Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Sólveig Þorsteinsdóttir forstöðumaður, Bókasafni Landspítalans

Upplýsingaöflun í heilbrigðisfræðum

Saga upplýsingaleita í læknisfræði er lýsandi dæmi um

þá hröðu þróun sem hefur átt sér stað á þessari öld í

upplýsingaöflun. Þessi þróun er gott dæmi um hinar

markvissu tilraunir til að beisla hið síaukna ritaflóð lækn-

isfræðinnar. I þessu yfirliti verður farið yfir þróunina

bæði erlendis og sérstaklega hér á landi undanfarin fimm-

tán ár eða frá því við fórum að nýta okkur beinlínuleitir.

Læknisfræðitímarit hófu göngu sína fyrir um 300 árum

í Frakklandi og Englandi. Þeim fjölgaði brátt og ekki leið

á löngu þar til erfitt var að finna greinar sem komið höfðu

út á prenti. Bandarískur læknir, John Shaw Billings, gaf út

árið 1879 skrá um tímaritsgreinar. Áður höfðu evrópskir

læknar tekið saman skrár yfir ritað mál í læknisfræði en

þeim var ekki haldið við. Þær eru ómetanlegar heimildir

fyrir sögu læknisfræðinnar og skrá ritað mál í læknisfræði

frá upphafi prentsins. Skrá John Shaw Billings var hins-

vegar upphafið að Index Medicus sem er einn helsti lykill

að tímaritsgreinum í læknisfræði og sú skrá sem var fyrst

tölvuvædd á þessu sviði.

Tugþúsundir tímarita um tækni og vísindi eru nú gefin

út. National Library of Medicine í Washington er áskrif-

andi að um 22.000 tímaritum í læknisfræði hvaðanæva að

úr heiminum. National Library of Medicine sem gefur út

Index Medicus var ein af þeim stofnunum sem áttu frum-

kvæði að tölvuvæðingu á sviði upplýsinga um læknis-

fræði. Var farið að vinna Index Medicus í tölvu upp úr

1960. Upphaflega átti þetta að vera eingöngu notað til að

prenta Index Medicus en þar sem allt efnið var komið í

tölvu opnaðist sá möguleiki að leita að upplýsingunum

með tölvu. Árið 1966 var byrjað að nota upplýsingakerfið

sem heitir Medical Literature Analysis and Retrieval Syst-

em, skammstafað MeDLARS. Ekki var hægt að tengjast

MeDLARS í beinlínuleit fyrr en um 1970. Fram að þeim

tíma voru leitir framkvæmdar hjá National Library of

Medicine samkvæmt beiðni og var síðan útkoman send til

notenda. Um 1970 var hægt að fjartengjast MeDLARS og

hét það þá MeDLARS on-line eða MeDLINE. Stærstu

söfnin í Bandaríkjunum tengdust MeDLINE svo og

nokkrar miðstöðvar í fáeinum löndum. Medicinska In-

formations Centralen (MIC) við Karolinska Institutet,

Stokkhólmi, Svíþjóð var eitt af fyrstu stöðunum utan

Bandaríkjanna til að tengjast MeDLINE. MIC varð mið-

stöð á Norðurlöndunum fyrir MeDLINE.

Upphaflega bauð National Library of Medicine upp á

sex mánaða þjálfun fyrir fólk sem vildi kynna sér bein-

	NLM/Elhil Bandaríkin	

Aidsdrugs	Clinprot	Toxline 65

Aidsline	Dirline	Toxlit

Aidstrials	Dentalproj	Toxlit 65

Avline	Health	

Bioethics	Histline	

Catline	Name auth file	

Chemid	Popline	

Chemline	Toxline	

Mynd 1. Gagnagrunnar hjá National Library of Medicine.

línuleitir. Námskeiðin voru síðar stytt í þrjár vikur en í

dag stendur grunnnámskeið fyrir bókasafnsfræðinga í

eina viku. Einnig eru styttri námskeið fyrir notendur

safnanna. National Library of Medicine býður einnig upp

á fleiri gagnagrunna (mynd 1).

	MIC Svíþjóð	

Medline	Cats	Nordser

Alconline	Cisilo	Riskline

Arbline	Drugline	Serline

Cancerlit	MBline	Spriline

	Nioshtic	Swemed

Mynd 2. Gagnagrunnar hjá MIC í Svíþjóð.

MIC býður upp á færri gagnagrunna en NLM og eru

sumir þeir sömu og í NLM en auk þess eru sérstakir

norrænir gagnagrunnar (mynd 2). Enn fremur er mögu-

leiki að fara í beint samband við NLM í gegnum MIC og

leita þar í þeim gagnagrunnum sem eru ekki til hjá MIC.

Mörg önnur fyrirtæki hafa yfir að ráða gagnagrunnum á

sviði læknisfræði og skyldra greina (mynd 3).

Biosis	Pascal

Scisearch	Toxline

Sport	Aidsline

Embase	Smoking and Health

International Pharmaceutical	CINAHL

Abstracts	Federal Research

	Progress

Mynd 3. Ýmsir gagnagrunnar á sviði læknisfræði og

skyldra greina.

I mars 1974 heimsótti dr. Gunvor-Svartz Malmberg,

læknir, ísland en hún starfaði þá við MIC. Tilgangur með

heimsókninni var að kynna tölvunotkun við heimildaleit í

læknisfræði og skyldum greinum. Frumkvæði að heim-

sókninni átti Félag bókasafnsfræðinga, fræðslunefnd

læknafélaganna og Norræna húsið og fór kynningin fram

í húsnæði þess. I ljós kom að tæknilega var mögulegt að

koma á beinlínusambandi við MIC í Stokkhólmi en sam-

bandið var slæmt og kostnaður var of hár vegna talsíma-

gjalda. Hins vegar opnaðist sá möguleiki fyrir læknis-

fræðibókasöfn og heilbrigðisstéttir að komast bréflega

eða símleiðis í samband við MIC til að gera heimildaleitir.

Frá þeim tíma var þessi þjónusta mikið notuð af læknis-

fræðibókasöfnunum og þá sérstaklega læknisfræðibóka-

safni Borgarspítalans. Frá 1973, eða þar til læknisfræði-

bókasöfnin komu á beinlínusambandi árið 1981, var notað

telex. Beinar upplýsingaleitir í erlendum gagnagrunnum

hófust hér á landi hjá upplýsingaþjónustu Rannsóknaráðs

árið 1979. Bókasafn Landspítalans kom á sambandi við

gagnagrunnin MeDLINE og gagnasafnið DIALOG árið

1981. Bókasafn Landspítalans tók að sér beinlínuleitir

fyrir önnur læknisfræðibókasöfn þar til þau komu á sam-

bandi árið 1986. íslenski notendahópurinn hjá MeDLINE

17

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76