Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						verið kostur í vondum veðrum að vetrinum en þar er jafnt

hægt að lengja sér eins og stytta sér leið því að aðalgöngin

mynda stóran, aflangan ferhyrning. Lítil lest gengur um

hluta ganganna. Sums staðar í göngunum eru verðir og

leitarbúnaður líkt og tíðkast í flughöfnum.

Umsjónarmaður hópsins var Fern Underdue frá starfs-

mannahaldi (Program Coordinator/Human Resources

Specialist). Gátum við leitað til hennar um allt sem okkur

vanhagaði um og leysti hún vel úr öllu. Á henni hvíldi

mikið því að hún sá ekki einungis um okkur heldur var

undirbúningur vegna næsta IP hóps þegar kominn í fullan

gang. Á sama tíma og verið var að undirbúa útskrift okkar

um vorið var kominn heill hópur bandarískra umsækj-

enda á staðinn til mætingar í viðtöl áður en endanlega yrði

afráðið hverjir kæmust að og hverjir ekki. Rétt er að skjóta

því inn í hér að erlendir umsækjendur eru undanþegnir

þeirri kvöð að koma í viðtöl vegna hins háa ferðakostnað-

ar. LC greiðir hins vegar ferðir bandarískra umsækjenda

vegna þessara viðtala og ennfremur uppihald þeirra. Þeir

af hinum síðarnefndu, sem fá inngöngu, fara svo á launa-

skrá hjá LC strax og IP hefst um haustið. Ætlast var til að

okkar hópur tæki á móti aðkomufólkinu og héldum við

því boð einu sinni.

Þennan fyrsta dag fengum við svo að vita hvað við

áttum í vændum næstu níu mánuðina. Hvert okkar fékk í

hendur möppu eina allvæna þar sem var að finna nákvæma

tímaáætlun til febrúarloka, upptalningu á fyrirlestrum og

fyrirlesurum, pallborðsumræðum og þátttakendum í

þeim, ennfremur vettvangskönnunum og skammtíma-

verkefnum sem okkur voru fyrirhuguð í hinum ýmsu

deildum safnsins svo að við kynntumst safnrekstrinum

nánar. Tímaáætlunin náði ekki lengra því að síðustu mán-

uðina var ætlunin að við ynnum við sjálfstæð verkefni og

áttum við sjálf hafa hönd í bagga við val þeirra og mótun.

Daglegur viðvistartími skyldi vera frá klukkan 8:30 að

morgni til fimm síðdegis. Með hjálp LC-passanna gátum

við komist inn fyrr að morgninum ef við vildum og einnig

dvalist lengur fram eftir, ef þörf krafði.

Námsfyrirkom ulag

Víkur þá sögunni að innviðum IP. Vel var staðið að

efnisvali og tímaröðun þátta. Hins vegar er því ekki að

neita að okkur þátttakendunum fannst, einkum í byrjun,

talsvert á okkur lagt og við fundum svo sannarlega fyrir

því að sitja viku eftir viku, fullan vinnudag með litlu

upprofi og hlusta á fyrirlestra og pallborðsumræður.

Þetta virtist eiga jafnt við amerísku þátttakendurna og

okkur útlendingana. Jafnvel var óþolið mest hjá þeim sem

valist höfðu í IP úr starfsmannahópi LC enda fór ekki hjá

því að sumt af því sem fjallað var um í upphafi var að

einhverju leyti endurtekning fyrir þá. Engir tveir komu

þó úr sömu deildinni svo að það sem var gömul lumma

fyrir einum var nýtt fyrir öðrum. En að geta teygt úr sér

eða fengið sér kaffibolla eftir eigin löngun og hentugleik-

um var frelsi sem var okkur horfið um skeið. Þetta breytt-

ist svo nokkuð, tímataflan gerði ráð fyrir meiri fjölbreyti-

leika eftir því sem stundir liðu fram. Við fórum að geta

tekið virkari þátt í því sem fram fór og síðustu mánuðina

unnum við mestmegnis við sjálfstæð verkefni eins og fyrr

getur. IP skiptist nefnilega í reynd í þrjá meginhluta eða

áfanga og færði hver áfangi okkur aukið sjálfræði. Öll

vorum við fús að leggja talsvert á okkur. Ekki síður fyrir

það að við fundum, hvar sem við fórum innan safnsins, að

við vorum í miklum metum og menn væntu sér góðra

hluta af okkur. Enda leggur safnið þarna í þó nokkurn

kostnað. Eftirsótt er að komast í þennan hóp og við

töldum okkur öll heppin að hafa komist að.

