Bókasafnið - 01.11.1985, Blaðsíða 9

Bókasafnið - 01.11.1985, Blaðsíða 9
Bókasöfn í nýju húsnæði Bjamastofa og Héraðsskjalasafh Siglufjarðar Þann 18. ágústs.l. var brotið blað í menningarsögu Siglufjarðar, er tekin var í notkun minningarstofa sr. Bjarna Þorsteinssonar tón- skálds og fræðimanns og tónlist- ardcild tengd nafni hans. Einnig var Héraðsskjalasafn Sigluíjarðar opnað almenningi. Að lokinni athöfn við leiði sr. Bjarna og konu hans kom á annað hundrað manns saman í Bókasafni Siglufjarðar. Halldóra Jónsdóttir formaður bókasafnsstjórnar setti samkomuna og skýrði tilefni hennar í fáeinum orðum. Óli J. Blöndal rakti feril sr. Bjarna og lýsti síðan yfir, að minningar- stofan og tónlistardeildin skyldu bera nafnið Bjarnastofa skv. sam- þykkt bókasafnsstjórnar. Þar næst tók til máls bókafulltrúi ríkisins, Kristín Pétursdóttir, og færði bókasafninu gjafir frá ýmsum aðilum í Reykjavík. Bæjarstjór- inn, Óttarr Proppé, lýsti aðdrag- anda þess, að Bjarnastofa varð til og lýsti því næst yfir, að Bjarna- stofa og Héraðsskjalasafnið væru opnuð almenningi. Þá tóku til máls tveir afkomendur sr. Bjarna og létu í ljós þakklæti til þeirra, sem staðið hefðu að þessari framkvæmd. Siglfirskir listamenn sungu og léku á hljóðfæri lög eftir sr. Bjarna á milli ræðuhalda. Að athöfninni lokinni var öllum bæjarbúum boðið til kaffidrykkju á Hótel Höfn. Aðdragandi að stofnun Bjarna- stofu og skjalasafnsins er í stuttu máli á þá leið, að árið 1977 ritaði bókasafnsstjórn bréf til Bæjar- stjórnar Siglufjarðar og óskaði eftir viðbótarhúsnæði fyrir minn- ingarstofu sr. Bjarna og skjala- safn. Varð bæjarstjórnin fúslega við þessari beiðni, og var helm- ingur af annarri hæð ráðlnissins látinn í té í þcssu augnamiði. Þegar þessum áfanga var náð, var Helgi Hafliðason arkitekt beð- inn að teikna þær breytingar, sem gera varð á húsnæðinu. Síðan hófst peningasöfnun til að fjár- magna þessar framkvæmdir. Var farið í ýmsar stofnanir og fyrir- tæki, og voru undirtektir yfirleitt góðar. I júní 1982 var svo hafist handa fyrir alvöru. Skv. fram- kvæmdaáætlun átti að ljúka verk- inu á tveimur árum, og stóðst lnin fullkomlega. Meðan á þessum fram- kvæmdum stóð var mér sem for- stöðumanni bókasafnsins falið að nálgast muni sr. Bjarna, svo sem orgel, skrifborð og önnur húsgögn, helgisiðabækur, myndir, nótur o.fi. Gekk það greiðlega, og voru aðstandendur sr. Bjarna mjög hjálplegir við þessa söfnun. Við sem að þessum framkvæmdum stóðum erum að vonum ánægðir með, hversu vel hefur tekist. Markmiðið með þeim er fyrst og fremst að sýna helsta leiðtoga okkar Siglfirðinga í andlegum sem veraldlegum efnum virðingu og þökk fyrir ómetanleg störf fyrir bæjarfélagið og alþjóð. Með tilkomu Héraðsskjala- safnsins er leyst úr miklum vanda, þar sem hætta var á að glatast myndu mikil og söguleg verð- mæti þjóðinni allri til óbætanlegs tjóns. Þar á ég við síldvciðitíma- bilið, þegar allir landsmenn fylgd- ust með Siglufirði, sem var frægur fyrir síldarútgerð, enda átti þjóð- arbúið mikið undir þessum at- vinnuvegi. Við Siglfirðingar vorum lánsamir að njóta aðstoðar Frosta Jóhannssonar þjóðhátta- fræðings, sem tókst að bjarga miklum sögulegum verðmætum frá glötun, þó æskilegt hefði verið að hann hefði verið fyrr á ferðinni. Verslunarbækur, skjöl og afritun- arbækur, sem mikla sögu hafa að segja eru nú komnar fram í dags- ljósið. Skjalasafnið hefur þrjú her- bergi til umráða, og er aðstaða fyrir 6—8 manns til að vinna að verkefnum sínum. Óli J. Blöndal forstöðumaður Bókasaftis Siglufjarðar. BÓKASAFNIÐ 9

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.