Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Bókasafniš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Bókasafniš

						Name

vinna að ýmsu sem við höfðum ekki haft tíma

fyrir áður, svo sem frágangi árvissrar IP-skýrslu

sem allir taka þátt í að semja. Þá tókum við

þremenningarnir frá íslandi, Japan og Svasilandi

saman lista um þau atriði sem helst vissu að

„hinum alþjóðlegu", eins og við vorum stund-

um nefnd, og bentum umbeðin á ýmislegt sem

okkur þótti betur mega fara. Einnig sömdum

við stutt ávarp sem eitt okkar flutti við útskrift í

maí. Auk þessara „frjálsu" stunda fengum við

einnig nokkra staka daga inn á milli og nýttum

þá með ýmsu móti. Okkur gafst m.a. kostur á að

fylgja æðstu yfirmönnum safnsins eftir daglangt

og taka þátt í því sem fyrir lá hjá hverjum og

einum þann daginn. Notfærðum við okkur

þetta flest eða öll. Sátum við þá m.a. fundi þar

sem ýmsar stefnumótandi ákvarðanir voru

teknar.

Síðustu þrjá mánuðina, mars til maí, unnum

við sem fyrr segir mestmegnis að sjálfstæðum stærri verk-

efnum í þágu safnsins.Verkefnin voru sum hver lögð fram

af deildunum og okkur gefinn kostur á að velja úr þeim,

öðrum höfðum við sjálf stungið upp á. Þarna var aðallega

um einstaklingsverkefni að ræða en önnur voru svo viða-

mikil eða þannig vaxin að hentugra var að f leiri hef ðu með

sér samvinnu um þau. Við útlendingarnir völdum okkur

öll að hluta til verkefni þar sem bakgrunnur okkar nýttist,

þ.e. málakunnátta og þekking á útgáfu og annarri sérstöðu

landanna eða heimshlutanna sem við komum frá. Þannig

reyndum við að greiða upp í þá skuld sem okkur fannst

við standa í við safnið. Að öðru leyti höguðum við verk-

efnavali okkar í samræmi við áhugasvið hvers og höfðum

þá í huga að verða að gagni samtímis því sem við kynnt-

umst einhverju sem væri nýtt fyrir okkur.

Nokkrum sinnum sátum við hádegisverðarfundi með

dr. Billington. Við höfðum mikinn áhuga á að heyra álit

hans á ýmsu sem umdeilt var eða hafði óljósa stef numótun

í safnrekstrinum og sóttist hann að sama skapi eftir að fá

okkur til að tjá okkur hreinskilnislega um flest sem við

höfðum skoðun á. Hann taldi sig lesa vissa gagnrýni út úr

verkefnavali sumra okkar og lét sér vel líka.

Sérstaða Library of Congress — starfsemi og

deildir

Library of Congress er um margt ólíkt öllum öðrum

söfnum í heiminum. Er það einkum tvennt sem skapar

stofnuninni þessa sérstöðu; stærð safnsins og alþjóðlegt

snið þess, m.a. hvað varðar aðfangastefnu og bakgrunn

starfsmanna. Vegna erlendra keyptra rita hefur safnið

komið sér upp svokölluðu „blanket order" kerfi, þ.e. gert

samning við ýmsa bóksala í öðrum löndum um útvegun

efnis án þess að sérpantanir þurfi að kom til fyrir hvert rit.

Fjárhæðin sem kaupa má fyrir er þá fyrirfram ákveðin,

sömuleiðis fær bóksalinn ítarlegar, staðlaðar leiðbeining-

ar um hvers konar efni beri að sækjast eftir og hvað eigi

ekki að kaupa. Á nokkrum þróunarsvæðum hafa verið

settar á stofn „Overseas Offices" (OS) og gegna þær

víðtækara hlutverki en bóksalasamningarnir. Þessar utan-

landsstöðvar eru misstórar og að hluta til mannaðar af

innfæddum en að hluta til af bandarískum starfsmönnum

LC. Sumar stöðvanna sjá m.a. um skráningu efnis og

senda heim færslur í tölvutæku formí. Menntun starfs-

LIBRARY OF CONGRESS

NON-EMPLOYEE ACCESS PASS

The  individual   listed  below is authorized access to the indicated

areas during the dates and times specified.