Námskeiðið var þrískipt. Á fyrsta tímaskeiðinu, sem

stóð frá septemberbyrjun fram í miðjan desember, var

ítarlega fjallað um hverja einstaka deild LC, starfsemi

viðkomandi deildar og stjórnsýslu. Á þessu tímabili var

mestmegnis kennt í fyrirlestrum, stundum einnig settar

upp pallborðskynningar/-umræður. Þarna komu fram

deildar- og verkefnisstjórar úr öllum deildum og stigveld-

um safnsins. Ævinlega lauk fyrirlestri/áfanga með spurn-

ingaþætti og umræðum sem við öll tókum þátt í. Byrjað

var á yfirstjórn safnsins og kynningu á viðamiklum breyt-

ingum sem orðið hafa á henni undanfarin fjögur ár, eða

síðan dr. James H. Billington tók við safnstjórninni árið

1987. Síðan deild fyrir deild koll af kolli niður í smæstu

einingu á hverjum stað. Gerð var svo úttekt á öllu saman

og umræðan gat verið ákaflega gagnrýnin en menn máttu

hvergi draga af. Ymis mikilvæg ákvarðanataka byggir á

heildaryfirsýn yfir safnstarfsemina. Með IP tryggir LC að

safnið hafi á hverjum tíma á að skipa nokkrum hópi

manna með heildaryfirsýn yfir reksturinn, jafnframt

stjórnþekkingu, og geti samtvinnað þetta tvennt til góða

fyrir safnið. Með því að opna IP fyrir útlendingum kemur

safnið sér einnig upp tengiliðum víðs vegar um heim með

haldgóða þekkingu á LC og áhuga á málefnum þess og

rennir þannig stoðum undir alþjóðlega samvinnu.

Annað slagið fórum við svo í vettvangskannanir og við

hver þáttaskil bauðst okkur einnig að vinna að raunhæf-

um verkefnum úti í deildunum. Leystum við þau ýmist í

litlum hópum eða sem einstaklingar og þá oftast í sam-

vinnu við sérfræðing, verkefnis-eða deildarstjóra við-

komandi deildar. Þarna gafst okkur oft tækifæri til per-

sónulegra kynna og hægt var að fara enn nánar ofan í

saumana á ýmsu og afla viðbótargagna. Annars var yfir-

leitt miklu efni útbýtt í tengslum við hvern fyrirlestur og

var fjarri því að unnt væri að lesa það allt jafnóðum.

Annar hlutinn, sem stóð frá miðjum desember til febr-

úarloka, var mestmegnis fræðilegur. Var meginvægið á

stjórnunarkenningum af ýmsum toga, almennum og

safntengdum. Þar var m.a. fjallað um fyrirtækjastjórn,

verkefnisstjórnun, starfsmannastjórn, stjórnunarsálfræði,

ráðningar, skilgreiningar á störfum og launaflokkun og

ýmislegt annað, svo sem dagleg samskipti, viðbrögð við

brotum og misferli í starfi, umbun fyrir ágæti í starfi,

ráðgjöf við starfsmenn bæði persónuleg og varðandi störf

þeirra. Hér má geta þess að snemma á haustmisseri geng-

umst við öll undir persónuleikapróf sem kennt er við

Mayer/Briggs. Unnum við úr því í þessum hluta og var

farið nokkuð í notagildi þess. I þessum miðáfanga komu,

auk sérfræðinga LC, einnig fram nokkrir fyrirlesarar ann-

ars staðar frá, sumir hverjir atvinnufyrirlesarar á sínu

sviði, aðrir starfsmenn fyrirtækja, sérhæfðir í einhverri

grein stjórnunar. Mest vann með okkur Susan Jurow frá

Sambandi rannsóknarbókavarða, forstöðumaður stjórn-

arsviðs (Office of Management Studies — OMS).

Þegar hér var komið sögu höfðum við orðið góða yfir-

sýn yfir stjórnareindina Library of Congress og innviði

þess. Það þjónaði svo sem vænta má í flestum tilvikum

sem módelsafn. Fyrirlestrum lauk nú yfirleitt fyrr á dag-

inn og gripum við þessa aukastund alls hugar fegin til að

26

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76