Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Bókasafn Norræna hússins árid 1969 ...

skiptist bókakosturinn nokkurn veginn jafnt í fagurbók-

menntir og fræðibækur. Langmestur hluti er lánaður út en

einnig er talsvert af handbókum. Ritin eru á öllum Norð-

urlandamálunum, dönsku, finnsku, færeysku, græn-

lensku, norsku, samísku og sænsku en lítið er af bókum á

íslensku. Rit eru yfirleitt keypt á frummálinu en einnig

eru keyptar þýðingar finnskra, færeyskra, grænlenskra og

samískra bóka á dönsku, norsku og sænsku. Reynt er að

hafa sem fjölbreyttast úrval bóka um ísland og íslensk

málefni, einkum til að þjóna erlendum gestum. Því eru

keypt ýmis rit á íslensku, og jafnvel ensku, auk flestra

þeirra rita sem út eru gefin á norrænum tungum um

ísland. íslensk skáldverk eru aðeins keypt í þýðingum á

önnur Norðurlandamál. Af fræðibókum er einkum lögð

áhersla á sögu og menningu Norðurlanda, tungumál,

bókmenntasögu, listir og þjóðfélagsmál. Það liggur í aug-

um uppi að aðeins brot af öllum þeim fjölda bóka, sem

gefnar eru út á Norðurlöndunum ár hvert, koma í bóka-

safnið. Það hefur hvorki fjármagn til að kaupa þær allar né

heldur pláss til að geyma þær. Enda er það ekki í verka^

hring safnsins. Því er ætlað að vera safn samtímabók-

mennta og geyma úrval úr bókaútgáfu norrænna þjóða

hverju sinni. Það er vandasamt verk að hafa yfirsýn yfir

allt það sem út er gefið á Norðurlöndunum og velja úr því

innan þess ramma sem þannig er settur. Bókaval er aðal-

lega í höndum bókavarða safnsins en þar hafa þeir lengst

af notið aðstoðar norrænu sendikennaranna. Það er ómet-

anlegt að geta leitað til þeirra; þeir eru hingað komnir til

að kynna tungu og menningu þjóðar sinnar, þar með

taldar nýjustu bókmenntir, og fylgjast því grannt með því

sem er að gerast í bókaútgáfu. Flestar bækur eru keyptar

beint frá bóksölum og sér einn bóksali í hverju landi um

að útvega bækurnar. Nokkuð er um bókagjafir. Flokkun,

skráning og annar frágangur fer fram í safninu. Árið 1991

var fjárveiting til bókakaupa um 1.5 milljónir króna.

I upphafi var gert ráð fyrir að fjöldi binda í safninu yrði

ekki meiri en 15.000 bindi en nú er hann nærri helmingi

meiri. Húsnæðið leyfir varla þann fjölda og er því byrjað

að grisja bókakostinn. Fyrir um þremur árum var efnt til

bóksölu um eina helgi og seldar barnabækur, skáldrit og

nokkurt magn fræðibóka, bækur sem lítið eða ekki höfðu

verið lánaðar út s.l. 5 ár, auk tvítaka. Ágóðanum var varið

til þess að kaupa handbækur um ísland. Þetta tiltæki

mæltist almennt vel fyrir og stendur til að endurtaka það

fljótlega og síðan eftir þörfum, a.m.k. meðan ekki er til

geymslusafn hér á landi. Safnið er áskrifandi að tæplega

200 norrænum tímaritum um hin margvíslegustu efni og

eru þau til útláns að undanskildu nýjasta heftinu hverju

sinni. Dagblöð frá öllum Norðurlöndunum berast dag-

lega með flugpósti og liggja frammi í kaffistofu hússins.

Mikil eftirspurn er eftir gömlum dagblöðum og má segja

að sjaldan þurfi að henda þeim. Algengt er að kennarar í

norrænum málum fái þau til notkunar í kennslu og þau

eru send til bókasafna og einstaklinga úti á landi.

Deildaskipting bókasafnsins

Þó að húsnæði safnsins bjóði ekki upp á deildaskipt-

ingu má segja að þrjár sérdeildir séu í því; tónlistardeild,

listlánadeild og deild efnis frá hinum svokölluðu jaðar-

svæðum.

Tónlistardeild

Fljótlega var byrjað að lána út hljómplötur í safninu en

á 10 ára afmæli hússins árið 1978 var keypt mikið safn bóka

um tónlist og nótna eftir norræn tónskáld. Þá var öllu

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76