Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Óskar Guðjónsson forstöðumaður,

Almenningsbókasafninu á Keflavíkurflugvelli

Almenningsbókasafnið (Naval Air

Station Library) á Keflavíkurflugvelli

Margir lesendur vita e.t.v. ekki að eitt af stærri al-

menningsbókasöfnum hér á landi er staðsett á

Keflavíkurflugvelli. Eftir lestur þessa greinarkorns ættu

þeir að vera nokkru fróðari um safnið, starfsemi þess og

þjónustu. U.S. Naval Air Station Library (NASL) á

NATO stöðinni í Keflavík er eitt af fjölmörgum bóka-

söfnum sem rekið er á vegum bandaríska varnarmálaráðu-

neytisins. I hverri flotastöð og um borð í hverju herskipi er

boðið upp á bókasafnsþjónustu. Sögu slíkrar þjónustu má

rekja til ársins 1828. Starfsemi flotasafnsins á Keflavíkur-

flugvelli hófst upp úr 1950.

No ten dahópur

Helstu viðskiptavinir NASL eru annars vegar varnar-

liðsmenn og fjölskyldur þeirra og hins vegar borgaralegir

starfsmenn varnarliðsins, íslenskir og erlendir. Notenda-

hópurinn er sérstakur að því leyti að hann endurnýjast

reglulega og ekki er um hefðbundna samsetningu notenda

almenningsbókasafns að ræða. Þannig er þjónusta við t.d.

eldri borgara, sjúklinga og fanga hverfandi.

Safnkostur og aðföng

Þegar þetta er ritað er safnkostur NASL um 21.700

einingar. Safnkosturinn er allur á ensku (utan tíu íslenskra

léttlestrarbóka). Nýsigögn eru 457; myndbönd, hljóð-

snældur og tölvudiskar. Safnið er með um 120 tímarit og

dagblöð í áskrift. Sömuleiðis er safnið áskrifandi að kaup-

leigu-samningum (book-leasing-plans) á nýju unglinga-

efni og nýjum fullorðinsbókum. Nýjar handbækur og

margt annað efni berst frá miðstöð bandarískra flotasafna.

Nokkuð efni berst einnig að gjöf frá fólki sem er að f ara frá

íslandi. Skiptibókamarkaður er einnig vinsæll. Ýmis fé-

lagasamtök á staðnum hafa verið örlát á fé til safnsins, t.d.

hefur Kiwanisklúbburinn Brú staðið myndarlega að baki

íslandsdeildar safnsins.

Safnnotkun

NASL er opið allan ársins hring, alla daga vikunnar.

Aðeins er lokað á jóla- og nýársdag. Opnunartími er frá kl.

10-20 virka daga. Um helgar og á bandarískum frídögum

er opið frá kl. 12-17. Aðsókn hefur vaxið mikið undanfarin

ár og útlánaaukning fylgt í kjölfarið. Síðastliðin fimm ár

hefur aðsókn aukist um 60% og útlán um 40% (sjá súlurit

1). Árið 1991 heimsóttu tæplega 63.000 viðskiptavinir

safnið og lán til þeirra námu 59.469 einingum. Um 70%

íbúanna hafa aðgang að lánþegaskírteini. Af þeim rúmlega

1.200 gestum sem komu að jafnaði í safnið vikulega voru

17% börn og er lán á barnaefni um 30% (20%) af heildar-

útlánum. Lán á skáldsögum nema 12% (22%), fræðiritum

um 28% (46%), tímaritum 6%, nýsigögnum um 15%

(2%) og kiljum um 9% (10%). Tölur í svigum eru %

safnkosts (sbr. súlurit 2). Útlán á íbúa eru 10.24 einingar og

hvert gagn er að jafnaði lánað um 2.84 sinnum á ári

(turnover rate).

Starfslið

Við safnið starfar einn bókasafnsfræðingur, tveir

„bókasafnstæknar" (library technicians) og tveir ófag-

lærðir aðstoðarmenn (library aids), auk fjölda sjálfboða-

liða. Til skamms tíma voru forstöðumenn safnsins banda-

rískir borgarar en vegna erfiðleika við að fá fagfólk með

tilskilda menntun (Master of Library and Information

Science) til starfans var árið 1984 leitað á íslenskan mark-

að. Síðan þá hefur greinarhöfundur veitt safninu forstöðu.

Barnastarf

Ein mest notaða deild safnsins er barnadeildin. Mark-

visst barnastarf ýtir hér undir. Sögustundir eru tvisvar í

viku og er leik- og forskólabörnum þá gjarnan boðið.

Sérstakar stundir eru skipulagðar í kringum Hrekkja-

vöku, Þakkargjörðardaginn, barnabókaviku, páska ogjól.

Síðastliðið ár komu um 150 börn í jólasögustund. Bóka-

safnið stendur árlega fyrir sérstakri 7-8 vikna sumar-

lestrardagskrá (summer reading program) fyrir 3-9 ára

börn. Reynt er að sameina lestur og leik með það að

aðalmarkmiði að gera börnunum kleift að halda lestrar-

Margs konar viðburðir eru í safninu í tengslum við

Hrekkjavöku, Þakkargjörðardag, jól og páska. Hér er

verið að „slá til riddara'

ötulan saíngest.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76