Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						er nú á milli 15 til 20 einstaklingar og bókasöfn. Læknis-

fræðibókasöfnin nota MeDLINE mest eða um 85% af

heildarnotkuninni (mynd 4).

ÍSLAND

Medline hjá MIC

Notkun 1990 í 6 mánuöi

deildir á sjúkrahúsum

10,23%

4,73%

aörir

85,05%

læknisfræöi

bókasöfn

Mynd 4. íslenskir notendur hjá MeDLINE.

Söfnin haf a nýtt sér þá tækni að hægt er að panta greinar

í millisafnalánum frá erlendum söfnum með hjálp tölvu í

gagnagrunninum NORDSER. NORDSER er gagna-

grunnur h;á MIC og er samskrá yfir öll læknisfræðitímarit

á Norðurlöndum. Hann kom til sögunnar árið 1983 og var

læknisfræðibókasafn Landspítalans eitt af þeim söfnum

sem notaði hann í tilraunaskyni í eitt ár. I NORDSER er

hægt að finna hvaða læknisfræðibókasafn er áskrifandi að

ákveðnu tímariti og síðan er hægt að panta grein úr því

tímariti í gegnum tölvuna. Frá 1990 hefur Bókasafn

Landspítalans einnig tekið á móti greinapöntunum í gegn-

um NORDSER.

Einn stærsti útgjaldaliðurinn við tölvuleitir var síma-

sambandið við útlönd en með tilkomu gagnanets Pósts og

síma árið 1986 hefur þessi útgjaldaliður minnkað verulega.

Þróun í fjarskiptum hefur verið hröð og á tíu árum hafa

orðið miklar breytingar. Árið 1981 voru notuð mótöld

með hraðanum 300 bit/s en nú eru þau til fyrir hraða frá

300 bit/s til 14400 bit/s. Mótöldin verða sífellt fullkomn-

ari, t.d. með minni fyrir símanúmer, öryggi tengt að-

gangsorði og lykilorði og tenging símanúmera í minni

þegar fyrra númer er upptekið. Nú eru einnig notaðar

beinlínutengingar X25 pad og X28 pad þar sem tengt er

beint í samnota símalínu og þarf þá ekki að nota mótald.

Bókasafn Landspítalans hefur notað slíka tengingu síðan

1990.

Miklar framfarir hafa orðið á þeim 15 árum síðan ís-

lendingar fóru að nýta sér þessa upplýsingatækni. Gagna-

grunnum hefur fjölgað og leitartæknin hefur þróast. Á

markaðnum eru nú til forrit sem framkvæma leitina fyrir

þá sem leita. Eitt þeirra er Grateful Med, ætlað þeim sem

hafa ekki fengið mikla þjálfun í notkun efnisorða og leit-

artækni. Forrit þetta er fyrir einkatölvur. Það er hannað

fyrir hefðbundnar símalínur en tengist ekki gagnanetinu

og því er símakostnaður hærri en á móti kemur að búið er

að vélrita inn alla leitina áður en samband er komið á svo

ekki þarf að vera lengi í sambandi og lækkar kostnaðurinn

við það. Geisladiskarnir eru nú komnir í almenna notkun

á læknisfræðibókasöfnunum. Hægt er að fá keypta ýmsa

gagnagrunna á geisladiskum og þar á meðal MeDLINE.

