Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						ekkert smámæltur lengur. Móðir hans var furðu lostin.

Henni fannst sonurinn hafa sýnt undraverðan þroska og

dugnað. Hún hafði aldrei áttað sig á að auðvitað hafði Ari

mátt þola stríðni og hrekki vegna smámælisins í öll þessi

ár sem hún lést ekki taka eftir því. Hann hafði bara ekki

viljað hryggja mömmu sína með því að kvarta. En hvernig

hafði Ara tekist að vinna bug á vanda sínum? „Ég mundi

eftir Drem" sagði hann, „hann var fatlaður eins og ég".

Drem hafði að lokum tekist að slátra úlfi og komast í tölu

fullorðinna og Ari hafði ákveðið að slátra sínum líka."

Það kannast margir örugglega við eitthvað þessu líkt úr

eigin „lestrarsögu", eitthvert atvik þar sem allt í einu

laukst upp fyrir þeim skilningur og samkennd með öðrum

og skilningur á sjálfum sér og eigin möguleikum.

Bókaval

Það getur verið erfitt að ákveða hvaða bækur eru góðar

barnabækur. Ég hef tekið saman nokkur atriði um bóka-

val. Sum eru höfð eftir öðrum en önnur byggð á eigin

reynslu.

Góð barnabók þarf að vera:

Skemmtileg

Eyða fordómum, t.d. kynferðis- og kynþáttafordóm-

um, og vekja til umhugsunar um ranglæti í ýmsum

myndum

Skrifuð á lipru máli og sæmilega stíluð

Vönduð að frágangi þ.e. prófarkalestur, pappír, letur,

bókband o.s.frv.

Efla skilning á kjörum annarra, t.d. með því að segja frá

börnum/fólki sem lifir við aðrar aðstæður en við,

aðra menningu, á öðrum tímum, börnum í stríðs-

hrjáðum löndum, vangefnum eða fötluðum börnum,

börnum sem deyja, missa ástvini, lenda í skilnaði

foreldra eða sjúkrahúsvist, börnum einstæðra for-

eldra o.s.frv.

Örva hugmyndaflugið t.d. þjóðsögur og ævintýri,

dýrasögur, „fantasi" og „nonsens" bókmenntir

Enda vel eða allavega þannig að hún skilji ekki við

börnin í algjöru vonleysi

Góð bók þarf að hafa til að bera fyrsta kostinn og tvo til

þrjá aðra. Það skaðar heldur ekki að höfundur hafi listræn

tök á efninu.

Nokkur atriði sem hafa má til hliðsjónar við mat á mynd-

efni:

Samræmi mynda og texta (t.d. háralitur)

Er mynd á réttum stað í texta?

Hvaða atriði texta eru dregin fram í mynd? (Hasar,

fegurð, tilfinningar)

Bæta myndír einhverju við texta?

Eru myndirnar lifandi?

Hæfa þær sérstaklega einhverjum tíma (t.d. gamla tím-

anum) eða hughrifum?

Eru myndirnar listrænar, „fallegar", raunsæjar o.s.frv.-

Barnabókaútgáfan

Útgáfan í heild virðist fara batnandi. Mikill fjöldi vand-

aðra bóka fyrir litlu börnin er á markaði nú. Einnig virðist

yngri hluti læsra barna fá margt gott við sitt hæfi. En málið

versnar heldur er kemur að stálpuðum börnum og ung-

lingum. Að vísu eru auðvitað ýmsar unglingabækur góðar

en allt of margar eru ómerkilegar, illa þýddar, á vondu

máli og fullar af fordómum. Auk þess kemur það fyrir að

bækur eru kynntar þannig með titli, baksíðutexta og í

auglýsingum að um hreina blekkingu er að ræða. Ég ætla

að nefna eitt dæmi en þau eru því miður fleiri. Bókin

Kossar eftir J. Caseley kom út 1990. Hún var kynntsem

ástarsaga fyrir ungu stúlkuna, í flokknum Ung ást, en er í

raun og veru fremur alvarleg saga um erfiðleika unglings-

áranna og kossarnir tengjast fremur ágengni karlmanna en

ást. Svona svik við lesendur auka hvorki sölu bókar né

ánægju viðskiptavina. Endurútgáfur virðast vera að færast

í það horf að fyrst og fremst sé þar um að ræða góðar og

vinsælar bækur og er það vel. Ég nefni eitt dæmi. Bláskjár,

með eftirmála Vilborgar Dagbjartsdóttur um höfund og

þýðanda, er til stakrar fyrirmyndar.

Ljóð

Heldur meira er um ljóð og rímaða texta fyrir börn í

bókaútgáfunni nú en var fyrir fáeinum árum. 1990 og 1991

komu út eftirtaldar bækur:

Ljóðsprotar ásamt söngvahefti og snældu

Jóhanna Steingrímsdóttir: Barnagælur

Ljóðabóka barnanna. Ljóð eftir börn fyrir börn og full-

orðna

Steinunn Eyjólfsdóttir: Silfurskottur

Vísnabók Iðunnar tekin saman af Þórgunni Skúladótt-

ur

Þórarinn Eldjárn: Óðfluga

Einnig komu út fáeinar bækur með barnalögum (nótur

og textar) og fáeinar þýddar smábarnabækur í bundnu

23

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76