Bókasafnið


Bókasafnið - 01.03.1990, Blaðsíða 10

Bókasafnið - 01.03.1990, Blaðsíða 10
Helga K. Einarsdóttir bókasafnsfræðingur, Bókasafni Kópavogs Barnabækur Yfirlit áranna 1987-1989 Einhvern tíma á árinu 1988 hafði ég orð á því að í tíma- ritinu Bókasafninu mættu gjarna birtast yfirlits- greinar yfir bókaútgáfu nýliðinna ára, bókavörðum til glöggvunar. Ritstjóri Bókasafnsins greip mig glóðvolga og bað mig að skrifa slíka grein um barnabækur síðastliðinna tveggja ára. Að sjálfsögðu gat ég ekki skorast undan því. Þetta var hins vegar bæði erfiðara og viðameira verk en ég hafði haldið, það sá ég er ég byrjaði á því, m.a. vegna þess að bókaskrá 1988 er ókomin út (í des. 1989 - innsk. ritstj.), og verður því að styðjast við aðrar heimildir, s.s. Bókatíðindi og bókakost Bókasafns Kópavogs. Allar tölur eru hér birtar með þeim fyrirvara að þeim geti skeik- að. Einnig vil ég hafa þann fyrirvara á, um mat á bókum, að þar er að sjálfsögðu aðeins um mitt mat að ræða þó að ég reyni að hafa það eins hlutlægt og mér er unnt. Ég tek einnig inn í þessa grein að nokkru leyti barnabókaútgáf- una 1989, en þar verð ég að hafa enn einn fyrirvarann; ég er ekki búin að lesa nema sumar unglingabækurnar og verða því flokkanir á þeim enn óöruggari en ella. Hins vegar þótti mér nauðsynlegt að hafa hana með til hliðsjón- ar. Hér á eftir fer listi yfir þær barnabækur síðustu ára sem ég tel allgóðar. Þær sem að mínum dómi eru í „hæsta gæðaflokki“ eru stjörnumerktar. Á þessum lista eru 32 bækur, sem ég tel allgóðar fyrir eldri börn, frá árinu 1987, 25 frá árinu 1988 og 21 bók útgefin 1989. Þær mynda- bækur fyrir litlu börnin, sem ég tel sómasamlegar, eru 19 árið 1987, 12 árið 1988 og 20 árið 1989. Nákvæmar tölur yfir heildarfjölda útgefinna barnabóka þessara ára er erfitt að finna þar sem íslensk bókaskrá fyrir árin 1988 og 1989 er ekki komin út. Árið 1987 komu út 134 bækur og bæk- lingar fyrir börn. Þar af eru 34 sögur eftir íslenska höf- unda, 30 eftir erlenda höfunda, 8 fræðibækur og 7 ljóða- bækur. Rétt er að taka fram að á listanum er einungis um sögu- bækur að ræða en ljóð og fræðibækur tek ég til meðferðar síðar í greininni. Á eftir þessum lista fara umsagnir um 2-4 bækur frá hverju ári (1987, 1988 og 1989). Ég hefði viljað hafa þær fleiri en tími og rúm leyfðu það ekki. Góðar sögur fyrir börn og unglinga (Aldur lesenda dlgreindur í sviga.) 1987 Andrés Indriðason: Stjörnustælar (10-15) Mál og menning Andrés Indriðason: Upp á æru og trú (12-16) Mál og menning Auður Haralds: Elías kemur heim (8-16) Iðunn * Berry, Liz: Er þetta ást (12-16) Iðunn * Bodelsen, Anders: Gullregn (10-14) Örn og Örlygur * Brandt, Hanne: Bláa hjólið (10-14) - léttlestrarbók - Skjald- borg * Brandt, Hanne: Linda systir mín (10-14) - léttlestrarbók - Skjaldborg Cross, Gillian: Á toppinn (12-16) Mál og menning Elmer, Martin: Ég þoli ekki mánudaga (11-15) Iðunn * Eyjólfur Guðmundsson: Vökunætur (8-12) Dyngja, 2. útg. * Fjöður hauksins hugprúða og fleiri rússnesk ævintýri (5-10) Mál og menning Græna höndin og aðrar draugasögur (8-12) Mál og menning * Guðlaug Richter: Sonur Sigurðar (12—) Mál og menning Guðmundur Ólafsson: Klukkuþjófurinn klóki (8-12) Vaka- Helgafell * Guðrún Helgadóttir: Sænginni yfir minni (10-14) Iðunn Gunnhildur Hrólfsdóttir: Sporí rétta átt (11-15) ísafold * Helga Ágústsdóttir: Og hvað með það? (14-) Iðunn Herdís Egilsdóttir: Rympa á ruslahaugnum (9-11) Iðunn * Iðunn Steinsdóttir: Olla og Pési (5-12) Almenna bókafélagið Krever, Jetty: Slysið (10-14) - léttlestrarbók - Skjaldborg * Kristín Steinsdóttir: Fransbrauð með sultu (7-12) Vaka- Helgafell * Lindgren, Astrid: Rasmus fer á flakk (7-14) Mál og menning, ný þýðing * Lindgren, Astrid: Sögur og ævintýri (5-10) Mál og menning Lofting, Hugh: Dagfmnur dýralæknir í Apalandi (6-10) Örn og Örlygur, 2. útg. MacDonald, Betty: Sigga Vigga og börnin íbænum (5-10) ísa- fold, 2,útg. Magnea frá Kleifum: Tobías, Tinna og Axel (5-10) Iðunn * Margrét E. Jónsdóttir: Skotta og vinir hennar (5-8) Mál og menning * Nöstlinger, Christine: Vinur minn Lúki (11-15) Mál og menning * Porter, Eleanor H.: Pollýanna (8—) Mál og menning, 2. útg. Sommer-Bodenburg, Angela: Litla vampýran (8-12) Nálin * Stark, Ulf: Einn úr klíkunni? (11-15) Iðunn Þorsteinn Marelsson: Siggi og félagar (9-12) Skákprent Myndabækur fyrir litlu börnin: Alex, Ben: Chebet og týndi kiðlingurinn (4-8) Salt Andersen, H.C.: Hans klaufi (5-8) Fíladelfía Andersen, H.C.: Litla hafmeyjan (5-10) Fíladelfía, 2. útg. Axelson, Sun: Sagan um sögu (5-8) Iðunn * Bergström, Gunilla: Einar Áskell og Milla (3-6) Mál og menning Balzola, Asun: Vor (2-5) ísafold Carpenter, Marcos: Carlos (5-8) Salt Civardi, Anne: Við, sem vinnum verkin (2-6) Forlagið Forsman, Erik: Jólagleði (3-6) Iðunn Fons, Benny: Dísa litla (2-5) Björk * Iðunn Steinsdóttir: Iðunn og eplin (6-9) Námsgagnastofnun * Jóhannes úr Kötlum: Saga af Suðurnesjum (5-9) Mál og menning * Milne, A.A.: Bangsímon kemst í klípu (3-6) Vaka-Helgafell, 2. útg. * Nordquist, Sven: Jólagrauturinn (4-8) Forlagið * Nordquist, Sven: Veiðiferðin (3-8) Iðunn * Ragnheiður Gestsdótdr: Sköpunin (2-8) Námsgagnastofnun 10 bókasafnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.