Læknisfræðibókasafn Landakotsspítala keypti MeD-

LINE á geisladiskum 1988 og var þar með fyrsta safnið

sem keypti skrár (indexa) á geisladiskum (Háskólabóka-

safn hóf notkun geisladiska árið 1986 en þar var um að

ræða skráningarfærslur í markformi - innskot ritstjóra). í

byrjun árs 1990 keyptu læknisfræðibókasöfn Borgarspít-

alans, Landspítalans og Fjórðungssjúkrahússins á Akur-

eyri MeDLINE á geisladiskum. Bókasafn Landspítalans

keypti einnig CINAHL á geisladiski en þar er efni úr

heilbrigðisfræðum, öðrum en læknisfræði, með sérstakri

áherslu á hjúkrunartímarit. Nokkur fyrirtæki selja

MeDLINE á geisladiskum en þeir geyma mismikið magn

af upplýsingum og nota þarf ólíka leitartækni. Þeir geisla-

diskar sem eru í notkun hér eru frá EBSCO og Silver

Platter. Frá því söfnin fóru að kaupa geisladiskana hafa

þeir verið í sífelldri þróun. Þeir gerast hraðvirkari og

auðveldari í notkun og hægt er að leita í nokkrum árum á

sama diski. Notendur safnanna hafa tekið þessari nýjung

mjög vel og eru diskarnir í stöðugri notkun. Kosturinn

við geisladiskana er að notandinn þarf ekki að vera í

beinlínusambandi.

Það hefur verið vinsælt að geyma leitir inni í tölvunni

þannig að viðkomandi fær mánaðarlega sent í pósti heim-

ildalista um ný efni á ákveðnu sviði. Einnig er vinsælt að fá

heimildaleitina á diski sem notandinn getur tekið með sér

og sett inn á sína einkatölvu. Þannig er hægt að byggja upp

sinn eiginn gagnagrunn og leita í upplýsingum með sér-

stökum forritum. Má þar nefna End Note og Get-A-Ref.

Þegar leitað er í geisladiskunum eru notendur hvattir til að

notfæra sér þessa leið.

Fyrir fáum árum voru það eingöngu bókasafnsfræðing-

ar eða upplýsingafræðingar sem gerðu tölvuleitir en með

tilkomu örtölvunnar eru einstaklingar farnir að leita sjálf-

ir. Fyrst í stað voru öll námskeiðin fyrir MeDLINE á

Norðurlöndum haldin hjá MIC í Svíþjóð. Fyrstar til að

sækja námskeið hjá MIC voru Kristín H. Pétursdóttir

sem starfaði þá á Læknisfræðibókasafni Borgarspítalans

og Guðrún Karlsdóttir Háskólabókasafni. Þær sóttu viku

námskeið árið 1973, Medline introductory training

course. Dvöl þeirra þar var kveikjan að heimsókn dr.

Gunvor Svartz-Malmberg til íslands ári síðar. Að frum-

kvæði þeirra hjá MIC var farið að halda námskeið á öllum

Norðurlöndunum. Þeir héldu námskeið fyrir væntanlega

kennara og buðu 1-2 fulltrúum frá hverju landi og veittu

þeim sérstaka þjálfun í að kenna. Undirrituð fór í þjálfun

hjá MIC og í framhaldi af því hafa verið haldin námskeið

reglulega fyrir bókasafnsfræðinga og einkanotendur á

vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla íslands.

Námskeiðin hafa verið vel sótt. Einnig hafa verið haldin

námskeið hér á landi af öðrum erlendum aðilum, s.s.

DIALOG, ORBIT, ARAMIS og EMBASE. Námskeið

þessi hafa bæði verið fyrir bókasafnsfræðinga og notend-

ur safnanna (end-user). Með tilkomu geisladiskanna hafa

bókasafnsfræðingar á söfnunum verið með kennslu í

notkun þeirra.

Námskeið í upplýsingaleitum í tölvu hefur verið kennt í

bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla íslands annað

hvert ár síðan 1981. Frá því að kennsla hófst hefur alltaf

verið notað beinlínusamband. Fyrstu árin fóru beinlínu-

leitirnar fram á Landspítalanum þar sem þessi möguleiki

var ekki fyrir hendi hjá Háskóla íslands.

Markmiðið hjá National Library of Medicine er að sem

flestir geti gert heimildaleitir, bæði notendur safnanna og

bókasafnsfræðingar, líkt og allir leita í prentuðum skrám.

Enn er langt í land að þetta verði að veruleika en sífellt

fjölgar þeim sem tileinka sér þessa tækni. Með tilkomu

geisladiskanna virðist ætla að verða veruleg breyting í

þessa átt og verður gaman að fylgjast með þróuninni á

næstu árum. Stór söfn úti í heimi hafa nettengt deildir

18

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76