúbbunum eru reglu- legar. Á þessum samkomum g*er- ist hvort tveggja að fólk skemmtir sér og á hinn bóginn fer fram kennsla í fundarstörfum ^ Q.g stjórnmálum. Haldnir^ eru um- ræðufundir og rætt um jafnt utan sem innanríkismál. Mér finjast unga íólkið á hinum Norðuriönd- unum láta sig meira varða það Framhald á bls.íLO. 16. september 1966 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.