EXPIRATION DATE:     5-31-9

f    fe^

Gudrun Karlsdottir

LC Intern

Areas of Access (division, office, etc.)

T.Mfí S4 /m rm , d-T.i brarywi de.

Periods of Access (hours and dates)

8:00a.m.-5:30p.m.

r Management)

Date

±3Dzl$

Signature of Pass

HolderV^

2-16   <rev 7/78)

Starfsmenn og fastagestir þurfa að framvísa sérstökum skilríkjum

hvenær sem óskað er.

manna LC er ákaflega fjölbreytileg og stór hluti þeirra er

af erlendu bergi brotinn. I skráningardeild er um þriðj-

ungur starfsmanna fæddur erlendis.

Annað sem er einstætt við LC er uppbygging þess, þ.e.

hve víðfeðm og margbrotin stjórnunareind safnið er. Þótt

ávallt sé talað um LC sem eitt safn þá spannar það í reynd

margar tegundir safna og fer einnig langt út fyrir hefð-

bundið bókasafnshlutverk með ýmis konar annarri starf-

semi. Mér finnst því að ég hafi ekki kynnst einu safni

heldur mörgum af mismunandi tegundum og reknum á

mismunandi vegu, ýmist eftir innri gerð sinni eða hefðum

sem skapast hafa í áranna rás. Auk kjarnahlutverka sinna

er safnið einnig að hluta til þjóðháttasafn, þýðingamið-

stöð og útgáfufyrirtæki og er þetta þó ekki nema brot af

myndinni.

í safninu er að finna hefðbundnar deildir, þ.e. þær sem

eru algengastar í söfnum og endurspegla verkþætti og

niðurskiptingu starfsliðs eftir þeim. Ég sleppi því að lýsa

þeim nokkuð nánar hér en þær eru brotnar niður í ýmsar

einingar sem ekki er þörf á í venjulegum, meðalstórum

söfnum. Stigveldisskipan er mikil innan LC. Þá má nefna

deildir þar sem fyrst og fremst er starfað að sérhæfðri

þjónustu og rannsóknum, svo sem Federal Research Divi-

sion (FRD) en þar er bæði unnið að þýðingum, samningu

og útgáfu rita á sviði stjórnmála, alþjóðamála og einnig

um einstök lönd.

Þá má ekki gleyma sjálfri þingdeild safnsins en hún

skiptist í tvennt, rannsóknadeild og upplýsingadeild

(Congressional Research Division, CRD, og Congress-

ional Research Service, CRS). Ég var nokkra daga í síðar-

nefndu deildinni, um það leyti sem Persaflóastríðið skall

á, og það verð ég að segja að hvergi annars staðar í stofn-

uninni sá ég eins hröð og markviss vinnubrögð. Ég var

líka undrandi á hvað ég, útlendingurinn, fékk að komast í

upplýsingar sem telja mátti hálfgildings trúnaðarmál á

þessum viðkvæma tíma. Eg vann þessa daga aðallega með

Lynn Carter, sem er sérfræðingur í utanríkismálum, og

þingmennirnir máttu svo sannarlega vera ánægðir með

þjónustuna. Náin samvinna er milli CRD og CRS. CRD

reynir að sjá fyrir upplýsingabeiðnir sem berast og hópur

sérfræðinga vinnur við textasamningu og útdráttagerð og

er þetta efni gefið út fjölfaldað í takmörkuðu upplagi og

endurskoðað reglulega meðan þörf er á. CRS getur svo

gengið að því hvenær sem fyrirspurn berst. Útgáfa af

27

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76