Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Fran^oise Pérés forstöðumaður, Alliance Franc,aise

Bókasafn Alliance Francaise í Reykjavík

Alliance Francaise í Reykjavík var stofnað árið 1911

og hefur styrkt samband Frakklands og íslands í 80

ár. Núverandi forseti félagsins er leikstjórinn og leikkon-

an Þórunn Magnea Magnúsdóttir og framkvæmdastjóri

þess er Fran^oise Pérés sendikennari við Háskóla íslands.

Stjórn félagsins er skipuð Frökkum og íslendingum. Fé-

lagsmenn eru áhugamenn um franska menningu og tungu

og vilja efla tengsl landanna. Þeir greiða félagsgjald sem

gerir þeim kleift að nýta sér bókasafn Alliance Franqaise.

Bókasafnið býður upp á mikið úrval bóka, tímarita,

geisladiska og myndbanda.

Meginhlutverk Alliance Franqaise er frönskukennsla

og eru innritunargjöld aðal tekjulind félagsins. Islenskir

kennarar sjá um kennslu fyrir byrjendur en franskir fyrir

þá sem lengra eru komnir. Einnig er í boði frönskukennsla

fyrir börn og fyrir þá sem vilja auka við þekkingu sína í

verslunar- og viðskiptafrönsku. Kennsla fer aðallega fram

í húsakynnum Alliance Fran$aise á Vesturgötu 2, í hjarta

gamla miðbæjarins.

Á bókasafni Alliance Fran$aise að Vesturgötu 2 er að

finna um 6700 bókatitla sem og gott úrval tímarita og

dagblaða. Safnið á einnig 250 geisladiska. Á safninu má

finna sígildar bókmenntir Frakka allt frá 16. öld, svo og

nýlega útkomin rit og skáldsögur. Gott úrval barna- og

unglingabóka er á safninu ásamt kennslu- og orðabókum.

Frönskukennarar við hina ýmsu skóla á landinu nýta sér

safnið ásamt nemendum sínum. Safnið er útlánssafn og er

opið alla virka daga frá kl. 14-18 og til kl. 19 á föstudögum.

Lestrarhornið er opið allan daginn fyrir þá sem vilja lesa

dagblaðið Le Monde og fréttabréf um íslensk málefni á

frönsku.

Á safninu er mikið úrval myndbanda, um 500 talsins,

með ýmsu efni. Má þar nefna sígildar kvikmyndir Renoir

og Rhomer. Gestir safnsins geta horft á myndirnar á

bókasafninu eða fengið þær að láni gegn framvísun skírt-

einis myndbandaklúbbsins. Skírteinið gildir í hálft ár og

kostar 2000 kr. fyrir meðlimi Alliance Frangaise en 3000

kr. fyrir aðra.

Alliance Fran$aise stendur fyrir hinum ýmsu uppá-

komum. Á síðasta ári tók félagið meðal annars þátt í

franskri viku sem haldin var í Kringlunni undir heitinu „Á

frönsku inn í framtíðina". Einnig veitti félagið frönsku

tónlistarmönnunum Aminu og Manu Dibango og hljóm-

sveitunum Satellites og Babylone Fighters fjárhagslegan

stuðning vegna tónleikahalds hér á landi í október og

nóvember síðastliðnum. Á þessu ári mun félagið standa

fyrir komu fleiri þekktra franskratónlistarmanna og leik-

hópa og af öðrum uppákomum má nefna hátíð sem nefn-

ist „La Galette des Rois".

Franska og frönsk menning opnar leið þeirra íslendinga

sem hafa í hyggju að starfa eða ferðast um meginland

Evrópu. Til menningar teljast ekki aðeins bókmenntir og

listir heldur einnig verslun og viðskipti. Eiga Frakkar og

íslendingar örugglega eftir að auka samskipti sín á þeim

sviðum.

Alliance Fran$aise tekur þátt í íslenskum menningar-

viðburðum er tengja þjóðirnar tvær sterkum böndum.

Kynning á íslandi eykst í Frakklandi. Sérstaklega má

nefna aukningu franskra ferðamanna til íslands sem fara

héðan hugfangnir eftir að hafa kynnst landi og þjóð. Þeir

stuðla að góðri kynningu landsins í sínu heimalandi. Alli-

ance Franqaise vill taka virkan þátt í kynningu á þessum

sviðum sem og öðrum er lúta að samskiptum íslands og

Frakklands.

SUMMARY

The library oí Alliance Frangaise in Reykjavík

The library of Alliance Fran^aise in Reykjavík has as its primary

goal to support the teaching of the French language but it also

promotes cultural ties between the two countries in general. The

collection is highly versatile and widely used by teachers and students

with different levels of knowledge of French. The video collection

which includes, among others, many classical artistic film produc-

tions, is unique of its kind and operates a special subscription-based

circulation system. The Alliance has been highly active in organizing

and sponsoring various cultural events with the aim of awakening

interest in the areas of culture, education and tourism in both coun-

tries.

Rit um útivist

Ársrit Útivistar er fjölbreytt að efni. Fræðigreinar um náttúru landsins, hag-

nýtar greinar um sveppi, ber, kræklinga og fleiri gæði landsins, ferðasögur

og lýsingar á gönguleiðum um fjöll og láglendi og ríkulegt úrval góðra

litmynda. Höfundar eru sérfræðingar og leikmenn með þekkingu og reynslu

á sínu sviði. Öllum er boðin aðild að Útivist. Innifalið í árgjaldi er árbókin,

fréttabréf, alsláttur í feröir og á gistingu og afsláttur í ýmsum verslunum sem

selja ferðabúnað. Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir og sumarleyf-

isferðir fyrir alla aldurshópa, fyrir vana ferðamenn sem óvana.

Útivist

Hallveigarstíg 1,101 Reykjavík, s. 91-14606

12

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76