BOKASAFNIÐ 257-6775 / ¦v.-_ Bókagleypir ann Guðmundur á Mýrum borðar bækur, það byrjaði upp á grín, en varð svo kækur. Núorðið þá vill hann ekkert annað, alveg sama þó að það sé bannað. Hann lætur ekki nægja kafla og kafla, hann kemst ekki af með minna en heilan stafla. Hann er víða í banni á bókasöfnum, en beitir gerviskeggi og fölskum nöfnum. Hann gleypir í sig feitar framhaldssögur og fær sér inn á milli stuttar bögur. Hann telur víst að maginn muni skána í mörgum við að bíta í símaskrána. Hann segir: Pó er best að borða ljóð, en bara reyndar þau sem eru góð.